„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Steinunn tekur upp hanskann fyrir Tyrfing: „Hreinskilið verk sem fjallar um fegurðina og ástina“

Steinunn tekur upp hanskann fyrir Tyrfing: „Hreinskilið verk sem fjallar um fegurðina og ástina“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir er yfir sig hrifin af nýjasta leik­verki Tyrfings Tyrf­ings­sonar.

Mikill styr hefur verið í kringum nýjasta leik­riti Tyrfings Tyrf­ings­sonar en þar er Heiðar snyrtir stór karakter. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta hefur gagn­rýnt leik­ritið í fjöl­miðlum síð­ustu daga en hún segir fregnir af leik­riti sem fyrst átti að heita Kvöld­stund með Heiðari snyrti, hafi ýft upp sár brota­þola Heiðars en hann var dæmdur fyrir tvö kyn­ferð­is­brot, annað á Egils­stöðum og hitt á Akureyri, árið 1996. „Borg­ar­leik­húsið virðir ekki óskir brota­þola eða alvar­leika afleið­inga á þolendur heldur ákveður, þrátt fyrir óskir um annað, að stilla kyn­ferð­is­brota­manni í kast­ljósið af því að listin má allt – líka við­halda þján­ingum brota­þola kyn­ferð­is­of­beldis,“ skrif­aði Drífa í aðsendri grein á Vísi þar sem hún tal­aði til þeirra sem ættu miða á sýn­ing­una.

Leik­konan Steinunn Ólína Þor­steindóttir fór á æfingu á leik­rit­inu, sem nú ber heitið Lúna og ræður sér vart af kæti. Segist hún vera „djúpt snortin“ vegna verks­ins. „Vá, hvað hann Tyrf­ingur er vogað og magnað leik­skáld, það er ekki hægt annað en að elska hann því honum þykir svo vænt um mann­eskj­urnar, okkur sem erum svo breysk, gölluð og smá,“ skrif­aði Steinunn á Facebook og ann­ars staðar í færsl­unni skrif­aði hún um leik­ritið: „Leik­sýn­ing Stefáns Jóns­sonar er hreint út sagt brilli­ant, því­líkur Þjóð­ar­speg­ill. Hrein­skilið verk sem fjallar um feg­urð­ina og ást­ina sem er það allra verð­mætasta og hvað það er sárt að lifa í þessu óblíða landi þar sem ótta­slegin dóm­harkan ríkir, aftengdur, utan­gátta og einn.“

Pétur nokkur skrif­aði athuga­semd við færsl­una: „Drífa Snædal er rasandi! Það veit á gott.“

Þessu svar­aði Steinunn Ólína um hæl: „ég efast stór­lega um að hún hafi séð verkið miðað við afstöðu hennar opin­ber­lega. Ég vona hins­vegar að hún sjái það og reyndar bara allir.“

Færslu Stein­unnar má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

„Sá yðar sem synd­laus er …

Ég sá æfingu á nýjasta verki

Tyrf­ingur Tyrf­ings­son

í gær og var djúpt snortin. Vá, hvað hann Tyrf­ingur er vogað og magnað leik­skáld, það er ekki hægt annað en að elska hann því honum þykir svo vænt um mann­eskj­urnar, okkur sem erum svo breysk, gölluð og smá. Leik­sýn­ing Stefáns Jóns­sonar er hreint út sagt brilli­ant, því­líkur Þjóð­ar­speg­ill. Hrein­skilið verk sem fjallar um feg­urð­ina og ást­ina sem er það allra verð­mætasta og hvað það er sárt að lifa í þessu óblíða landi þar sem ótta­slegin dóm­harkan ríkir, aftengdur, utan­gátta og einn. Leik­ar­arnir allir …vá! – geggjuð frammi­staða. Húrra

Borg­ar­leik­húsið

!!!All we need is love meiri ástar er þörf!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins