„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ítreka kröfu um óháða rannsókn á talningu: „Trúverðugleiki RÚV og traust á lýðræði er undir“

Ítreka kröfu um óháða rannsókn á talningu: „Trúverðugleiki RÚV og traust á lýðræði er undir“

Hópur stuðn­ings­manna Bashar Murad ítrekar kröfu Einars Stef­áns­sonar um sjálf­stæða rann­sókn á atkvæða­greiðslu í ein­vígi Söngvakeppni sjón­varps­ins síð­ast­liðið laug­ar­dags­kvöld. Sendi hóp­ur­inn bréf á útvarps­stjóra og Rúnar Freyr Gísla­sonar, fram­kvæmd­ar­stjóra keppn­innar.

Í bréf­inu, sem einnig var sent fjöl­miðlum, segir að það sé „Hekki á færi lista­mann­anna sjálfra að skoða hvað fór úrskeiðis“ í gögnum og tækni­málum Rík­is­út­varps­ins varð­andi atkvæða­greiðsl­una í ein­vígi Heru Bjarkar og Bashar síð­asta laug­ar­dags­kvöld. Segir að slíkt krefj­ist „sér­stakar sér­hæf­ingar og þekk­ingar í fjar­skiptum.“ Segir enn­fremur að verið sé að slá ryki í augu almenn­ings. „Það er ekki full­nægj­andi að halda því fram að allt sé opið fyrir þá að skoða, það ein­fald­lega slær ryki í augu almenn­ings.“

Þá segir í bréf­inu að of mikið af hinum ýmsu villu­meld­ingar hafi borist hópnum og að til séu fjöldi skjá­skota því til sönn­unar. „Miðað við þær villur sem við höfum séð er engan vegin hægt að full­yrða að kosn­ingin sá hafin yfir vafa. Þetta er rétt­læt­is­mál þar sem um lýð­ræð­is­lega kosn­ingu á að vera að ræða en hún hefur aug­ljós­lega mis­tek­ist. Trú­verð­ug­leiki RÚV og traust á lýð­ræði er undir.“

Í bréf­inu er talað um það er álíka mál kom upp í unda­keppn­inni í Noregi 2020 en nið­ur­staðan þá, var að láta úrskurð dóm­ara ráða. „Að öðrum kosti hlýtur það að vera rétt­mæt krafa að kosn­ingin verði end­ur­tekin.“

Bréfið má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

Sæll Stefán og Rúnar Freyr

Ég und­ir­rituð skrifa fyrir hönd stuðn­ings­manna Bashars sem ráðið hafa ráðum sínum í 1100 manna hópi á Facebook. Við viljum ítreka kröfu laga­höf­und­ar­ins Einars Stef­áns­sonar um að ráð­ist verði í sjálf­stæða rann­sókn á atkvæða­greiðslu í ein­vígi Söngvakeppn­innar og að hún verði fram­kvæmd af óháðum aðila. Það er ekki á færi lista­mann­anna sjálfra að skoða hvað fór úrskeiðis í ykkar gögnum og tækni­málum þar sem sú vinna krefst sér­stakar sér­hæf­ingar og þekk­ingar í fjar­skiptum. Það er ekki full­nægj­andi að halda því fram að allt sé opið fyrir þá að skoða, það ein­fald­lega slær ryki í augu almenn­ings.

Of mikið af ýmis konar ólíkum villu­meld­ingum hefur borist og erum við með tals­verðan fjölda af skjá­skotum því til sönn­unar. Miðað við þær villur sem við höfum séð er engan vegin hægt að full­yrða að kosn­ingin sá hafin yfir vafa. Þetta er rétt­læt­is­mál þar sem um lýð­ræð­is­lega kosn­ingu á að vera að ræða en hún hefur aug­ljós­lega mis­tek­ist. Trú­verð­ug­leiki RÚV og traust á lýð­ræði er undir.

Dæmi eru um að slíkt hafi gerst í öðrum löndum eins og gerð­ist í Noregi árið 2020. Þar var málið leitt til lykta með því að láta úrskurð dóm­ara standa. Það er ljóst að Bashar gjörsigr­aði dóm­ara­rennslið og fyrri kosn­ingu þar sem ekki virt­ist vera vanda­mál með atkvæði. Það væri því for­dæmi til að fara slíka leið. Að öðrum kosti hlýtur það að vera rétt­mæt krafa að kosn­ingin verði end­ur­tekin.

Við myndum gjarnan vilja funda með þér með lög­fræð­ingi okkar á föstu­dag til að fara frekar yfir þær lausnir sem gætu verið í sjón­málið til að leiða málið til lykta.

Með­fylgj­andi er linkur á þær 1255 und­ir­skriftir sem safn­ast hafa á stuttum tíma til stuðn­ings þess­ari kröfu og er sá listi ennþá opinn. https://island.is/undirskriftalistar/28ad4c25-b558-488e-82ac-553ab1d9818d?fbclid=IwAR38_4kQDnKk4r_XSrsg78eFzSUpJKcp-cLJjGPerYGzH18O9Dtbmd7HLec

Eins erum við að taka saman mik­inn fjölda af skjá­skotum og sögum fólks sem lenti í vand­ræðum. Við munum senda þér það við­hengi seinna í dag sem við erum að taka saman.

Með von um að heyra frá ykkur sem allra fyrst. Við munum láta fjöl­miðla fá afrit af þessum tölvu­pósti.

Virð­ing­ar­fyllst,

Bene­dikta Guðrún Svav­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins