„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Solaris fordæmir orðræðu Bjarna Ben: „Getur haft alvarlegar afleiðingar“

Solaris fordæmir orðræðu Bjarna Ben: „Getur haft alvarlegar afleiðingar“
Bjarni Bene­dikts­son Myndin er sam­sett

Solaris-hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi, for­dæmir orð­ræðu Bjarna Bene­dikts­sonar um Palest­ínu­fólk á Íslandi og mót­mæli þeirra við Aust­ur­völl.

Hjálp­ar­sam­tökin Solaris sendi frá sér yfir­lýs­ingu rétt í þessu þar sem orð­ræða utan­rík­is­ráð­herra Íslands, Bjarna Bene­dikts­sonar er for­dæmd. Eins og fjallað hefur verið um áður, skrif­aði utan­rík­is­ráð­herr­ann færslu á Facebook um helg­ina sem féll væg­ast sagt í grýtt­ann jarð­veg hjá flestum. Þar hneiksl­að­ist Bjarni á tjald­búð­unum sem örvænt­inga­fullir Palest­ínu­menn reistu fyrir nokkrum vegum, í veikri von um að hlustað yrði á þeirra beiðni um fjöl­skyldu­sam­ein­ingu ætt­ingja þeirra á Gaza. Í yfir­lýs­ingu stjórnar Solaris segir að orð­ræða vald­hafa ýti undir „hatur og ofbeldi í garð flótta­fólks.“

Þá segir einnig í yfir­lýs­ing­unni að Bjarni ýji að því að „lög­mæt og lýð­ræð­is­lega mik­il­væg mót­mæli Palest­ínu­fólks við þögn og aðgerð­ar­leysi ráð­herra séu tor­tryggi­leg. Það gerir hann meðal ann­ars með því að fjalla um mál­efni þeirra og skipu­lagða glæp­a­starf­semi í sömu andrá.“

Enn fremur segir í yfir­lýs­ing­unni að nýlega hafi sam­tök­unum borist hátt í 20 til­kynn­ingar um hat­urs­orð­ræðu gagn­vart hæl­is­leit­endum og að þró­un­ina alvar­lega og að vald­hafar ýti undir hana.

Hér má lesa yfir­lýs­ing­una í heild sinni:

Stjórn Solaris for­dæmir orð­ræðu vald­hafa sem ýtir undir hatur og ofbeldi í garð flótta­fólks.

Stjórn Solaris gera alvar­lega athuga­semd við þá orð­ræðu sem Bjarni Bene­dikts­son, utan­rík­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, við­hafði um Palest­ínu­fólk á Íslandi og mót­mæli þeirra við Aust­ur­völl um liðna helgi.

Á sama tíma og ráð­herra neitar að sinna opin­berum skyldum sínum með því að hunsa beiðni Palest­ínu­fólks um áheyrn vegna mála er tengj­ast sam­þykktum fjöl­skyldu­sam­ein­ingum Palest­ínu­fólks á Gaza beitir utan­rík­is­ráð­herra sér í valdi emb­ættis síns á opin­berum vett­vangi til þess að dreifa óhróðri um þegna í við­kvæmri stöðu.

Með orð­ræðu sinni ýjar utan­rík­is­ráð­herra að því að lög­mæt og lýð­ræð­is­lega mik­il­væg mót­mæli Palest­ínu­fólks við þögn og aðgerð­ar­leysi ráð­herra séu tor­tryggi­leg. Það gerir hann meðal ann­ars með því að fjalla um mál­efni þeirra og skipu­lagða glæp­a­starf­semi í sömu andrá. 

Þá er sér­stak­lega ámæl­is­vert að ráð­herra not­færi sér þjóð­ern­is­hreins­anir í Palest­ínu í þeim póli­tíska til­gangi að aug­lýsa til­raunir flokks síns til að lög­festa enn grimmari stefnu í mál­efnum flótta­fólks og aukið landamæra­eft­ir­lit sem mun fyrst og fremst koma niður á fólki á flótta.

Að und­an­förnu hafa Solaris sam­tökin orðið vör við aukna andúð, for­dóma og hatur í garð fólks á flótta, sér­stak­lega á sam­fé­lags­miðlum. Á fyrstu vikum 2024 hafa sam­tök­unum borist hátt í 20 til­kynn­ingar um hat­urs­orð­ræðu í garð flótta­fólks. Nýlega kærðu sam­tökin ein slík ummæli til lög­reglu og fleiri kærur eru í und­ir­bún­ingi. Um er að ræða alvar­lega þróun sem vald­hafar ýta undir og gefa lög­mæti með for­dóma­fullri orð­ræðu en slík orð­ræða hefur aukið vægi og meiri áhrif þegar hún kemur frá fólki í valda­stöðu og getur haft alvar­legar afleið­ingar. 

Nú reynir á að við sýnum í verki að við höfnum lág­kúru­legum til­raunum til að grafa undan lýð­ræð­inu,  stöndum með mann­rétt­indum og krefjum full­trúa um að sinna lög­mætum skyldum sínum og grípum inn í umræðu sem kyndir undir hatur og ofbeldi í garð jað­ar­settra ein­stak­linga og hópa.

Fyrir hönd stjórnar Solaris,
Sema Erla
for­maður

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins