„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Minnast Hildar Hermóðsdóttur: „Hildur var á undan sinni samtíð á margan hátt“

Minnast Hildar Hermóðsdóttur: „Hildur var á undan sinni samtíð á margan hátt“
Hildur með núver­andi eig­endum bóka­út­gáf­unnar Sölku. Mynd/Salka á facebook. Mynd: hag / Haraldur Guðjónsson

Hildur Her­móðs­dóttir, stofn­andi bóka­út­gáf­unnar Sölku, var jarð­sungin í gær. Í kjöl­farið minnt­ust núver­andi eig­endur Sölku Hildar, á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook.

„Hildur ruddi nýjar brautir í íslenskri bóka­út­gáfu með stofnun Sölku. Hún lagði áherslu á að gefa út bækur eftir konur og um konur og var það nýlunda í brans­anum hér á landi. Að auki var for­lagið í eigu kvenna og konur fóru með rit­stjórn­ar­vald. Bækur sem áður höfðu ekki fengið braut­ar­gengi litu dags­ins ljós,“ greina Dögg Hjalta­lín og Anna Lea Frið­riks­dóttir frá í færsl­unni.

Þær segja Hildi ávallt hafa verið trú hug­sjón sinni og byggt upp sterka bóka­út­gáfu sem ögraði við­teknum venjum „Hildur var á undan sinni sam­tíð á margan hátt, bæði hvað varðar jafn­rétti í bóka­út­gáfu, kvenna­bar­áttu og nátt­úru­vernd.“

„Við vorum svo lánsamar að fá tæki­færi til að vinna með Hildi, bæði sem bók­salar á árum áður og svo þegar hún treysti okkur fyrir að varð­veita arf­leifð sína undir merkjum Sölku. Fallegum hring var lokað þegar Hildur gaf út bók sína, Ástin á Laxá, hjá okkur,“ rita þær Anna Lea og Dögg.

Í bók­inni greindi Hildur frá sögu fjöl­skyldu sinnar og sveit­unga á ljós­lif­andi hátt.

„Hún fang­aði ást­ina á nátt­úr­unni og brá upp myndum af fólk­inu sem vernd­aði hana með sam­heldni og eld­móð að vopni. Eldmóður Hildar dvín­aði aldrei og hennar hjart­ans mál voru engum dulin. Hún skrif­aði sög­una í mörgum skiln­ingi.“

Undir færsl­una rita „Sölk­urnar“ eða þær Anna Lea Frið­riks­dóttir og Dögg Hjalta­lín

Hér að neðan má sjá færslu frá eig­endum Sölku:

Tengd frétt:

Hildur er látin

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins