„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tilkynning frá lögreglunni á Suðurnesjum – Fyrirkomulagið á svæðinu næstu vikuna

Tilkynning frá lögreglunni á Suðurnesjum – Fyrirkomulagið á svæðinu næstu vikuna
Grinda­vík – Mynd: Wikipedia

Lög­reglan á Suð­ur­nesjum gaf út til­kynn­ingu vegna stöð­unar á Reykja­nesi. Veð­ur­stofan telur enn auknar líkur á gosi. Íbúar og starfs­fólk sem fer inn í Grinda­vík eru á eigin ábyrgð. Fyr­ir­komu­lag tekur gildi klukkan 16 í dag og verður tekið til end­ur­skoð­unar sunnu­dag­inn 10. mars 2024 eða fyrr eftir atvikum. Til­kynn­ingin birt­ist í heild sinni hér að neðan:

Grinda­vík var rýmd í gær svo og Svarts­eng­is­svæðið þar sem talið var að eld­gos gæti haf­ist þá og þegar. Þessar rým­ingar gengu vel. Reynsla gær­dags­ins sýnir að á háanna­tíma hjá Bláa Lóninu tók um 40 mín­útur að rýma starfs­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins. Þá var eng­inn asi á rým­ingu inn í Grinda­vík og tók hún um eina klukku­stund. Þar voru fáir á ferli fyrir utan við­bragðs­að­ila og verk­taka við vinnu við varn­ar­garða. Vinna þeirra liggur niðri í dag sam­kvæmt áður ákveðnu skipu­lagi.

Veð­ur­stofa Íslands telur enn auknar líkur á eld­gosi og benda gögn til þess að kviku­hlaupið í gær hafi stöðvast við Hagafell. Að mati Veð­ur­stof­unnar er talið lík­legt að kviku­magn undir Svarts­engi haldi áfram að aukast sem gæti endað með öðru kviku­hlaupi eða eld­gosi. Nýtt eld­gos getur haf­ist með stuttum fyr­ir­vara. Uppfært hættu­mat Veð­ur­stofu Íslands tók gildi kl. 13 í dag og verður að öllu óbreyttu end­ur­skoðað þriðju­dag­inn 5. mars kl. 15. Líkleg atburð­ar­rás næstu daga:
Kviku­magn undir Svarts­engi heldur áfram að aukast sem gæti endað með nýju kviku­hlaupi og jafn­vel eld­gosi.
Eldgos gæti haf­ist með mjög stuttum fyr­ir­vara, jafn­vel innan við 30 mín­útur.
Lík­leg­ast er að gos komi upp á svæð­inu milli Stóra-Skóg­fells og Haga­fells.
Á svæði 1 sam­kvæmt hættu­mat­skorti Veð­ur­stof­unnar, starfs­svæðum Bláa Lónsins, Northern Light Inn og HS Orku er talin vera mikil hætta á hraun­rennsli. Lita­kvarði þessa svæðis sýnir tölu­verða hættu. Fram­an­greind starfs­svæði eru í dag varin með varn­ar­görðum. Í Grinda­vík er talin vera mikil hætta á jarð­falli ofan í sprungur, hraun­flæði og sprungu­hreyf­ingum. Grinda­vík er varin varn­ar­görðum en upp­bygg­ingu þeirra er ekki lokið. Lita­kvarði fyrir Grindvík sýnir tölu­verða hættu.

Lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum hefur tekið þá ákvörðun að hverfa til fyrra horfs hvað varðar aðgengi að fram­an­greindum svæðum og áréttar neð­an­greint.
Rík­is­lög­reglu­stjóri féll frá fyr­ir­mælum um brott­flutn­ing úr Grinda­vík frá og með 19. febr­úar 2024. Ákvörðun rík­is­lög­reglu­stjóra um brott­vísun, með heim­ild í 24. gr. laga um almanna­varnir nr. 82/2008, tók gildi 15. jan­úar sl. og var síðan fram­lengd einu sinni eða þann 4. febr­úar sl.
Með hlið­sjón af fram­an­sögðu ákvað lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum að heim­ila Grind­vík­ingum og þeim sem starfa Í Grinda­vík að dvelja og starfa í bænum allan sól­ar­hring­inn. Mik­il­vægt er að hafa neð­an­greint í huga.
Íbúar og starfs­menn fari inn í bæinn á eigin ábyrgð. Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafna­leysi. Lög­reglu­stjóri tekur skýrt fram að Grinda­vík er ekki staður fyrir barna­fólk eða börn að leik. Þar eru ekki starf­ræktir skólar og inn­viðir eru í ólestri. Lög­reglu­stjóri mælir ekki með því að fólk dvelji í bænum.

Jarð­sprungur eru víða í og við bæinn og sprungur geta opn­ast án fyr­ir­fara. Hætta er metin tölu­verð á jarð­falli ofan í sprungur og sprungu­hreyf­ingum. Mót­væg­is­að­gerðir eru og hafa verið í gangi sem fel­ast m.a. í kort­lagn­ingu, jarð­könnun, jarð­sjár­mæl­ingum og sjón­skoðun. Þá hafa sprungur verið girtar af.
Opin svæði í og við Grinda­vík hafa ekki verið skoðuð sér­stak­lega. Fólk haldi sig við götur bæj­ar­ins og forð­ist að fara út á lóðir og önnur opin svæði.
Grinda­vík er lokuð öllum öðrum en við­bragðs­að­ilum, íbúum bæj­ar­ins, starfs­mönnum fyr­ir­tækja bæj­ar­ins og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa. Fjöl­miðla­fólk hefur heim­ild til að fara inn í bæinn með sama hætti og íbúar og starfs­menn fyr­ir­tækja.

Á starfs­svæði Bláa Lónsins, Northern Light Inn og HS orku er talin mjög mikil hætta á hraun­flæði. Um tíma þrengdi að aðkomu­leiðum þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og lok­aði leið­inni inn að Bláa Lóninu, Northern Light Inn og HS orku. Lagður var vegur yfir ný runnið hraunið og aðkoma um Grinda­vík­ur­veg opnuð að nýju.
Enn eru hættur á svæð­inu í kjöl­far eld­goss við Stóra Skógfell og aðstæður innan og utan hættu­svæða geta breyst með litlum fyr­ir­vara. Þá geta hættur leynst utan merktra svæða. Land rís í Svarts­engi og merki eru um að það stytt­ist í næsta gos vegna þeirrar kviku sem safn­ast nú saman undir Svarts­engi.
Lok­un­ar­póstar eru við Bláa­lóns­veg, Nesveg og Suð­ur­strand­ar­veg. Þá er ekki hægt að aka Grinda­vík­ur­veg inn til Grinda­víkur þar sem hraun rann yfir þjóð­veg­inn í eld­gos­inu 14. jan­úar sl.

Til að vekja athygli fólks á aðsteðj­andi hættum hafa verið settar upp þrjár við­vör­un­arflautur í Grinda­vík. Þá er ein slík við Bláa lónið og önnur við HS orku í Svarts­engi. Í gær voru þær not­aðar við rým­ingu með góðum árangri.

Fáir Grind­vík­ingar kjósa að dvelja í bænum næt­ur­langt. Þeim er það heim­ilt en lög­reglu­stjóri mælir ekki með því. Lög­reglu­stjóri bendir á að lík­legt er að það stytt­ist í næsta gos og biður fólk um að taka til­lit til þess. Fyr­ir­vari vegna næsta eld­goss gæti orðið mjög stuttur.

Ef horft er til fyrri eld­gosa á svæð­inu gæti nýtt eld­gos haf­ist með skömmum fyr­ir­vara, innan við 30 mín­útur, allt eftir því hvar kvika kemur upp. Ekki er hægt að úti­loka að gos komi upp inn í Grinda­vík þótt það telj­ist ólík­legt. Bláa Lónið og Northern Light Inn eru inn á skil­greindu hættu­svæði Veð­ur­stofu Íslands þar sem talin er tölu­verð hætta á nátt­úru­ham­förum og sér­stak­lega nefnt að mikil hætta er á hraun­rennsli. Það er til marks um stöð­una á þessu svæði að það hefur þurft að rýma svæðið, nú síð­ast í gær­dag.
Við­bragðs­að­ilar eru við störf í Grinda­vík og lög­regla sinnir lög­bundnu eft­ir­liti í bænum eins og verið hefur.

Gagn­legar upp­lýs­ingar eru á heima­síðu Grinda­vík­ur­bæjar á slóð­inni https://grindavik.is/ þá er bent á heima­síðu Veð­ur­stofu Íslands á slóð­inni www.vedur.is og heima­síðu almanna­varna á slóð­inni www.almannavarnir.is
Með vísan til 23. gr. laga um almanna­varnir nr. 88/2008 eru tak­mark­anir ekki aðrar en að framan greinir.

Fram­an­greint fyr­ir­komu­lag tekur gildi kl 16 í dag og verður tekið til end­ur­skoð­unar sunnu­dag­inn 10. mars 2024 eða fyrr eftir atvikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjanesskagi

Landris heldur áfram undir Svartsengi: „Bú­umst við því að fyr­ir­var­inn verði mjög stutt­ur“
InnlentReykjanesskagi

Landris heldur áfram undir Svarts­engi: „Bú­umst við því að fyr­ir­var­inn verði mjög stutt­ur“

Fyr­ir­var­inn á næsta gosi í Sund­hnúka­gíga­röð­inni verður mjög stuttur að mati nátt­úru­vá­r­sér­fræð­ings. Að sögn nátt­úru­vá­r­sér­fræð­ings á Veð­ur­stofu Ísland hefur staðan á Sund­hnúka­gíga­röð­inni lítið breyst síð­ustu daga en áfram eru taldar líkur á eld­gosi. Elísabet Pálma­dóttir nátt­úru­vá­r­sér­fræð­ingur segir mbl.is að þó að skjálfta­virknin á svæð­inu sé mjög tak­mörkuð, haldi land­ris og kviku­söfnun áfram undir Svarts­engi. Aðspurt hvort ein­hverjar breyt­ingar hafi orðið...
Auknar líkur á nýju eldgosi í lok janúar
InnlentReykjanesskagi

Auknar líkur á nýju eld­gosi í lok jan­úar

Haldi kviku­söfnun áfram á svip­uðum hraða aukast lík­urnar á eld­gosi á Sund­hnúks­gíga­röð­inni í lok jan­úar. Samkvæmt nýrri til­kynn­ingu frá Veð­ur­stofu Íslands er hraði kviku­inn­flæðis undir Svarts­engi svip­aður og hann var fyrir síð­asta eld­gos og nýj­ustu gögnin benda til þess að líkur á kviku­hlaupi aukast og að það gjósi jafn­vel í lok jan­úar. Þegar jafn mikið magn kviku hefur safn­ast undir...
Líkur á öðru gosi aukast – Landris hafið að nýju á Reykjanesskaga
InnlentReykjanesskagi

Líkur á öðru gosi aukast – Landris hafið að nýju á Reykja­nesskaga

Landris er hafið að nýju á Reykja­nesskaga. Þetta sýna mæl­ingar Veð­ur­stof­unnar en land­sig sem mæld­ist fyrstu dag­ana eftir nýjasta gosið, er lokið. Ekki er hægt að segja hversu hratt land­risið er, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Veð­ur­stof­unnar en búast má við að inn­flæði kviku í kviku­söfn­un­ar­svæðið sé meira en útstreymi úr gígnum. Bendir þetta til þess að annað gos sé yfir­vof­andi en það...
„RÝMING RÝMING! Yfirgefið svæðið hratt og örugglega“
InnlentReykjanesskagi

„RÝMING RÝMING! Yfir­gefið svæðið hratt og örugg­lega“

Aukin skjálfta­virkni hófst rétt fyrir klukkan fjögur í kringum Sund­hnúks­gíga­röð­ina. Ábending barst Mannlífi um að á fólki á svæð­inu hafi borist sms til­kynn­ing: „RÝMING RÝMING! Yfir­gefið svæðið hratt og örugg­lega, hringið í 112 af ykkur vantar aðstoð RÝMING RÝMING.“ „Við erum að fylgj­ast með í vef­mynda­vél og þeim gögnum sem við erum með,“ segir vakt­haf­andi sér­fræð­ingur á Veð­ur­stof­unni í sam­tali...
Óbreytt skólastarf á Reykjaneskaga á morgun – Íþróttastarf fellur niður
InnlentReykjanesskagi

Óbreytt skóla­starf á Reykja­neskaga á morgun – Íþrótta­starf fellur niður

„Að öllu óbreyttu verður skóla­starf í öllum leik- og grunn­skólum í Reykja­nesbæ, Suð­ur­nesjabæ og Vogum á morgun mánu­dag­inn 12. febr­úar. Þetta á einnig við um starf­semi frí­stunda­heim­ila. Þess má geta að skipu­lagt íþrótta­starf hjá börnum og ung­mennum fellur niður,“ segir í til­kynn­ingu frá Almanna­vörnum. Upphitun hefur gengið vel Fram kemur að vel hefur gengið að halda hita á skóla­bygg­ingum. Starfs­fólk...
Svartasta sviðmyndin í kortunum – Yfirvofandi heitavatnsleysi á öllum Reykjanesskaga
InnlentReykjanesskagi

Svartasta svið­myndin í kort­unum – Yfir­vof­andi heita­vatns­leysi á öllum Reykja­nesskaga

„Þetta er það sem við höfum kallað svartasta sviðs­myndin og hún er hrein­lega í kort­unum núna. En við vitum ekki núna hversu langt hraun­flæðið mun ná,“ sagði Páll Erland, for­stjóri HS Veitna í sam­tali við Kristján Má Unn­ars­son, frétta­mann Stöðvar 2. Hraun flæðir nú yfir Grinda­vík­ur­veg við Bláa-lóns-afleggjar­ann og í átt að hita­veituæð sem leiðir vatn til Reykja­nes­bæjar og ann­arra...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins