„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Svandís reynir sættir í skugga vantrauststillögu: „Enginn illur ásetningur“

Svandís reynir sættir í skugga vantrauststillögu: „Enginn illur ásetningur“
Svandís Svav­ars­dóttir virti ekki laga­heim­ildir þegar hún stöðv­aði hval­veiðar síð­asta sumar.

„Álit umboðs­manns Alþingis hefur verið mér mikið umhugs­un­ar­efni. Bæði sem stjórn­mála­maður og emb­ætt­is­maður. Það er hverjum ráð­herra þung­bært þegar álit umboðs­manns leiðir í ljós að ráð­staf­anir séu ekki eins og best verður á kosið,“ skrifar Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra á Facebook í morgun um þá stöðu sem upp er komin vegna áfell­is­dóms umboðs­manns Alþingis varð­andi hval­veiði­bann ráð­herr­ans.

Vantraust í dag

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, hefur boðað van­traust á ráð­herr­ann í dag. Sá skuggi vofir yfir Svandísi sem við­ur­kennir nú að reglu­gerð um hval­veiðar hafi ekki  „átt sér nægi­lega skýra stoð í lögum eins og atvikum var háttað í júní“.„Að baki útgáfu reglu­gerð­ar­innar á sínum tíma var eng­inn illur ásetn­ingur. Mér gekk ekk­ert annað til en að fara að lögum og þar á meðal og ekki síst mik­il­vægum lögum frá 2013 um að okkur beri að koma vel fram við dýr,“ skrifar Svandís.

Ráðuneytið lagði til bann

Hún seg­ist hafa verið í afar þröngri stöðu í tíma og rúmi þegar hún fékk í hendur álit fagráðs um dýra­vel­ferð sem taldi að veiðar á hval gætu ekki sam­ræmst dýra­vel­ferð­ar­lögum. Hún seg­ist hafa falið ráðu­neyti sínu að gera til­lögur að við­brögðum. „Ég fór þá að öllu leyti að ráð­gjöf ráðu­neyt­is­ins og und­ir­rit­aði reglu­gerð um frestun á upp­hafi ver­tíð­ar­innar þar sem unnt væri að nýta tím­ann til að m.a. kanna til­lögur leyf­is­hafans um það hvort og þá hvernig bæta mætti fram­kvæmd­ina. Ég hef ekki enn heyrt þá rödd sem telur að það sé rétt­læt­an­legt að stunda ómann­úð­legar veiðar á hvölum,“ skrifar hún og segir að umboðs­maður taki raunar undir það að mál­efna­legt geti verið að líta til sjón­ar­miða um dýra­vel­ferð.„En nú er álit umboðs­manns komið fram og ég hlusta á þau sjón­ar­mið sem þar koma fram og tek þau til mín. Ráðu­neyti mitt hefur rýnt álitið og lög­fræði­leg nið­ur­staða þess er sú að það gefi ekki til­efni til sér­stakra við­bragða,“ skrifar Svandís og segir að álit ráðu­neyt­is­ins sé í sam­ræmi við nið­ur­stöðu umboðs­manns, en hann beinir ekki sér­stökum til­mælum um úrbætur til sín, umfram það að hafa sjón­ar­miðin sem fram koma í álit­inu í huga til fram­tíðar.

Umboðsmaður mikilvægur

Ráð­herr­ann sýnir sátt­fýsi og seg­ist engu að síður hafa ákveðið að fela óháðum aðila að fara yfir stjórn­sýslu og lagaum­gjörð hval­veiða, þ.m.t. alþjóð­legar skuld­bind­ingar rík­is­ins, og vald­heim­ildir stjórn­valda á þeim grund­velli. Álits­gjafi verði jafn­framt beð­inn um að gera til­lögur að úrbótum eftir því sem við á, og eftir atvikum til­lögur að breyt­ingum á lögum.Þá hefur hún ákveðið að fela rík­is­lög­manni að leggja mat á fram­komið erindi Hvals hf. þar sem félagið óskar eftir við­ræðum við ríkið um mögu­legt upp­gjör vegna álits­ins.„Ég gríp til þess­ara skýru við­bragða í ljósi þess að mik­il­vægt er að stjórn­völd beri virð­ingu fyrir eft­ir­lits­stofn­unum og sýni það í verki. Umboðs­maður Alþingis gegnir mik­il­vægu hlut­verki í eft­ir­liti með stjórn­sýslu rík­is­ins í okkar lýð­ræð­is­sam­fé­lagi,“ skrifar Svandís.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins