„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ruðningshaugar valda víða óþægindum í Reykjavík: „Orðið svolítið mikið núna og þetta tekur tíma“

Ruðningshaugar valda víða óþægindum í Reykjavík: „Orðið svolítið mikið núna og þetta tekur tíma“
Stærð­ar­innar snjó­skafl var ruddur upp á gang­stétt við Hamra­hlíð, stein­snar við bið­skýli Strætó. Um göt­una fara hund­ruð nem­enda Mennta­skól­ans í Hamra­hlíð. Mynd/Lára Garð­ars­dóttir

Víða um Reykja­vík­ur­borg er erfitt fyrir gang­andi veg­ar­endur að kom­ast leiða sinna vegna ruðn­ings­hóla sem mynd­ast hafa að und­an­förnu.

Í Facebook-hópi íbúa Breið­holts birt­ist nýverið ljós­mynd sem sýnir afleit vinnu­brögð starfs­manns Reykja­vík­ur­borgar en þar sést hvar snjó­haug hefur verið rutt inn í und­ir­göng en mynd­ina má sjá hér fyrir neðan:

Þetta getur ekki talist til góðra vinnu­bragða?

Víða má sjá heilu fjöllin af snjó sem búin hafa verið til er götur hafa verið ruddar að und­an­förnu en eftir standa fjöllin og blokka bæði sýn öku­manna sem eru að keyra inn á götu, og neyðir gang­andi veg­far­endur til þess að ganga út á götu með til­heyr­andi slysa­hættu.

Hér má sjá nokkur dæmi:

Snjó­skafl við bíla­stæði í Vegmúla. Mynd/Lára Garð­ars­dóttir
Hátt í fjög­urra metra háum skafli hefur verið rutt í Ármúla yfir gang­stétt. Mynd/Lára Garð­ars­dóttir
Skaflinn er svo hár og skyggir svo mikið á að ógjörn­ingur er að sjá aðsvíf­andi umferð nema fara út á akbraut­ina. Mynd/Lára Garð­ars­dóttir

Eiður Fannar Erlends­son, sem stýrir vetr­ar­þjón­ustu Reykja­vík­ur­borgar segir að reynt sé að keyra með snjó­skafla sem mynd­ast á opin svæði en þetta taki allt tíma og sé dýrt. „Við reynum að keyra með þetta eins og hægt er, sem stystu leið inn á opin svæði sem eru á opnu borg­ar­svæði. En svo erum við líka með mót­töku á snjó uppi á Sæv­ar­höfða.“ Varðandi ruðn­ing­inn í und­ir­göng­unum í Breið­holt­inu sagði Eiður að það sé löngu búið að laga það og varð­andi dæmin hér fyrir ofan, sagð­ist hann ekki alveg vera með á hreinu hvaða svæði væri átt við og spurði hvort það geti verið að haug­arnir séu komnir til vegna mokst­urs einka­að­ila út af bílaplani, sem stundum sé málið. „Það er hell­ings vinna í gangi en þetta er orðið svo­lítið mikið núna og þetta tekur tíma. Oft er erfitt að kom­ast með tækin þegar það er umferð í gangi og svona, það hjálpar ekki. Og svo er oft erfitt að vera með mikla útgerð í gangi á nótt­unni því þá er kvartað yfir hávaða. Þannig að það er ekki alltaf allt sem vinnur með okkur.“

Aðspurður hvort snjóað hefði meira í vetur en síð­asta vetur var Eiður ekki alveg á því en að það hefði snjóað minna í einu en yfir lengra tíma­bil. „Síðasta vetur snjó­aði miklu meira á skemmri tíma og setti mjög margt úr skorðum og það var mikil ófærð á götum. Núna hefur snjóað miklu minna magni en yfir lengra tíma­bil. Og það hefur alveg gengið vel að halda sam­göngum góðum og færðin er alveg ágæt en svona eins og þú segir, þá eru hrúgur og ruðn­ingar víða fyrir en það ættu allir að geta kom­ist leiða sinna samt. Það er vissu­lega óþæg­indi hér og þar en færðin yfir það heila ætti að vera góð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjavíkurborg

Egill hefur litla trú á nýja meirihlutanum: „Borgarstjórnin er ekki sérlega vel mönnuð“
InnlentReykjavíkurborg

Egill hefur litla trú á nýja meiri­hlut­anum: „Borg­ar­stjórnin er ekki sér­lega vel mönnuð“

Egill Helgason hefur litla trú á nýjum borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­anum sem kynnt verður í dag. Fjöl­miðla­mað­ur­inn víð­lesni, Egill Helgason skrif­aði Facebook-færslu í gær­kvöldi þar sem hann óskar nýjum meiri­hluta í borg­inni vel­farn­aðar en seg­ist um leið ekki hafa mikla trú á henni. Segir hann að borg­ar­stjórnin sé ein­fald­lega ekki vel mönnum og að hæfi­leika­fólk lað­ist ekki að setu í borg­inni. Spáir hann...
Kryddpíurnar í borginni byrjaðar að skrifa sáttmála: „Þetta eru auðvitað bara lykiláhersluatriði“
Innlent

Kryddp­í­urnar í borg­inni byrj­aðar að skrifa sátt­mála: „Þetta eru auð­vitað bara lyk­ilá­herslu­at­riði“

Oddviti Pírata í Reykja­vík­ur­borg, Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, segir að meiri­hluta­við­ræður gangi vel á milli þeirra fimm stjór­mála­flokka sem rætt hafa saman und­an­farið en þær hafa haldið áfram í dag. Dóra segir að fundað hafi verið til 18 í dag en haldið verður áfram á morgun. Segist hún í sam­tali við RÚV vona að það dragi til tíð­inda á allra næstu...
Árshátíð borgarstjórnar kostaði Reykvíkinga tæpar tvær milljónir króna
InnlentReykjavíkurborg

Árshátíð borg­ar­stjórnar kost­aði Reyk­vík­inga tæpar tvær millj­ónir króna

Árshátíð borg­ar­stjórnar Reykja­víkur þann 11. jan­úar síð­ast­lið­inn kost­aði borg­ar­búa rúm­lega 1,8 millj­ónir króna. Árshátíð borg­ar­stjórnar Reykja­víkur var haldin með pompi og prakt á Kjar­vals­stöðum þann 11. jan­úar síð­ast­lið­inn en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá borg­inni voru 91 gestur á hátíð­inni. Borgaði hver um sig 9.500 krónur í aðgangs­eyri, jafnt makar sem aðrir gestir. Eft­ir­stand­andi kostn­aður vegna hátíð­ar­innar hljóð­aði upp á 1.806.301 króna...
Sanna útilokar ekki borgarstjórastólinn: „Bara eitt skref í einu“
Innlent

Sanna úti­lokar ekki borg­ar­stjóra­stól­inn: „Bara eitt skref í einu“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir seg­ist taka eitt skref í einu en úti­loki ekki borg­ar­stjóra­stól­inn. Nú þegar Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóri kom öllum að óvörum og sleit meiri­hluta­sam­starfi sínu í borg­ar­stjórn, eru ýmsar þreif­ingar í gangi meðal flokk­anna í borg­inni. Nokkuð ólík­legt verður að telj­ast að Fram­sókn­ar­flokkur Einars verði í næsta meiri­hluta, eftir að Inga Sæland lýsti því yfir að Flokkur fólks­ins hefði...
Glittir í aðgerðaráætlun varðandi heimilisleysi: „Borgin er í mikilli skuld í þessum málaflokki“
InnlentReykjavíkurborg

Glittir í aðgerð­ar­á­ætlun varð­andi heim­il­is­leysi: „Borgin er í mik­illi skuld í þessum mála­flokki“

Stefán Pálsson segir Reykja­vík­ur­borg í mik­illi skuld við heim­il­is­lausa en nú glitti í betri tíð í þeim mála­flokki. Sagn­fræð­ing­ur­inn og vara­borg­ar­full­trú­inn Stefán Pálsson segir að borg­ar­stjórn Reykja­víkur sé við það að sam­þykkja aðgerð­ar­á­ætlun í mál­efnum heim­il­is­lausra. Segir hann borg­ina vera í milli skuld við mála­flokk­inn en að gangi áætl­unin eftir verði staðan miklu betri í náinni fram­tíð. „Í borg­ar­stjórn erum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins