„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fjallabræður minnast fallins félaga

Fjallabræður minnast fallins félaga
Fjalla­bræður minn­ast Dýra Guð­munds­son.

„Fallinn er frá fyrsti Fjalla­bróð­ir­inn, en oft hefur verið rætt um það á liðnum árum, að óhjá­kvæmi­lega hlyti að stytt­ast í þá stund, er ein­hver okkar tæki á sig ferð­ina í sum­ar­landið,“ segir í færslu frá með­limum Fjalla­bræðra á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook. Greint var frá and­láti Dýra Guð­munds­sonar, með­lims Fjalla­bræðra, á dög­unum.

„Dýri Guð­munds­son (1951-2024) var ein­stakt ljúf­menni og lífskúnstner. Alltaf var hann glað­legur, ein­lægur og nota­legur og hafði sér­stak­lega góða nær­veru. Dýri var Hafn­firð­ingur í húð og hár, honum fannst alltaf mjög vænt um sinn gamla heimabæ og sagði gjarnan sögur úr upp­vext­inum þaðan. Hann var lög­giltur end­ur­skoð­andi og starf­aði sem slíkur um langa hríð. Hann var einnig mik­ill íþrótta­maður á yngri árum og spil­aði m.a. fjölda land­s­leikja í fót­bolta. Músíkin átti einnig hug hans allan og hann lék m.a. á gítar og bassa og þau hjónin Hildur og hann urðu umtöluð og þekkt fyrir árlega mús­ík­veislu og gleð­skap sem þau slógu upp í garð­inum hjá sér við Lind­ar­braut­ina …“ segir í minn­ing­ar­orðum Fjalla­bræðra og að hann hafi ver­ið­samfé list­hneigður mjög.

„Dýri var dug­legur að spila og syngja fyrir eldri borg­ara á Sel­tjarn­ar­nesi og spil­aði einnig reglu­lega fyrir sund­gesti í Sel­tjarn­ar­neslaug síð­ustu árin sem hann bjó á Nesinu. Dýri var einnig list­hneigður með öðrum hætti, hann mál­aði og hafði sér­stak­lega gaman af því að mála „sýnd­ar­málun“ sem blekkir augað og húsið þeirra við Lind­ar­braut skart­aði slíku skrauti.“

„Eftir að sjúk­dómur Dýra fór að gera vart við sig, heim­sótti hann nágranna sína og vini oft, stundum nokkrum sinnum sama dag­inn. Hann stopp­aði stutt í hvert sinn, en alltaf var hann glaður, með jákvæð skila­boð eða fréttir og tal­aði þá gjarnan um Fjalla­bræður og hvað hann væri ánægður með þann félags­skap,“ rita Fjalla­bræður.

„Eftir að þau hjónin Hildur og hann fluttu á dval­ar­heim­ilið í Hafn­ar­firði fórum við bræð­urnir og skemmtum heim­il­is­mönnum og starfs­fólk­inu þar. Það var ógleym­an­legt kvöld, sann­ar­lega súr-sæt minn­ing, en það var mikið áfall að frétta að Hildur væri líka að glíma við Alzheimers sjúk­dóm­inn. Dýri kom og stillti sér upp með hópnum með gít­ar­inn og naut sín vel, en það var sárt að sjá hve honum hafði farið aftur frá því við hitt­umst síð­ast. Nú er hann laus undan allri áþján, kom­inn á hinar enda­lausu veiði­lendur, þar sem engin tak­mörk eru fyrir hvers­konar list­sköpun, vellíðan og leik­ara­skap.“

„Við kveðjum þennan vin og bróðir okkar með hjartað fullt af þakk­læti fyrir þann tíma og stundir sem við áttum saman,“ er skrifað að end­ingu.

Hér að neðan má sjá færslu Fjalla­bræðra í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

minningarorð

Hannes minnist Björgólfs: „Hann var hugmyndaríkur, viðkunnanlegur og góðviljaður maður“
Menning

Hannes minn­ist Björg­ólfs: „Hann var hug­mynda­ríkur, við­kunn­an­legur og góð­vilj­aður maður“

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son minn­ist vinar síns, Björg­ólfs Guð­munds­sonar sem lést á sunnu­dag­inn. Stjórn­mála­pró­fess­or­inn Emeritus, Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son minn­ist Björg­ólfs Guð­munds­sonar, við­skipta­manns, sem lést 85 ára að aldri síð­ast­lið­inn sunnu­dag. Segir Hannes í Facebook-færslu að Björgólfur hafi verið „hug­mynda­ríkur, við­kunn­an­legur og góð­vilj­aður maður“ og að það hafi verið farið illa með hann í Haf­skips­mál­inu svo­kall­aða á sínum tíma. Segist Hannes hafa...
Heimur

Ár liðið frá hrotta­fengnu morði Ísra­els­hers á hinni fimm ára Hind Rajab: „Gerðu það, náðu í mig“

Í gær var akkurat ár frá því að ísra­elskir her­menn drápu hina fimm ára gömlu Hind Rajab, þar sem hún leit­aði skjóls innan um myrta ætt­ingja sínum í bif­reið frænda síns. Margir hafa minnst hennar á sam­fé­lags­miðl­unum af til­efn­inu. „Ég er svo hrædd, gerðu það komdu. Gerðu það, hringdu í ein­hvern til að koma og sækja mig.“ Í gær var...
Jón Axel minntist föður síns í beinni útsendingu: „Takk pabbi fyrir að elska mig eins og ég er“
Menning

Jón Axel minnt­ist föður síns í beinni útsend­ingu: „Takk pabbi fyrir að elska mig eins og ég er“

Jón Axel Ólafsson minnt­ist föður síns í beinni útsend­ingu á K100 á föstu­dag­inn en hann lést fyrir helgi. Útvarps­mað­ur­inn góð­kunni, Jón Axel Ólafsson, sem starfar á K100, minnt­ist föður síns í þætt­inum Skemmti­legri leiðin heim á föstu­dag­inn, undir liðnum „Takk“ en faðir hans, Ólafur Axelsson húsa­smiða­meist­ari, lést á fimmtu­dag­inn. „Pabbi dó í gær og verður maður þá ekki að þakka...
Jón Gnarr fékk högg fyrir hjartað í gær: „Twin Peaks voru fyrir mér Berlínarmúr sjónvarpsins“
Menning

Jón Gnarr fékk högg fyrir hjartað í gær: „Twin Peaks voru fyrir mér Berlín­ar­múr sjón­varps­ins“

Jón Gnarr seg­ist hafa fengin högg fyrir hjartað þegar hann sá fréttir af and­láti hins sér­lund­aða kvik­mynda­leik­stjóra David Lynch, í gær. Hinn sér­vitri og marg­verð­laun­aði kvik­mynda­leik­stjóri David Lynch lést í gær, 78 ára að aldri, eftir erf­iða glímu við lungna­þembu. Fræga fólkið, bæði í Hollywood og á Íslandi keppt­ust við það í gær að minn­ast Lynch, skilj­an­lega enda um einn...
Afi Önnu varð bráðkvaddur um borð í M.S. Heklu: „Við eigum að minnast forfeðranna með virðingu“
Menning

Afi Önnu varð bráð­kvaddur um borð í M.S. Heklu: „Við eigum að minn­ast for­feðr­anna með virð­ingu“

„Þegar ég fædd­ist voru báðar ömmur mínar látnar sem og föð­ur­afi minn, en móð­ur­afi minn vél­stjór­inn enn lif­andi og í fullu starfi á strand­ferða­skip­inu Heklu. Reyndar var langamma mín í beinan kven­legg, (Gunn­hildur Ólafs­dóttir ekkja Bene­dikts Magn­ús­sonar á Vallá á Kjal­ar­nesi) enn á lífi (lést 1966), en um leið má segja að systir ömmu minnar Arndísar Bene­dikts­dóttur og eig­in­maður hennar,...
Egill minnist Hauks Guðlaugssonar: „Tókst með þeim öldungnum og drengstaulanum góð vinátta“
Menning

Egill minn­ist Hauks Guð­laugs­sonar: „Tókst með þeim öldungnum og drengstaul­anum góð vin­átta“

Egill Helgason minn­ist fjöl­skyldu­vinar síns, Hauks Guð­laugs­sonar í nýlegri Facebook-færslu. Haukur Guð­laugs­son, fyrr­ver­andi söng­mála­stjóri þjóð­kirkj­unnar lést 1. sept­em­ber síð­ast­lið­inn en fáir Íslend­ingar hafa jafn glæsi­legan tón­lista­feril og Haukur. Egill Helgason fjöl­miðla­maður skrif­aði um hann á Facebook í gær en Haukur var vinur fjöl­skyldu Egils. Haukur var ekki aðeins mentor Kára, sonar Egils, í tón­list, heldur voru þeir góðir vinir. Hér...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins