„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sameiginlegt ákall til íslenskra stjórnvalda: „Stríðið á Gaza er stríð gegn börnum“

Sameiginlegt ákall til íslenskra stjórnvalda: „Stríðið á Gaza er stríð gegn börnum“
Börn á Gaza, slösuð á sál og lík­ama. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Full­trúar stærstu hjálp­ar­sam­taka Íslands sendu rétt í þessu frá sér sam­eig­in­legt ákall til Gaza.

Frétta­til­kynn­ing barst fjöl­miðlum rétt í þessu frá full­trúum helstu hjálp­ar­sam­taka Íslands en þar er um að ræða sam­eig­in­legt ákall þeirra sam­taka, til stjórn­valda vegna ástands­ins á Gaza.

„Við sem veitum mann­úð­ar­sam­tökum á Íslandi for­ystu köllum eftir sterk­ari við­brögðum íslenskra stjórn­valda vegna átak­anna á Gaza. Stjórn­völd verða að nýta allar mögu­legar leiðir, rödd og krafta til að þrýsta á um var­an­legt vopna­hlé og virð­ingu fyrir mann­rétt­indum og mann­úð­ar­lögum, sem eru fótum troðin fyrir allra augum.“ Þannig hefst frétta­til­kynn­ing sam­tak­anna. og hún heldur áfram:

„Stríðið á Gaza er stríð gegn börnum, eng­inn staður í heim­inum er þeim jafn hættu­legur. Nær­ing­ar­skortur blasir við, vatns­skortur er nær alger og far­sóttir yfir­vof­andi.  Samkvæmt alþjóð­legum mann­úð­ar­lögum eiga almennir borg­arar alltaf rétt á mann­úð­ar­að­stoð og vernd í vopn­uðum átökum en öllum er ljóst að þessu er ekki fyrir að fara. Stríð­andi fylk­ingar virða í engu mann­rétt­indi íbúa svæð­is­ins og líf þeirra mun aldrei verða samt aftur, lifi þeir af. Eyði­legg­ingin á Gaza er alger og hvergi er skjól fyrir almenna borg­ara.“

Samtökin segja enn­fremur að aðgerða­leysi ríkja heims­ins vegna átak­anna á Gaza grafi undir lögum og reglum sem gilda um mann­úð­ar­að­stoð í stríðum.

„Þeim lögum og reglum sem gilda um mann­úð­ar­að­stoð á stríðs­tímum var komið á vegna skelfi­legra átaka, þar sem almennir borg­arar féllu í millj­ón­a­tali. Aðgerð­ar­leysi ríkja heims vegna átak­anna á Gaza grefur undan þessum lögum og það skiptir ekki ein­ungis máli fyrir fólkið í Palest­ínu, heldur fyrir heim­inn allan. Spyrja verður um afleið­ingar þessa, hvaða mörk setur alþjóða­sam­fé­lagið í átökum  sem þessum og hvernig á að fram­fylgja þeim? Hvað ger­ist þegar almennir borg­arar, þar með talin börn, eiga sér ekk­ert skjól og fá enga hjálp?“

 Að lokum ítreka sam­tökin óskir sínar um að stjórn­völd á Íslandi beiti sér af öllu afli á alþjóða­vett­vangi til að þrýsa á um eft­ir­far­andi:

  • Var­an­legt vopna­hlé.
  • Öruggan og óhindr­aðan flutn­ing hjálp­ar­gagna inn á Gaza.
  • Frjálsa för íbúa Gaza og öruggt aðgengi að hjálp­ar­gögnum og þjón­ustu.
  • Upp­bygg­ingu inn­viða sem tryggja hreint vatn, frá­veitu, heil­brigð­is­þjón­ustu og nær­ingu.
  • Umsvifa­lausa og skil­yrð­is­lausa frelsun allra gísla á Gaza.
  • Áfram­hald­andi fjár­veit­ingar til hjálp­ar­stofn­ana á Gaza, þar með talið Palest­ínu­flótta­manna­að­stoð­ar­innar (UNRWA).

 Undir frétta­til­kynn­ing­una skrifa eft­ir­far­andi:

Birna Þór­ar­ins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri UNICEF á Íslandi

Bjarni Gíslason, fram­kvæmda­stjóri Hjálp­ar­starfs kirkj­unnar

Hjalti Skaale Glúmsson, fram­kvæmda­stjóri ABC barna­hjálpar

Kristín Hjálmtýs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Rauða kross Íslands

Stella Sam­ú­els­dóttir, fram­kvæmda­stýra UN Women Ísland

Tótla I. Sæmunds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Barna­heilla – Save the Children á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stríðsátök

Zelensky til Aðalsteins: „Þú mátt segja mér frá því og ég skal svo ræða það við forsætisráðherrann“
InnlentStríðsátök

Zelensky til Aðal­steins: „Þú mátt segja mér frá því og ég skal svo ræða það við for­sæt­is­ráð­herr­ann“

Volody­myr Zelensky Úkra­ínu­for­seti seg­ist ekki vera búinn að ræða við Bjarna Bene­dikts­son um áfram­hald­andi við­skipti Íslands við Rúss­lands í gegnum Belarús. Úflutn­ings­bann til Rúss­lands er í gildi hér á landi vegna stríðs­ins í Úkraínu. Vand­ræða­leg upp­á­koma varð á sam­eig­ini­legum blaða­manna­fundi tengdum þingi Norð­ur­landa­ráðs í morgun þegar Aðal­steinn Kjart­ans­son, blaða­maður á Heim­ild­inni spurði gátt­aðan Zelensky spurn­ingar sem kom sér illa fyrir...
Dr. Gilbert birtir lista yfir vopn sem Bandaríkin senda Netanyahu: „Hættið að vopna Ísrael strax!“
HeimurStríðsátök

Dr. Gilbert birtir lista yfir vopn sem Banda­ríkin senda Net­anyahu: „Hættið að vopna Ísrael strax!“

Dr. Mads Gilbert hvetur til þess að þjóðir heims þrýsti á að Banda­ríkin hætti að senda Ísraelum vopn. Í nýlegu mynd­skeiði sem norski lækn­ir­inn og mann­úð­ar­fröm­uð­ur­inn Dr. Mads Gilbert, birtir hann lista yfir þau vopn sem Banda­ríkin hefur sent Ísrael frá 7. októ­ber í fyrra og hvetur þjóðir heims til að þrýsta á Banda­ríkin að hætta að senda vopnin til...
Ísraelsher gerði árás á friðargæsluliða í Líbanon: „Þetta voru ekki mistök og ekki slys“
HeimurStríðsátök

Ísra­els­her gerði árás á frið­ar­gæslu­liða í Líbanon: „Þetta voru ekki mis­tök og ekki slys“

Ísra­els­her særði tvo ítalska frið­ar­gæslu­liða í árás á bæki­stöð þeirra í Suður-Líbanon í gær. Kína er meðal þeirra ríkja sem for­dæma árás­irnar. Ísra­elskar her­sveitir hafa beitt sér ólög­lega með því að skjóta á bæki­stöðvar sem frið­ar­gæslu­liðar Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNIFIL) nota í Líbanon, að sögn ítalska varn­ar­mála­ráð­herr­ans Guido Crosetto, sem for­dæmdi árás­ina sem mögu­legan „stríðs­glæp“. „Þetta voru ekki mis­tök og ekki...
Persaflóaríki þrýsta á Bandaríkin að koma í veg fyrir árásir Ísrael á olíusvæði Írans
Heimur

Persaflóa­ríki þrýsta á Banda­ríkin að koma í veg fyrir árásir Ísrael á olíu­svæði Írans

Á meðan ríki við Persaflóa bíða við­bragða Ísraels við eld­flauga­árás Írans í síð­ustu viku, hafa þrír heim­ild­ar­menn sagt Reuters-frétta­stof­unni að Persaflóa­ríki séu að beita sér fyrir því að Banda­ríkin komi í veg fyrir að Ísraelar ráð­ist á olíu­svæði Írans vegna áhyggja af því að þeirra eigin olíu­verk­smiðjur gætu orðið fyrir árásum frá stuðn­ings­hópum Írans ef stríðið stig­magn­ast. Löndin, þar á...
Norskur læknir minnist tveggja sem létust í árás Ísraela: „Þeir drápu hana með köldu blóði“
HeimurStríðsátök

Norskur læknir minn­ist tveggja sem lét­ust í árás Ísraela: „Þeir drápu hana með köldu blóði“

Norski lækn­ir­inn Mads Gilbert er staddur í Suður-Líbanon þar sem hann starfar á sjúka­húsi og minn­ist sér­stak­lega tveggja sjúk­linga sem hann missti í gær, nú þegar ár er liðið frá því að þjóð­ar­morð Ísraela hófst á Gaza. Dr. Mads Gilbert hefur í fjöldi ára vakið athygli á hrylli­legri með­ferð ísra­el­skra stjórn­valda á Palest­ínu­mönnum en hann hefur starfað sem læknir á...
Illugi skýtur á Bjarna Benediktsson eftir nýjustu stríðglæpi Ísraela: „Sagðirðu árás?“
InnlentStríðsátök

Illugi skýtur á Bjarna Bene­dikts­son eftir nýj­ustu stríð­glæpi Ísraela: „Sagðirðu árás?“

Illugi Jök­uls­son skýtur fast á Bjarna Bene­dikts­son í nýrri Facebook-færslu um stríðs­glæpi Ísra­els­manna. Fjöl­miðla­mað­ur­inn Illugi Jök­uls­son skrif­aði stutta en firn­ar­sterka Facebook-færslu í morgun þar sem hann segir frá nýj­ustu morðum Ísra­els­hers í Líbanon og á Gaza en í gær voru 12 börn drepin í Khan Younis á Gaza. Skýtur hann svo fast á Bjarna Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra sem í byrjun nóv­em­ber...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins