„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Yfirlæknir Vogs neitar að horfast í augu við að sumir sprautufíklar hafa ekki gagn af meðferðinni“

„Yfirlæknir Vogs neitar að horfast í augu við að sumir sprautufíklar hafa ekki gagn af meðferðinni“
Árni Tómas Ragn­ar­son gagn­rýnir yfir­lækni Vogs. Myndin er sam­sett

Í lok síð­asta árs var Árni Tómas Ragn­ar­son, gigt­ar­læknir, sviptur leyfi til að skrifa út til­tekin lyf. Hafði hann um ára­bil skrifað út mor­fín­lyf fyrir ein­stak­linga í fíkni­vanda. Árni sendi frá sér pistil á Vísi.is, þar sem hann gagn­rýnir kerfið og skýtur föstum skotum á yfir­lækni Vogs.

„Eins og mörgum er kunn­ugt um og hefur mikið verið rætt að und­an­förnu sinnti ég mor­fín­sprautu­fíklum um 2-3 ára skeið þar til Alma Möller land­læknir stöðv­aði starf­semi mína í haust. Skjól­stæð­ingar mínir hafa margir liðið vít­isk­valir síðan eða eru komnir aftur á göt­una, stelandi til að kaupa óhrein efni, sem valda dauða um 100 ungs fólks á ári. Af mínum 50-60 skjól­stæð­ingum dó eng­inn og allir fengu þeir betra líf eins og margir þeirra hafa borið opin­ber­lega vitni um,“ skrifar Árni.

Hann útskýrir að skjól­stæð­ingar hans hafi fengið í gegnum hann hreint efni í apó­tekum:

„ … 1 skammt á dag af hreinu efni. Þeir náðu sér á strik í líf­inu, fjöl­skyldan og vin­irnir gömlu, sem höfðu verið í sárum í langan tíma (flestir fíklanna minna, 30-40 ára gamlir, áttu um 20 fíkni ár að baki) tóku þeim feg­ins hendi. Hið hörmu­lega líf, – gildra fíkn­innar, sem þeir höfðu lifað, var ekki jafn stórt vanda­mál og áður.“

Vogur

Árni seg­ist í mörgu vera sáttur við starf­semi Vogs og margoft tjáð sig um hið góða starf sem þar er unnið:

„Það er hins vegar alger blekk­ing, sem yfir­læknir Vogs beitir þegar hún ræðir um skjól­stæð­inga mína. Nær allir þeirra höfðu farið í 15-20 með­ferðir á Vog án árang­urs (voru með vott­orð upp á það) og voru hættir að gera sér nokkra von um að þangað væri neitt að sækja. Yfir­læknir Vogs neitar að horfast í augu við það að sumir sprautu­fíklar hafa ekk­ert gagn af þeirri með­ferð, sem þeim stendur til boða á Vogi, því miður.“

Árni bætir við: „Þeim hópi þarf líka að sinna af okkur læknum til að bæta líðan þeirra og auka lífslíkur þeirra auk þess sam­fé­lags­lega árang­urs, sem með­ferð mín gaf.“

„Það er mér ákaf­lega sárt að heyra nú í þessum skjól­stæð­ingum mínum, sem biðja um hjálp, sem ég get ekki veitt þeim. Hér hefur ill­virki verið framið gagn­vart þeim, van­hugsað og van­búið,“ ritar Árni.

Að end­ingu ritar hann: „En von­andi hefur þetta fram­lag mitt orðið til þess að vekja athygli á líðan og stöðu þessa hóps og þá hefur starf mitt ekki verið unnið til einskis. Ég vil þakka öllum þeim mörgu, sem hafa veitt mér stuðn­ing og hvatn­ingu í þessu máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins