Umdeildur landsleikur við Ísrael verður leikinn 21. mars.
Hópur fólks hefur blásið til undirskriftasöfnunar þar sem KSÍ er hvatt til þess að aflýsa landsleik A-landsliðs karla við Ísrael í umspili fyrir EM í fótbolta. Myndi Ísland aflýsa leiknum ætti Ísland ekki möguleika að komast á lokakeppni EM. „Hér eru íslenskar gæsalappir“
„Til stendur að karlalandslið Íslands í knattspyrnu spili við Ísrael í umspilsleik um sæti í lokakeppni EM 2024 þann 21. mars. Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur úrskurðað að það sé rökstuddur grunur um að Ísrael stundi þjóðarmorð á Gaza í Palestínu. Því skorum við á stjórn Knattspyrnusambands Íslands að taka afstöðu gegn þjóðarmorði og aflýsa fyrirhuguðum landsleik. Þannig sendum við skýr skilaboð um að almenningur á Íslandi stendur gegn morðum á saklausu fólki á Gaza og Vesturbakkanum í Palestínu. Í ljósi þess að stjórn KSÍ ákvað árið 2022 að ekkert íslenskt knattspyrnulandslið myndi leika við landslið frá Rússlandi meðan á hernaði Rússa í Úkraínu stæði er eðlileg krafa að farið verði í sömu aðgerðir nú.“ segir í yfirlýsingu hópsins en stendur til að afhenta listann á aðalfundi KSÍ sem fer fram 24. febrúar.
Mikil umræða hefur farið fram í knattspyrnuheiminum á Íslandi hvort að réttlætanlegt sé að keppa við Ísrael í ljósi þess að KSÍ gaf út þá yfirlýsingu að Íslandi myndi ekki keppa við Rússland meðan innrás þeirra í Úkraínu stæði yfir. Tæplega 30 þúsund Palestínumenn hafa verið drepnir af hersveitum Ísraels á Gaza síðan í október. Þá hafa 12 knattspyrnusambönd kallað eftir því að FIFA og UEFA setji Ísrael í bann líkt og var gert við Rússland. Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, hefur sagt að það hafi ekki verið rætt innan KSÍ að keppa ekki við Ísrael.




















Athugasemdir