„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Steinunn Ólína minnist svilkonu sinnar: „Hún barðist eins og ljón til síðasta dags“

Steinunn Ólína minnist svilkonu sinnar: „Hún barðist eins og ljón til síðasta dags“
Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir minn­ist svil­konu sinnar sem lést á dög­unum eftir erfið veik­indi.

Leik­konan ást­sæla, Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir minn­ist Stein­unnar Jóhönnu Sig­fúss­dóttur, svil­konu sinnar, á Facebook, sem lést 18. jan­úar síð­ast­lið­inn eftir bar­áttu við erfið veik­indi. Í færsl­unni segi hún að nafna sín hafi verið sér sem systir, „allt frá því að við Stefán Karl kynnt­umst en hún var þá eig­in­kona bróður hans, Björg­vins sem er minn besti bróðir.“

Steinunn Ólína lýsir nöfnu sinni á fal­legan hátt: „
Steinunn var fag­ur­keri fram í fing­ur­góma, list­ræn og smekk­vís, glæsi­leg, hlý og alþýð­leg í fasi. Hún var töfr­andi blanda af hörku og við­kvæmni en ung hafði hún ýmis­legt reynt sem vís­ast er að ekki hefðu allir þolað sem senni­lega kall­aði fram í henni þessar flóknu and­stæður. Hún hafði sitt sér­staka tungu­tak og húmor­inn hennar ekki uppúr öðrum. Steinunn var mikil barna­gæla og er hennar nú sárt saknað af börnum, barna­börnum og frænd­börnum því ekk­ert var það sem hún ekki vildi gera fyrir krakk­ana sína.“

Þá segir hún að síð­ustu ár hafi verið erfið fyrir fjöl­skyldu hennar, er veik­indi Stein­unnar urðu meiri. „Hún barð­ist eins og ljón til síð­asta dags upp­full af hug­hreyst­ingum og hvatn­ingu til ann­arra og aðra eins seiglu hef ég ekki séð í nokk­urri mann­eskju. Viljinn til lífs­ins hélt henni hér hjá okkur þótt lík­am­inn væri löngu búinn að gef­ast upp.“

Að lokum skrifar Steinunn Ólína um skemmti­legar minn­ingar um liðnar gleði­stundir með svil­konu sinni. „Það er erfitt að skrifa að ég gleðst yfir því að hún þarf ekki að kvelj­ast meir og að hún fékk að fara. Kornung kona aðeins eldri en ég er dáin í blóma lífs­ins. Ég sakna þess­arar stór­vin­konu minnar, stunda þar sem við gróð­ur­settum tré fram á langar sum­ar­nætur, döns­uðum við Robbie Williams, syntum í sjó og röltum um borgir, fengum okkur kaffi og sígó og grenj­uðum úr hlátri. Elsku Steinunn, nú ertu lögð af stað í sálna­ferða­lagið mikla og ég veit þú finnur þér bústað þar sem allt er gott og fag­urt og engum er illt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins