„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Grindvíkingar á hrakhólum: „Á annað hundrað fjölskyldur sem eru ekki í viðunandi húsnæði“

Grindvíkingar á hrakhólum: „Á annað hundrað fjölskyldur sem eru ekki í viðunandi húsnæði“
Grinda­vík.

Íbúa­fundur Grind­vík­inga var hald­inn í Laug­ar­dals­höll í gær. Farið var yfir hin ýmsu mál er varð­aði stöð­una á svæð­inu. Þess á meðal var farið yfir mögu­legar stað­setn­ingar vænt­an­legs goss, en hafa sér­fræð­ingar Veð­ur­stofu Íslands gefið út upp­lýs­ingar sem sýna að kviku­magn er nú orðið svipað og í fyrri gosum.

Ein sviðs­myndin væri eld­gos við Hagafell. Jarð­fræði­líkön sýna að hraun­flæðið myndi ná að varn­ar­görðum Grinda­víkur á um það bil einni klukku­stund. Kviku­hlaupið myndi að öllum lík­indum valda veru­legum sprungu­hreyf­ingum í bænum. Yfirvöld hafa áréttað við þá sem halda til í Grinda­vík að þeir er á eigin ábyrgð. Vís­inda­menn telja lík­leg­ast að það fari að gjósa milli Stóra-Skóg­fells og Haga­fells.

Myndin sýnir lík­lega sviðs­mynd ef eld­gos hefst við Hagafell. Mynd/RÚV skjá­skot

200 fjölskyldur án húsnæðis

„Við getum sagt að í svona bráða­að­gerðum höfum við verið að sjá kannski eitt­hvað á annað hund­rað fjöl­skyldur sem eru ekki í við­un­andi hús­næði, eða við það að missa núver­andi leigu­hús­næði. Þannig að vand­inn er vissu­lega til staðar enn þá,“ sagði Fannar Jónasson, bæj­ar­stjóri Grind­víkur, við frétta­stofu RÚV, í gær.

47 íbúðir hafa verið úthlut­aðar til Grind­vík­inga en umsóknir voru 260 tals­ins. Fannar segir að innan skamms geti fólk leitað úrlausna hjá nýstofn­uðu fast­eigna­fé­lagi á vegum ríks­ins, vegna upp­kaupa. Upp­lýs­ingar megi nálg­ast á island.is

Í við­tali við frétta­mann RÚV segir hann um varn­ar­garð­ana:

„Ég verð að hrósa yfir­leittt öllum sem að þessu koma fyrir að hafa ekki legið á liði sínu við að aðstoða okkur. Þetta er auð­vitað gríð­ar­lega stórt verk­efni, flókið og dýrt. Ef við förum aðeins út fyrir ramma þess­ara fundar að þá eru það hús­næð­is­málin hjá íbú­unum sem þyrftu að vera á miklu betri stað. Og við erum að reyna að þrýsta á það. En hvað við­víkur svona við­bragði og öðru slíku í bænum það held ég að sé á nokkuð góðum stað.“

Fannar Jónasson á íbúa­fundi Grinda­víkur í gær. Mynd/skjá­skot RÚV

„Við bíðum eftir því að það verði skrúfað fyrir þennan krana sem er þarna á margra kíló­metra dýpi. Og þegar að svo er komið að þá viljum við bara fara að huga að heim­flutn­ingi. En fyrr en það ger­ist þá verðum við bara því miður að bíða. Það gæti orðið nokkur tími,“ segir Fannar aðspurður hvenær hann sjái mögu­leika á að Grind­vík­ingar snúi aftur heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins