„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Menn sem unnu að gerð varnargarðanna sluppu með skrekkinn í morgun: „Við vorum heppnir núna“

Menn sem unnu að gerð varnargarðanna sluppu með skrekkinn í morgun: „Við vorum heppnir núna“
Eldgosið séð frá Jóni Ágústi í morgun. Mynd: Jón Ágúst

Starfs­maður sem vinnur á jarð­ýtu við gerð varn­ar­garða við Svarts­engi, seg­ist hepp­inn að eld­gosið í morgun hafi ekki komið upp á sama stað og síð­ast. Ein­ung­ist liðu um 10 mín­útur frá því að hann fékk boð um rým­ingu og þar til eld­gosið hófst.

Jón Ágúst Gunn­ars­son, sem starfað hefur að und­an­förnu á jarð­ýtu við að koma upp varn­ar­görðum við Svarts­engi, og sam­starfs­menn hans, sluppu með skrekk­inn í morgun þegar sjötta eld­gosið á þremur árum, hófst á svæð­inu.

„Við fáum þessa til­kynn­ingu um að það eigi að rýma og það líða svona 10-15 mín­útur frá því að við fáum hringin­una og þar til byrjar að gjósa, þetta ger­ist bara á engri stundu,“ segir Jón Ágúst í sam­tali við Mannlíf. Aðspurður hvort honum hafi upp­lifað sig vera í hættu svar­aði Jón því neit­andi. „Upp­lifunin var bara allt í lagi, af því að þetta var svo langt frá en ef það hefði gosið á þeim stað sem það gaus síð­asta, þá hefði fólki brugðið mikið. Af því að tím­inn var svo knappur. Þú sérð að við vorum rétt búnir að keyra vél­arnar á stað­inn sem við leggjum yfir­leitt, til að fá olíu, sem er rétt um sirka 100 metra frá gígnum sem var síð­ast. Ef það hefði gosið þar aftur, hefði það verið svaka­legt. Maður hugsar alltaf, „við vorum heppnir núna“, það er bara svo­leiðis en þetta fór vel.“

Mannlíf spurði Jón Ágúst hvort jarð­ýtu­menn­irnir séu ekk­ert smeykir þegar þeir eru á svæð­inu við vinnu. „Nei, nei, eins og þetta hefur verið þá hefur verið svo langur tími, aðdrag­and­inn að þessu, með skjálftum og svo­leiðis. En kannski eftir á núna, sko við dól­uðum okkur bara í róleg­heit­unum eins og við eigum að gera, út úr þessu og maður býst ekki við þessu í bak­sýn­is­spegl­inum tíu mín­útum seinna.“ Jón Ágúst segir að aðdrag­and­inn að fyrri gos­unum hafi verið mun lengri eða frá tveimur klukku­tímum og til sex.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins