„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þráinn Steinsson á batavegi eftir skelfileg veikindi: „Gekk í gegnum algjört helvíti“

Þráinn Steinsson á batavegi eftir skelfileg veikindi: „Gekk í gegnum algjört helvíti“
Mynd / Skjáskot af hring­braut.is.

Útvarps­mað­ur­inn Þráinn Steins­son hefur gengið í gegnum mikil veik­indi að und­an­förnu og framundan er erfið end­ur­hæf­ing.

Það vakti athygli árið 2022 þegar Þránni Steins­syni var sagt upp hjá Bylgj­unni, eftir 30 ára starf hjá miðl­inum. Í færslu sem hann skrif­aði á Facebook í fyrra­dag segir Þráinn að „mannauðslið“ hafi talið hann drukk­inn í vinn­unni og hann áhuga­laus og latur. Sann­leik­ur­inn var hins vegar sá að hann var far­inn að veikj­ast. Þráinn sagð­ist í sam­tali við Mannlíf, hafa fyrst orðið veikur í mars 2022 og þurft að gang­ast undir stóra aðgerð. Hann hafi svo farið of snemma af stað aftur.

„Jæja börnin góð, mig langar og langar ekki til að segja hvað á daga mína hefur drifið und­an­farið,“ skrif­aði Þráinn í færslu sem vakið hefur gríð­ar­leg við­brögð á Facebook. Og hann hélt áfram: „Ég er búinn að liggja á LSH í 8 vikur og oft óbæri­lega kval­inn vegna líf­færa sem fóru í fýlu. Ég sá ofsjónir, var með ofskynj­anir, missti allt vídd­ar­skyn sem olli að ég hitti ekki á borð, hitti ekki á munn­inn með vatn­inu gat ekki lyft útlimum osfrv. Fór í skurð­að­gerð sem þurfti að gera aftur og kvið­ur­inn þan­inn af vökva og blóði sem tími mun fara í að losna við.“

Þráinn sagð­ist hafa liðið það illa að hann hafi frekað vilja deyja en sé nú á hægum bata­vegi. „Gekk í gegnum algjört hel­víti og vildi deyja frekar en að líða svona. Ég er að skána mjög hægt undir hand­leiðslu frá­bærs starfs­fólks á deild 12E sem ég mun dvelja hjá enn um sinn.“

Því næst segir Þráinn frá upp­hafi veik­inda sinna en fyrsta alvar­lega til­fellið varð í þætti hans, Heimis Karls­sonar og Gunn­laugs Helga­sonar. „Þetta byrj­aði allt fyrir löngu siðan en fyrsta alvar­lega til­fellið í okt 2022 í þætt­inum hjá okkur Heimi og Gulla. Það var ályktað að ég væri bara drukk­inn í vinnu af mannauðsliði, ég hafði gengið þyngsla­lega um og yfir­maður þáver­andi túlk­aði það þannig að ég væri latur og áhuga­laus og tími kom­inn til að huga að starfs­lokum. Þannig var stuðn­ing­ur­inn þar, hent út á Guð og gadd­inn.“

Þráinn segir að áfallið hafi verið mikið og að það hafi ýtt undir veik­indin. „Það var mikið áfall að vera sagt upp eftir 30 ár og ýtti undir það sem koma skyldi. Mig lang­aði bara að fræða þá vini mína sem gætu hafa velt fyrir sér hvar ég væri eig­in­lega. Farið vel með ykkur, heilsan er ekki sjálf­gefin. Verst að fá ekki nær­veru Eyþóru og dætr­anna jafn­mikið eins og vana­lega. Það er erf­iður tími framundan og löng og ströng end­ur­hæf­ing, en við róum þetta á æðru­leys­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins