„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dauðadeildaramman

Dauðadeildaramman

Belt­is­höggin dundu oft og tíðum á Velmu. Faðir hennar stjórn­aði heim­il­inu með harðri hendi og snemma byrj­aði Velma að hnupla hinu og þessu, enda ólst hún upp í fátækt. Með tím­anum tókst henni þó að kom­ast í náð­ina hjá föður sínum og með slægð tókst henni að vefja honum um fingur sér.

Velma var ekki öll þar sem hún var séð og því áttu margir eftir að kynn­ast þegar fram liðu stundir og ein­hverjir þeirra þurftu ekki að kemba hær­urnar.

Velma leit­aði ekki langt yfir skammt að fyrsta fórn­ar­lamb­inu.

Velma Barfield fædd­ist 23. októ­ber árið 1932 í dreif­býli Suður-Karólínu í Banda­ríkj­unum, en ólst upp í grennd við Fayetteville í Norður-Karólínu. Velma var næstelst barna Murphys og Lillie Bullard og elsta dóttirin. Murphy réð lögum og lofum á heim­il­inu og beitti ströngum reglum, en móðir Velmu var und­ir­gefin, lædd­ist með veggjum og bland­aði sér ekki í með­ferð heim­il­is­föð­ur­ins á börnum þeirra hjón­anna. Velma hafði þó ekki erft und­ir­gefni móður sinnar og fékk fyrir vikið ófá belt­is­höggin af hendi föður síns. Árið 1939 hófst skóla­ganga Velmu og fann hún í skól­anum ein­hverja hvíld frá þrúg­andi heim­ili sínu, en var úti­lokuð af hálfu sam­nem­enda sinna vegna fátæk­legs útlits.

Vegna þess hve Velma fann til fátæktar sinnar í skól­anum hóf hún að hnupla. Hún nældi sér í skot­silfur frá föður sínum, en færði út kví­arnar og var síðar staðin að hnupli frá öldruðum nágranna. En Velmu var ekki alls varnað og þegar hún var tíu ára sýndi hún ágæta hæfi­leika í körfuknatt­leik og lék með liði sem faðir hennar stýrði. Fyrir vikið varð Velma „upp­á­halds­dóttirin“ og með tíð og tíma og þó nokk­urri slægð tókst henni að fá frá föður sínum nán­ast allt það sem hugur hennar girntist, en síðar á lífs­leið­inni sak­aði hún hann um kyn­ferð­is­legt ofbeldi.

Ein­kunnir Velmu í fram­halds­skóla voru slakar, en hún eign­að­ist þar kærasta, Thomas Burke, svo ekki varð skóla­gangan alveg til einskis. Turtil­dúf­urnar fóru á stefnu­mót sam­kvæmt ströngum ákvæðum föður hennar og hitt­ust eins oft og við var komið, en að sjálf­sögðu með sam­þykki föður Velmu. Sautján ára ákváðu Velma og Thomas að segja skilið við frekara nám og ganga í hjóna­band, sem þau og gerðu þrátt fyrir and­mæli föður hennar.

Má segja að sú ákvörðun hafi komið föður Velmu í opna skjöldu og gerði hann allt sem hann gat til að koma í veg fyrir ráða­hag­inn. Þrátt fyrir and­mæli föður síns fór Velma sínu fram.

Heimavinnandi húsmóðir

Velma og Thomas eign­uð­ust tvö börn, Ronald Thomas og Kim, og Velma var heima­vinn­andi hús­móðir og naut hverrar stundar sem hún átti með börn­unum. Thomas vann ýmis störf og þrátt fyrir að þau hefðu ekki mikið fé milli hand­anna skorti þau ekk­ert. Velma kenndi börnum þeirra kristin gildi og hin unga, fátæka Burke-fjöl­skylda naut aðdá­unar vina og ætt­ingja. Var fjöl­skyldan af flestum þeim sem til þekktu talin til mik­illar fyr­ir­myndar og þá ekki síst hjónin ungu sem voru talin aldeilis aðdá­un­ar­verð í for­eldra­hlut­verk­inu. Þegar skóla­ganga barn­anna hófst lagði Velma sig fram um að taka þátt í lífi þeirra. Hún tók þátt í skóla­starfi eftir fremsta megni, gerð­ist sjálf­boða­liði í skóla­ferða­lögum og taldi ekk­ert eftir sér. En hún fann til ein­mana­leika þegar börnin voru í skóla og ákvað að fá sér vinnu til að fylla upp í tóma­rúmið og dreifa hug­anum.

Árið 1963 gekkst Velma undir leg­náms­að­gerð. Aðgerðin tókst vel en geðslag Velmu breytt­ist. Geð­sveiflur hennar urðu tíðar og bræðisköst algeng. Hún hafði áhyggjur af því að hún væri ekki eins eft­ir­sókn­ar­verð sem kona því hún gæti ekki eign­ast fleiri börn. Það var fleira sem Velmu gramd­ist og á meðal þess var útstá­elsi Thomasar. Hann eyddi löngum stundum utan heim­il­is­ins og um síðir komst Velma að því að hann var far­inn að halla sér að flösk­unni meira en góðu hófi gegndi. Það varð kornið sem fyllti mæl­inn og brestir komu í stoðir hjóna­bands­ins.

Árið 1965 lenti Thomas í bílslysi og fékk höf­uð­á­verka. Þaðan í frá fékk hann oft og tíðum höf­uð­verk og drykkja hans ágerð­ist. And­rúms­loftið á heim­il­inu ein­kennd­ist af rifr­ildi og deilum. Velma, yfir­buguð af streitu, var lögð inn á sjúkra­hús og henni gefið róandi lyf og vítamín. Eftir að hún kom heim að nýju jók hún smátt og smátt lyfja­neyslu sína og hljóp á milli lækna sem skrif­uðu upp á val­íum fyrir hana.

Dag einn þegar Velma kom heim úr vinn­unni kom hún að heim­il­inu í ljósum logum og Thomas fannst and­vana inni í svefn­her­bergi

Elds­voð­inn

Á sama tíma jókst áfeng­is­neysla Thomasar og sjúk­leg hegðun hans rak fjöl­skyld­una djúpt í fen upp­lausnar. Dag einn þegar Velma kom heim úr vinn­unni kom hún að heim­il­inu í ljósum logum og Thomas fannst and­vana inni í svefn­her­bergi og virt­ist sem reyk­eitrun hefði orðið honum að ald­urtila.

Sorg Velmu var skamm­líf og þrátt fyrir að heim­ilið eyði­legð­ist full­kom­lega í öðrum elds­voða skömmu síðar virt­ist hún hvorki vera buguð af sorg né full­kom­lega ráða­laus. Velma og börnin fluttu til for­eldra Velmu og Velma beið þar spennt eftir trygg­inga­bót­unum.

Í ljósi þess hve lítil áhrif elds­voð­inn og dauði Thomasar höfðu á Velmu, var ekki und­ar­legt að hún biði ekki boð­anna hvað nýtt hjóna­band áhrærði.

Skömmu eftir lát Thomasar kynnt­ist Velma ekkl­inum Jenning Barfield, en hann þjáð­ist meðal ann­ars af syk­ur­sýki og veiku hjarta. Þau gengu í hjóna­band en hjóna­bands­sælan varði ekki lengi og átti aukin lyfja­neysla Velmu stóran þátt í því. Skiln­aður var yfir­vof­andi enda nán­ast allt í molum í sam­lífi þeirra hjóna. En áður en til skiln­aðar kom, gaf hjarta Jennings sig og Velma virt­ist óhugg­andi; hafði misst tvo eig­in­menn, son­ur­inn var í hernum, faðir hennar með lungna­krabba og til að bæta gráu ofan á svart eyði­lagð­ist nýtt heim­ili hennar í elds­voða – enn og aftur.

Endurtekið efni

Velma flutti enn á ný heim til for­eldr­anna og skömmu síðar dró krabba­meinið föður hennar til dauða. Velma og Lillie, móðir hennar, rifust stöðugt og sum­arið 1974 var Lillie lögð inn á sjúkra­hús vegna alvar­legra kvið­verkja sem læknum tókst þó ekki að skil­greina. Eftir örfáa daga leið henni betur og hún sneri heim. Næstu jól var öll fjöl­skyldan saman komin, en skugga bar á jóla­gleð­ina því Lillie hafði áhyggjur af eilífum rukk­unum sem hún var að drukkna í. Þær voru til­komnar vegna bif­reiðar sem hún átti og hafði reyndar greitt að fullu.

Hún bað einn sona sinna að athuga málið, en innan nokk­urra daga tóku kvið­verkirnir sig upp aftur, verri en áður. Áður en son­ur­inn hafði kom­ist til botns í mál­inu var Lillie liðið lík. Árið 1975 var Velma dæmd til hálfs árs fang­els­is­vistar fyrir ávís­anafals, en af þeirri fang­els­is­dvöl fer ekki miklum sögum. Þegar hún losn­aði úr fang­elsi fékk hún starf við umönnun aldr­aðra hjóna, Montgomery og Dollie. Í jan­úar 1977 dó Montgomery, en Velma hélt áfram að sinna um Dollie. Í febr­úar lést Dollie í kjöl­far sárs­auka­fullrar maga­sýk­ingar.

Næsta starf Velmu fól í sér umönnun ann­arra aldr­aðra hjóna, Johns Henrys og eig­in­konu hans, Record, en Record hafði fót­brotnað og þurfti því sér­stakrar hjálpar við. Velma flutti því inn á heim­ili þeirra, en sam­skiptin ein­kennd­ust af sífelldu masi Record, sem fór afskap­lega mikið í taug­arnar á Velmu. Á meðal þess sem Dollie tal­aði um í tíma og ótíma var að fölsuð ávísun í hennar nafni hefði fund­ist í við­skipta­banka hennar. Hvað sem því leið þá fór John Henry að finna til slæmra kvið­verkja í apríl og um tveggja mán­aða skeið glímdi hann við alvar­lega maga­sýk­ingu. Að lokum höfðu veik­indin betur í þeirri glímu og John Henry and­að­ist í júní það ár.

Dularfullt símtal

Sama ár flutti Velma inn til Stuarts Taylor, ekkils sem hún hafði kynnst, en for­tíð hennar, lyfja­neysla og ávís­anafals gerði Stuart frá­hverfan hjóna­bandi. Skötu­hjúin eyddu miklum tíma í kirkju­tengt vafstur og á leið til einnar slíkrar sam­komu fékk Stuart heift­ar­legan maga­krampa sem fór versn­andi. Innan örfárra daga lést Stuart og ráð­þrota læknar mæltu með krufn­ingu.

Áður en nið­ur­staða krufn­ingar lá fyrir fékk Benson Phillips, rann­sókn­ar­lög­reglu­maður í Lum­berton, dul­ar­fullt sím­tal. Kona tjáði honum gráti næst að hún væri systir Velmu Barfield og full­yrti konan að Velma hefði myrt Stuart Taylor og fleiri. Forvitni Phillips var vakin. Læknar komust fljót­lega að þeirri nið­ur­stöðu að arsenik væri lík­leg­asta dán­ar­or­sök Stuarts, en þegar Velma var spurð út í málið var hún sak­leysið upp­málað.

En síðar fór að kvarn­ast úr vörn hennar og hún bug­að­ist. Að lokum ját­aði hún á sig morðin á Montgomery, John Henry og móður sinni og sagð­ist hafa viljað koma í veg fyrir að þau kæmust að því að hún hefði stolið frá þeim pen­ingum til að fjár­magna lyfjafíkn sína. Síðar ját­aði hún einnig á sig fleiri morð, þeirra á meðal morðin á Stuart Thomas og Jenning Barfield. Velma var dæmd til dauða og fékk við­ur­nefnið Dauða­deild­ara­mman, en hún var óþreyt­andi við að hjálpa sam­föngum sínum og gefa þeim ráð sem gerðu þeim kleift að aðlag­ast líf­inu í fang­els­inu. „Þegar ég geng inn í þetta her­bergi klukkan tvö í nótt verður það himna­hlið mitt,“ sagði Velma skömmu fyrir aftök­una, 2. nóv­em­ber 1984.

Hér má nálg­ast hlað­varps­út­gáfu frá­sagn­ar­innar um Velmu Barfield

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hlaðvörp

Sakamálið – 26. þáttur: Líkið var hlutað í „meðfærilega bita“
Menning

Saka­málið – 26. þáttur: Líkið var hlutað í „með­færi­lega bita“

Hvarf Trishu Autry árið 2000 var mikil ráð­gáta. Í ell­efu mán­uði biðu for­eldrar hennar á milli vonar og ótta. Óttinn átti rétt á sér vonin ekki. Þegar lík­ams­leifar Trishu fund­ust báru þær þess merki að hún hefði verið bútuð niður í „með­færi­lega bita“. Síðustu stundir Trishu í jarð­líf­inu urðu að lokum nokkuð ljósar og böndin bár­ust að manni sem var...
Sakamálið – 25. þáttur: Morðkvendið sem fór að dorga
Menning

Saka­málið – 25. þáttur: Morð­kvendið sem fór að dorga

Óhætt er að segja að Darlene Gentry hafi verið í djúpum skít þegar hringur lög­regl­unnar var far­inn að þrengj­ast um hana vegna dauða eig­in­manns hennar, Keith, sem að hennar sögn hafði verið skot­inn af inn­brots­þjófi. Lögreglu þótti margt loðið og ótrú­legt í frá­sögn Darlene, en skorti þó bein­harðar sann­anir. Eitt var það sem sár­lega skorti við rann­sókn máls­ins, en það...
Sakamálið – 23. þáttur: Tuttugu ára prísund hefðarkonunnar
Menning

Saka­málið – 23. þáttur: Tuttugu ára prís­und hefð­ar­kon­unnar

Lafði Elizabeth Cathcart taldi sig hafa fundið ást­ina þegar hún kynnt­ist írskum karl­manni, Hugh Maguire að nafni. Elizabeth keypti handa honum ofursta­tign og nán­ast bjarg­aði honum úr ræs­inu. Þau gengu síðar í hjóna­band, en Hugh reynd­ist hins vegar vera úlfur í sauð­ar­gæru og líf Elizabeth varð að hel­víti. En það gekk erf­ið­lega fyrir Hugh að brjóta eig­in­konu sína til hlýðni...
Sakamálið – 23. þáttur: Skapbráði verkamaðurinn í Bournemouth
Menning

Saka­málið – 23. þáttur: Skap­bráði verka­mað­ur­inn í Bournemouth

Samuel Elkins braut blað í sögu Bournemouth á Englandi. Reiði vegna brott­rekstrar olli því að hann ban­aði yfir­manni sínum. Lög­reglan átti erfitt með að trúa játn­ingu Elkins, enda höfðu smá­glæpir verið það eina sem hún hafði þurft að glíma við í kjör­dæm­inu. Við heyrum nú sög­una um skap­bráða verka­mann­inn Samuel Elkins … Hægt er að hlusta á allt hlað­varpið hér
Sakamálið – 22. þáttur: Skötuhjúin ósvífnu, Bonnie og Clyde
Menning

Saka­málið – 22. þáttur: Skötu­hjúin ósvífnu, Bonnie og Clyde

Sá ævin­týra­ljómi sem lék um Bonnie og Clyde í upp­hafi sam­eig­in­legrar sögu þeirra máð­ist skjótt. Róm­an­tíkin sem almenn­ingur í Banda­ríkjum kreppu­ár­anna tengdi við þau föln­aði og eftir stóðu for­hertir morð­ingjar. Það sem hófst sem ævin­týri ungs ást­fang­ins pars breytt­ist í flótta undan vörðum lag­anna og í kjöl­farið hrúg­uð­ust líkin upp. Hlustaðu á allt hlað­varpið hér.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza