„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Einar Þór opnar sig um ömmu sína: „Hún afskrifaði mig vegna þess að ég var hommi“

Einar Þór opnar sig um ömmu sína: „Hún afskrifaði mig vegna þess að ég var hommi“

Einar Þór Jónsson fram­kvæmda­stjóri HIV Íslands var gestur í síð­deg­is­út­varpi Rásar 2 en hann er nýkom­inn heim frá Kenýa og ræddi við þátta­stjórn­endur um ferð­ina. Einar segir að ferðin hafi verið skemmti­ferð en jafn­framt til að skoða eigin tengsl við Kenýa, HIV og hjálp­ar­starf.

Aðspurður um tengsl sín við Kenýa segir Einar Þór:

„Móð­ur­amma mín, Margrét Hjálmtýrs­dóttir, sem var mjög sér­stakur karakter. Hún átti bara eitt barn, mömmu mína, sem dó ung. Við erum bara tvö á lífi af systkin­unum; ég og systir mín. Afkom­endur hennar. Það er kannski löng saga að segja frá henni, Margréti Hjálmtýrs­dóttur, en í byrjun tíunda ára­tug­ar­ins fyrir rúmum 30 árum fór hún á stað að gefa eigur sínar til hjálp­ar­starfa. Hún stendur fyrir bygg­ingu á mjög stórri kirkju þarna úti í Pokot í Kenýa. Hún byggði líka skóla sem heitir Mar­grét­ar­skóli og lagði vatns­leiðslur og gerði gríð­ar­lega mynd­ar­lega hluti.“

Þátta­stjórn­endur spyrja hvers vegna Kenýa hafa orðið ofan á og Einar Þór telur tengslin fólgin í Kristni­boða­sam­band­inu hér heima.

Einar Þór útskýrir að ferðin sem var farin í byrjun jan­úar á þessu ári, hafi verið í sam­floti með fólki frá Kristi­boða­sam­band­inu og hann hafi gist á þeirra vegum.

„Ég fékk að skoða kirkj­una og skól­ann sem Margrét amma lét byggja,“ útskýrir Einar og segir að minn­ing hennar sé heiðruð. „Það var bara eins og hún væri í dýr­linga­tölu.“

Margrét Hjálmtýs­dóttir lést árið 2006. Mikilli hátíð­ar­messu var slegið upp í kirkj­unni, við komu Einars sem segir frá að hann hafi haldið minn­inga­ræðu um hana og verið leystur út með gjöfum.

Andleg upplifun

Einar Þór lýsir því hvernig nátt­úran, umhverfið og fólkið hafi haft á hann mikil áhrif og hann farið að hugsa. „Það var þannig með hana Margréti Hjálmtýrs­dóttur, sem ég minn­ist í raun og veru sem ömmu minnar. Ég er búinn að fyr­ir­gefa henni allt. Hún afskrif­aði mig vegna þess að ég var hommi með HIV. Við töl­uðum ekk­ert saman síð­ustu tutt­ugu árin áður en hún dó – Því miður,“ segir Einar sem lýsir upp­lifun­inni á að vera kom­inn til Kenýa.

„Hún gerði svo sann­ar­lega gagn í sínu lífi. Mjög ein­stök kona og sterk. Mjög ákveðin og hörð. Mjög sjálfsör­ugg,“ segir Einar Þór bætir við að hún hafi kennt honum gríð­ar­lega margt. Enda átt fjöl­skrúð­aða ævi.

„Svo fyrir mig var þetta [innsk. blm. ferðin] ákveðið upp­gjör,“ segir Einar Þór og lýsir því hvernig hún hafi sótt á hann í draumum og huga meðan hann var í ferð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins