„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hlaðvarpsþáttur styrkir leitina að morðingja Rachel Morin: „Við ætlum að snúa við hverjum steini“

Hlaðvarpsþáttur styrkir leitina að morðingja Rachel Morin: „Við ætlum að snúa við hverjum steini“
Blessuð sé minn­ing Rachel Morin Mynd: Trausti Hafsteinsson

Verð­launafé í leit­inni að morð­ingja Rachel Morin, hefur verið hækkað um 5.000 doll­ara, eða tæp­lega 691.000 krónur. Nú er heildin komin upp í 35.000 doll­ara, eða ríf­lega 4,8 millj­ónir króna.

Sjá einnig: Fimm barna móðir myrt á vin­sælli göngu­leið: „Ég elska Rachel, ég myndi aldrei gera henni neitt“

Viðbótin í verð­launa­féð kemur frá hlað­varps­þætt­inum Mile hig­her, sem sér­hæfir sig í sönnum saka­málum en það eru hjónin Josh Thomas og Kendall Rae, sem stjórna þætt­inum.

„Við erum gríð­ar­lega þakk­lát Mile Higher hlað­varp­inu fyrir þeirra rausn­a­lega fram­lag í Rachel Morin Reward sjóð­inn,“ sagði lög­maður fjöl­skyldu Rachel, Randolph Rice, í yfir­lýs­ingu. „Þessi aukn­ing á fjár­munum táknar sam­stöðu sam­fé­lags­ins í linnu­lausri leit þess að rétt­læti fyrir Rachel Morin. Það sendir skýr skila­boð um að við ætlum að snúa við hverjum steini í við­leitni okkar til að finna svör og draga þann sem ber ábyrgð­ina fyrir dóm­stóla.“

Nú eru liðnir næstum því hálft ár frá því að hin fimm barna móðir í Maryland, fannst myrt á vin­sælli göngu­leið, nærri heim­ili sínu í Harford-sýslu. Lög­reglan á svæð­inu birti mynd­skeið úr örygg­is­mynda­vél þar sem maður sást yfir­gefa íbúð í Los Angeles en talið er að mað­ur­inn sé morð­ingi Morin. Maðurinn, sem ekki hefur verið hægt að greina hver er, yfir­gaf téða íbúð eftir að hafa nauðgað ungri stúlku þar, en DNA frá þeim glæpa­vett­vangi, pass­aði við morð­vett­vang­inn í Maryland.

Sjá einnig: Morðið á Rachel Morin – Lög­reglan birtir mynd­skeið af morð­ingj­anum

Enn hefur eng­inn verið hand­tek­inn, grun­aður um aðild að morð­inu en Jeff Gahler, lög­reglu­stjóri Harford-sýslu, sagði við fjöl­miðla að málið væri langt í frá orðið kalt, og að menn hans hefðu fylgt eftir yfir þús­und ábend­ingum frá því í októ­ber.

CBS-News fjall­aði um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“