„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

OLIFA – Ítölsk gæði í íslenskri mengun

OLIFA – Ítölsk gæði í íslenskri mengun
Veit­inga­stað­ur­inn OLIFA – Mynd: OLIFA

OLIFA – La Madre Pizza er veit­inga­staður sem var opn­aður árið 2022 og eru eig­endur stað­ar­ins þau Emil Hall­freðs­son og Ása María Reg­ins­dóttir. Eins og nafn stað­ar­ins gefur til kynna á þetta að vera pít­sa­staður. En við komum að því síðar.

Stað­irnir eru tveir tals­ins og er aðal­stað­ur­inn við Suð­ur­lands­braut á meðan það er lítið útibú í Krónunni í Skeif­unni. Verður það að telj­ast nokkuð athygl­is­verð nálgun fyrir stað í þessum stíl. Ekki sama ára sem ríkir inni í verslun Krón­unnar og inni á OLIFA við Suð­ur­lands­braut, svo mikið er víst.

And­rúms­loftið og stemn­ingin á aðal­staðnum er til fyr­ir­myndar. Snyrti­lega upp settur veit­inga­staður þar sem hátt er til lofts, stórir gluggar og bjart rými. Um leið og maður gengur inn skap­ast vænt­ingar um gæði mat­ar­ins. Hér er vandað til verks þegar kemur að hönnun. Í raun þá er það eina sem hægt er að setja út á varð­andi rýmið sjálft að útsýni frá staðnum, horft út um stóra glugga, er eitt leið­in­leg­asta bíla­stæði lands­ins. Stundum þurfa gestir að troða sér á milli bíla­lúða sem hafa lagt bílum sínum á gang­stéttum nærri OLIFA og ekki er gaman að þurfa ganga í gegnum meng­un­ar­ský til þess að kom­ast inn á veit­inga­stað.

Þjónusta er afbragðs­góð og í raun verður að hrósa staðnum sér­stak­lega fyrir að ráða senni­lega bestu unga þjóna sem hægt er að finna á land­inu. Hinir þjón­arnir eru einnig frá­bærir, en það er alltaf gaman að sjá ungt fólk sem hefur metnað fyrir vinnu sinni, sama hver hún er.

Þá er það mat­ur­inn.

Eins og ég gaf í skyn fyrr í text­anum á OLIFA að vera pít­sa­staður og hann er það. En samt ekki. Það er í raun erfitt að lýsa þeim pít­sum sem stað­ur­inn býður upp á, ein­fald­lega vegna þess að ekk­ert í lík­ingu við þessar pít­sur er að finna á land­inu. Brauðið er þykkt en létt á sama tíma. Áleggið er ofan á pít­s­unni frekar en hluti af henni, ef svo mætti segja. Þetta gefur pít­s­unum á staðnum óneit­an­lega heima­gerðan blæ. Ég hef smakkað fjórar mis­mun­andi pít­sur og allar mjög ólíkar. Kjöt­á­leggið sem er boðið upp á sér­stak­lega gott. Eina vanda­málið er að það ómögu­legt að halda á sneið­unum og það er örlítið krefj­andi að skera þær, en í stóra sam­heng­inu er það smá­at­riði. Þó ert vert að taka fram að vin­kona mín fékk sér kjúklinga­salat og fannst það ekki í sama gæða­flokki og pít­s­urnar.

Ég hvet alla mat­ar­á­huga­menn að prófa stað­inn einu sinni. Ég hef á til­finn­ingu að þetta sé ekki allra, þó að ég kunni vel að meta mat­inn. Ég held að ann­að­hvort elski fólk mat­inn eða hati hann.

Ég til­heyri fyrri hópnum.

Umfjöllun þessi birt­ist fyrst í tíma­rit­inu Vín og Mat sem hægt er að lesa hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Matargagnrýni

Blackbox – „Furðulega áhugavert, ég get ekki lýst því öðruvísi“
Mannlífið

Blackbox – „Furðu­lega áhuga­vert, ég get ekki lýst því öðru­vísi“

Í nýjum hlað­varps­þætti af Sósa Fylgir Með var veit­inga­stað­ur­inn Blackbox tek­inn fyrir en stað­ur­inn sér­hæfir sig í pít­sa­gerð. „Stað­ur­inn var að selja á því að það væri hægt að velja álegg sjálfur eins og er hægt á öllum pít­sa­stöðum nema þú gast horft á starfs­fólkið setja áleggið á pít­s­una eins og á Subway. Afsakið en mér finnst það glatað dæmi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður