„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Skipulagðir glæpahópar nýta sér neyð flóttafólks á Íslandi: „Það eru mjög krítískir tímar“

Skipulagðir glæpahópar nýta sér neyð flóttafólks á Íslandi: „Það eru mjög krítískir tímar“
Karl Steinar Valsson Mynd: Mbl.is-skjáskot

Glæpa­hópar nýta sér neyð flótta­fólks á Íslandi, að sögn Karls Steinars Vals­sonar yfir­lög­reglu­þjóns.

Karl Steinar Valsson yfir­lög­reglu­þjónn, sem stjórnar öryggis- og grein­in­ar­sviði rík­is­lög­reglu­stjóra, er gestur Dagmála hjá Morg­un­blað­inu og mbl.is í dag en þar segir hann meðal ann­ars frá starf­semi skipulagra glæpa­hópa hér á landi. Að hans sögn eru um tutt­ugu þannig glæpa­hópar starf­andi á Íslandi en í þeim eru hund­ruð ein­stak­linga. Eitt af því sem glæpa­hóp­arnir haf­ast við er að „hjálpa“ flótta­fólki að kom­ast til Íslands en um að ræða víð­tæka starf­semi, sem þekkt sé um alla Evrópu.

Segir Karl Steinar að glæpa­hópar hafi verið snöggir til að nýta sér neyð flótta­fólks, þegar þeim fjölg­aði snögg­lega 2014. „Brota­hóp­arnir voru mjög fljótir, í kringum 2014, þegar fólks­flutn­ingar byrja til Evrópu, að láta borga sér fyrir að koma þeim til ein­hverra Evr­ópu­landa,“ sagði Karl Steinar í við­tal­inu og bætti við: „Allt sem þeir geta náð í fjár­muni fyrir, gera þeir. Þannig að það skiptir ekki máli hvort það sé fíkni­efna­þáttur eða smygl á fólki.“

Í við­tal­inu er Karl Steinar spurður út í þær sögu­sagnir að flótta­fólkið sem kom frá Venezúela, hafi komið hingað til lands með hjálp glæpa­hópa. „Það eru ýmsar teng­ingar þar sem eru mjög sér­kenni­legar, ég ætla að segja það,“ svar­aði Karl Steinar var­lega.

Að sögn Karls Steinars er yfir­leitt um að ræða flótta­fólk sem er í mjög bágri fjár­hags­legri stöðu. Oftar en ekki sé þeim gert að greiða glæpa­hóp­unum eftir að til lands­ins er komið, sem þýðir að stór hluti þess pen­ings sem fólkið vinnur sér inn hér á landi, rennur til glæpa­hópanna. Oftar en ekki séu þær upp­hæðir sem greiddar eru til brota­hópanna, marg­falt hærri en talað var um í upp­hafi. „Þetta er að ger­ast um alla Evrópu,“ sagði yfir­lög­reglu­þjónn­inn og bætti við: „Það eru mjög krítískir tímar í mörgum löndum, sem er að hafa áhrif og þessir brota­hópar nota sér þessa stöðu sér til ávinn­ings.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins