„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kristinn lastar ríkjandi hugarfar: „Þetta er stúdía í ómennskunni, firringunni og sinnuleysinu“

Kristinn lastar ríkjandi hugarfar: „Þetta er stúdía í ómennskunni, firringunni og sinnuleysinu“
The Zone of Interest

Kristinn Hrafns­son segir lág­kúru illsk­unnar sem vart var í hel­för­inni, sé aftur komin á kreik, á meðan þjóð­ar­morð Ísraela á Palest­ínu­mönnum á sér stað fyrir framan augum heims­ins.

Kvik­myndin Zone of Interest eftir Jonathan Glazer hefur farið sig­ur­för um heim­inn að und­an­förnu og er meðal ann­ars til­nefnd til fimm Ósk­arsverð­launa. Kvik­myndin, sem sýnd er í Bíó Paradís, fjallar um Rudolph Höss, stjórn­anda Auschwitz útrým­inga­búða nas­ista í seinni heims­styrj­öld­inni og fjöl­skyldu hans sem bjó upp við búð­irnar. Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks sá hana og skrif­aði um hana á Facebook í dag. Segir hann mynd­ina ekki vera um hel­för­ina sjálfa, heldur þann hugs­ana­gang sem verði að vera til staðar svo hægt sé að fremja slíkan hryll­ing.

„Þetta er í raun ekki mynd um hel­förna heldur það hug­ar­á­stand sem verður ríkj­andi hjá þeim sem fram­kvæma hana og þeim sem láta sig hana engu varða. Þetta er stúdía í ómennsk­unni, firr­ing­unni og sinnu­leys­inu og sam­sekt þeirra sem létu lág­kúru illsk­unnar (bana­lity of evil, sam­an­ber Hönnu Arendt) hvolfast yfir sig. Þetta er að því leyti merk stúdía, ekki á hel­för­inni beint, heldur á því hug­ar­fari sem varð að vera til staðar svo að hel­förin gæti orðið að veru­leika.“

Segir Kristinn að myndin tali að hluta til beint inn í sam­tím­ann.

„Þetta er ekki djúp grein­ing heldur mynd af veru­leika þar sem fólk tekur beinan og óbeinan þátt í þjóð­ar­morði eins og það sé hinn eðli­leg­asti hlutur. Að því leyti talar þessi mynd beint inn í sam­tím­ann. Rudolph Höss, fjöl­skylda hans og vinir, eru í kringum okkur í dag. Nú er búið að myrða 30,412 manns með kerf­is­bundnum hætti fyrir framan nefið á okkur. Meira en 2 millj­ónir manna búa við hungur og ómennskan aðbúnað þar sem dauð­inn er byrj­aður að fella fólk. Börnin sem náðu að sleppa lif­andi og ómeidd undan sprengjuregni og kúlna­hríð eru nú sótt af dauð­anum vegna sultar og sjúk­dóma.“

Kristinn kemur einnig inn á söngvakeppnir og fót­boltalands­leiki þar sem Ísraelar taka þátt og ber saman við kvik­mynd­ina.

„The Zone of inter­est er því áminn­ing um að við erum að sjá ger­ast aftur sem aldrei átti að ger­ast aftur, vegna þess að lág­kúra illsk­unnar gerir það verkum að við spyrnum ekki við fótum. Sá veru­leiki er okkar daga og snertir okkur beint. Sér­stak­lega núna þegar yfir­höfuð þarf að ræða það hvort rétt sé að taka þátt í söngvakeppnum og fót­boltalands­leikjum þar sem fólk merkt ábyrgð­ar­að­ila þjóð­ar­morðs­ins er meðal boðs­gesta.

Þessir íþrótta- og menn­ing­ar­við­burðir verða núna haldnir í fögrum lysti­garði Höss fjöl­skyld­unnar. Það er ekki hægt að úti­loka óhugn­að­inn þó að hann sjá­ist ekki úr garð­inum. Þrátt fyrir glimmer­skýin og tuðru­sparkið á iða­grænum fögrum völlum, mun reyk­ur­inn úr skor­stein­unum og skelf­ing­ar­ópin í börn­unum vera í bak­grunni. Hver og einn ein­asti sem þiggur boðið, sem þátt­tak­andi eða áhorf­andi, mun aldrei geta umflúið eigin ábyrgð á því sem er að ger­ast handan við vegg­inn.“

Lokaorð Kristins eru sterk.

„Boðskortið í Höss garð­inn er merkt þér per­sónu­lega. Þú ræður hvað þú gerir við það en sú ákvörðun mun skil­greina þig og fylgja þér alla tíð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins