„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Biðlar til fólks að trúa ekki lygasögum: „Okkur þykir vænt um fólk, en við elskum hvort annað“

Biðlar til fólks að trúa ekki lygasögum: „Okkur þykir vænt um fólk, en við elskum hvort annað“
Bryndís og Jón Baldvin

„Ekki trúa lyga­sögum um okkur Jón Baldvin. Við eigum það ekki skilið. Við höfum verið trú hvort öðru í meira en sex­tíu ár og höfum ekk­ert að fela. Okkur þykir vænt um fólk, en við elskum hvort annað,“ segir Bryndís Schram í nýrri færslu á Facebook. Í færsl­unni fer hún yfir sjö daga ferð hennar og eig­in­manns hennar Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar til Eist­lands.

Lýsir Bryndís ferð­inni svo­leiðis: „Mér fannst ég vera eins og drottn­ing í ævin­týra­landi. Sjö dagar framundan. Ógleym­an­legir dagar.“

Eistland

„Þar var dekrað við okkur frá morgni til kvölds – funda­höld, mót­tökur, ferða­lög – og stór­kost­legar veislur dag eftir dag. Jafnvel hót­elið sjálft skart­aði stórum íslenskum fána við aðal­dyrnar, þar sem á stóð “Vel­kom­inn Hanni­bals­son“.“

Bryndís segir frá því að þegar hún ferð­ist með Jóni til Eystra­salts­land­anna skjóti upp í hug hennar minn­ing frá forni tíð:
„Pabbi minn, Björgvin, var fót­bolta­snill­ingur og spil­aði með KR árum saman. Hann var ótrú­lega vin­sæll. Jafnvel löngu eftir að hann var búinn að leggja fót­bolta­skóna á hill­una, var hann enn stjarna og með hug­ann við KR – fór á alla leiki. Það kom fyrir, að hann bauð mér að koma með sér, smá­stelp­unni. Og það sem ég man best eftir öll þessi ár, var sú aðdáun, ein­læg vin­átta – og jafnve lotn­ing , sem skein út úr hvers manns and­liti. Það vildu allir taka í hönd­ina á honum og segja eitt­hvað fal­legt við hann. Hann var enn stjarna í þeirra augum.“

„Og þannig er það líka með mann­inn minn, Jón Baldvin. Við komum oft í heim­sókn til Eystra­salts­land­anna – sama hvort það er Eistland, Lettland eða Litháen – allir vilja heilsa honum, tjá þakk­læti sitt, fá að snerta hann. Hann er enn stjarna í þeirra augum – bjarg­vættur, líf­gjafi. Og ég fæ tár í augun. Það er eitt­hvað svo ljúft að vera meðal vina, finna til öryggis,“ bætir Bryndís við.

85 ára afmæli Jóns Baldvins

„ … Jón Baldvin náði mér í aldri – loks­ins orð­inn 85 ára eins og ég. Hund­gam­all, já, en samt eins og ungur maður, sem á alla fram­tíð­ina fyrir sér! Ég horfði á hann flytja ræðu í þing­húsi Eista á afmæl­is­degi sínum, þann 21. febr­úar,“ segir Bryndís og er full aðdá­unnar á eig­in­manni sínum.

„Þarna stóð hann í nýjum svörtum jakka og í hvítri skyrtu, sem við Kolfinna höfðum látið sauma á hann hér í þorp­inu í til­efni dags­ins. Hann notar ekki gler­augu þrátt fyrir öll þessi ár, ótrú­legt en satt. Hann les ekki ræður sínar, en hann flytur mál sitt, sem er honum svo hug­leikið, að hann þarf engan skrif­aðan texta.“

Sá hann fyrst fyrir 70 árum

„Á þessu ári eru 70 ár síðan ég sá Jón Baldvin í fyrsta sinn. Það var í lands­prófs­bekk í Gaggó Vest við Öldugötu. Ég hafði aldrei séð svona strák áður, satt að segja. Hann var með mikið ljóst hár og ótrú­lega blá augu. Sjálf átti ég sex yngri systk­ini, og þau voru öll með dökkt hár og brún augu. Ég var sem heilluð, og ég man, að ég hlakk­aði til að fara í skól­ann á hverjum degi – bara að finna nálægð hans og skotra til hans aug­unum öðru hverju,“ skrifar hún og bætir að við annað var það ekki og að öll mennta­skóla­árin höfðu liðið.

Að end­ingu bætir Bryndís við:
Mig langar líka til að segja ykkur, að ég er enn sem heilluð af þessum manni. Ég hlakka til að vakna með honum að morgni nýs dags, finna fyrir nálægð hans og skotra til hans aug­unum öðru hverju.“

Hér má sjá pistil Bryn­dísar og ferð­sögu hennar í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins