„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Katrín um sjókvíaeldi: „Nú þarf innviðaráðherra einfaldlega að skrúfa á sig höfuðið“

Katrín um sjókvíaeldi: „Nú þarf innviðaráðherra einfaldlega að skrúfa á sig höfuðið“

„Eftir höfð­inu dansa lim­irnir, segir mál­tækið enda ljóst að ekki yrði mikið um hreyf­ingar án heil­ans og hvað þá sam­hæfðar dans­hreyf­ingar.“ Þannig byrjar færsla lög­manns­ins Katrínar Odds­dóttur sem hún birti á Facebook í morgun. Færslan, sem fjallar um sjó­kvía­eldi á Íslandi hefur vakið verð­skuld­aða athygli enda skefur Katrín ekki af hlut­unum.

Katrín seg­ist hafa fundað með for­stjórum nokk­urra rík­is­stofn­anna síð­ustu daga, ásamt hópi fólks sem berst gegn sjó­kvía­eldi. „Eftir að hafa fundað með for­stjórum nokkura rík­is­stofn­anna síð­ustu daga, með frá­bærum hópi fólks sem berst gegn sjó­kvíaledi, hef ég margoft hugsað til þessa mál­tækis en reyndar með nokkrum óhugn­aði því eftir því sem við skoðum þetta betur kemur skýrar í ljós að það er engin með almenni­lega yfir­sýn yfir sjó­kvía­ald­is­mál á Íslandi. Hver stofnun horfir með þröngum hætti á sitt vald­svið og sína ábyrgð og segir svo pass gagn­vart öllu öðru því það er ein­hver annar sem á að sjá um það. Þegar hver stofnun gefur svo 15 pró­sent afslátt af sínum lög­bundnu kröfum er afslátt­ur­inn ansi fljótur að nema 150 pró­sent.“

Segir Katrín að vegna þess­arar stöðu geti fjár­sterk fyr­ir­tæki kom­ist upp með að krefj­ast meiri eldis, þrátt fyrir að núver­andi starf­semi þeirra séu ólög­leg. Þá segir lög­mað­ur­inn að eng­inn virð­ist vita hvernig þetta byrj­aði allt saman hér á landi. „Akkúrat í skjóli þess­arar vol­uðu stöðu kom­ast síðan fjár­sterk fyr­ir­tækin upp með að krefj­ast enn meiri eldis sem allra fyrst, þó núver­andi starf­semi þeirra sé þvert á lög. Hér er ágætt að minna á að svo virð­ist sem eng­inn viti hvernig fyrsta ákvörð­unin um að hefja sjó­kvía­eldi á Íslandi var tekin, þetta bara ein­hvern lædd­ist inn í firð­ina okkar og svo hlupu stofn­an­irnar loks á eftir til að reyna að slökkva stærstu eldana og koma ein­hverju fram­tíð­ar­skipu­lagi á iðn­að­inn. Að mínu mati hefur það mis­tek­ist hrapa­lega.“

Þá nefnir hún dæmi um þetta en Mat­væla­stofnun gaf nýverið út rekstr­ar­leyfi í Ísa­fjarð­ar­djúpi en Katrín segir að ef af verður, muni það „rústa hinni óspilltu nátt­úru við Sandeyri á Snæfjalla­strönd.“ Bætir hún við: „Þetta rekstr­ar­leyfi er í að minnsta kosti einu til­felli að veita vil­yrði fyrir rekstri á svæði sem er alfarið ólög­legt að heim­ila sjó­kvía­eldi á í dag. Þetta grund­vall­ast á því að svæðið er í ljós­geislum frá vitum sem tryggja eiga sigl­inga­ör­yggi og við erum bundin alþjóð­legum skuld­bind­ingum til að tryggja. Vega­gerðin ber aftur á móti ábyrgð á að engin mann­virki séu reist í ljós­geislum vit­anna. Það klúðr­að­ist alveg að pæla í þessu þegar svo­kallað haf- og strand­skipu­lag var gert enda virð­ist sú vinna hafa mót­ast að miklu leyti af því að greiða leið þeirra leyfa sem þegar hafði verið sótt um sjó­kvíaledi á fyrir vestan og austan. Síðan þá er enda­laust rætt um mót­væg­is­að­gerðir (til dæmis að þrengja ljós­geisla eða færa vita) en ekk­ert bólar á þeim fram­kvæmdum enn sem komið er. Í milli­tíð­inni hefur ekki ein sjó­kví verið svo mikið sem færð af þessum ástæðum. Ólög­mætið er ein­fald­lega normalíserað.“

Katrín segir einnig að hið nýja rekst­ar­leyfi hafi feng­ist frá MAST þrátt fyrir að Vega­gerðin hefði talið það óásætt­an­legt. Segir hún enn­fremur að stór hluti sjó­kvía­elda á Íslandi séu ólög­mæt. „En víkjum aftur að þessu glæ­nýja rekstr­ar­leyfi frá MAST. Þar hafði nefni­lega Vega­gerðin gert mat á því hvað mætti leyfa og matið var á þá leið að ekki væri ásætt­an­legt með til­liti til sigl­inga­ör­yggis að leyfa fisk­eldi á einu svæð­inu (Arn­ar­nesi). Það virt­ist hins vegar koma for­svars­mönnum Vega­gerð­ar­innar í opna skjöldu að heyra frá okkur á fundi í vik­unni að MAST hefði ekki hlýtt þeirra mati heldur gefið engu að síður út rekstr­ar­leyfi!

Þetta er í raun hið full­komna dæmi um ruglið sem er í gangi í þessum mála­flokki og við­gengst á ábyrgð inn­við­a­ráð­herra. Stór hluti af sjó­kvía­eldi á Íslandi er ólög­mætur því hann er stað­settur í ljós­geislum vita sem er bannað og hver ein­asta kví er ólög­mæt því hana skortir bygg­inga­leyfi sam­kvæmt mann­virkja­lögum sem er skylda fyrir hvert mann­virki að hafa.“Þá segir hún ástandið í þessum málum sé svipað og sam­tal ung­lings við for­eldra sína, um það hvort hann fái bíl­inn lán­aðan.„Ofan á þetta bæt­ist svo þessi kerf­is­læga til­hneig­ing sem ég er að reyna að lýsa hér um að allir stimpla bara sitt og engin beri ábyrgð á heild­ar­afleið­ing­unum – sem eru hæg­fara vist­moð gegn íslenskri nátt­úru og sjald­gæfum dýra­teg­undum.Þetta er dálítið eins og svona sam­tal:Mamma má ég fá bíl­inn?Ef pabbi þinn leyfir.Pabbi má ég fá bíl­inn?Ef mamma þín leyfir.Mamma má ég fá bíl­inn?Ef pabbi þinn leyfir.Pabbi…Að lokum tekur ung­ling­ur­inn bara bíl­inn enda ljóst að hvor­ugu for­eldr­inu þykir nægi­lega mik­il­vægt að taka raun­veru­lega afstöðu til spurn­ing­ar­innar.

Eftir því sem við görfum meira í þessu rennur betur upp fyrir mér að það er ekki eitt í þessum mála­flokki heldur allt.“

Fleira nefnir hún máli sínu til stuðn­ings, sem hægt er að lesa hér fyrir neðan en í lok færsl­unnar skýtur hún á inn­an­rík­is­ráð­herr­ann, sem hún segir að beri ábyrgð á ástand­inu.

„Nú þarf inn­við­a­ráð­herra ein­fald­lega að skrúfa á sig höf­uðið. Ábyrgðin á því hvernig komið er fyrir þessum málum er hans.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjókvíaeldi

Katrín rakst á Jens Garðar á barnum: „Sagði ekki mögulegt að stöðva sjókvíaeldi í Seyðisfirði“
Innlentsjókvíaeldi

Katrín rakst á Jens Garðar á barnum: „Sagði ekki mögu­legt að stöðva sjó­kvía­eldi í Seyð­is­firði“

Katrín Odds­dóttir seg­ist hafa rek­ist á Jens Garðar Helgason sem tjáði henni að ekki væri mögu­leiki á að stöðva fyr­ir­hugað sjó­kvía­eldi í Seyði­firði. Und­ir­skriftir gegn þeim áformum eru orðnar fleiri en 10.000. „Rakst á Jens Garðar á barnum í gær og hann sagði að það væri ekki mögu­legt að stöðva sjó­kvía­eldi í Seyð­is­firði,“ skrif­aði lög­fræð­ing­ur­inn og aðgerð­ar­sinn­inn Katrín Odds­dóttir á...
„Erum við svo komin á Íslandi að við þekkjum ekki annað en peningalykt?“
Innlentsjókvíaeldi

„Erum við svo komin á Íslandi að við þekkjum ekki annað en pen­inga­lykt?“

Stefán Ómar Stef­áns­son van Hagen spyr hvort Íslend­ingar þekki ekki annað en pen­inga­lykt. Stefán Ómar, sem er upp­al­inn Seyð­firð­ingur búsettur í Kaup­manna­höfn, skrif­aði færslu á Facebook þar sem hann talar um mis­mun­andi gæði laxa, eftir því hvort um sé að ræða villta laxa eða þá sem koma úr „drullugum kvíum“. Stefán Ómar.Mynd: Facebook „Hjá Birni í Brekku­koti í annál Halldórs...
Blammerar Múlaþing:„Ef ég væri Seyðisfjörður myndi ég sækja um skilnað úr þessu léléga hjónabandi“
Innlentsjókvíaeldi

Blammerar Múlaþing:„Ef ég væri Seyð­is­fjörður myndi ég sækja um skilnað úr þessu léléga hjóna­bandi“

Katrín Odds­dóttir segir for­sendu­brest vera kom­inn í sam­ein­ingu sveit­ar­fé­laga fyrir austan. Lög­fræð­ing­ur­inn Katrín Odds­dóttir er afar ósátt, eins og 75 pró­sent Seyð­firð­inga, með fyr­ir­ætl­anir sveit­ar­stjórnar Múla­þings að leyfa sjó­kvía­eldi í Seyð­is­firði. Bendir lög­fræð­ing­ur­inn á texta sem birt­ist á heima­síðu hins nýja sveit­ar­fé­lags þann 25. mars 2022 og þá sér­stak­lega á eft­ir­far­andi texta: „og um leið er byggð­ar­kjörn­unum áfram tryggt ákvörð­un­ar­vald...
Seyðfirðingar drógu línu í sjóinn – Friðlýstu fjörðinn með neyðarblysum
Landið

Seyð­firð­ingar drógu línu í sjó­inn – Frið­lýstu fjörð­inn með neyð­ar­blysum

Þann 12. októ­ber síð­ast­lið­inn var hald­inn sam­stöðu­fundur gegn sjó­kvía­eldi í Seyð­is­firði undir heit­inu „Við drögum línu í sjó­inn – Verndum Seyð­is­fjörð“. Á fund­inum var sýnt nýtt mynd­band sem sýnir sam­stöðu­gjörn­ing þar sem kajakræð­arar draga línu í sjó­inn með því að raða sér upp í röð, kveikja á neyð­ar­blysum og loka þannig firð­inum með tákn­rænum hætti. Lagið Oral sem Björk Guð­munds­dóttir...
Kæra MAST fyrir að veita Arnarlaxi rekstrarleyfi: „Stofnanir hafa ekki sjálfstæðan vilja“
Innlent

Kæra MAST fyrir að veita Arn­ar­laxi rekstr­ar­leyfi: „Stofn­anir hafa ekki sjálf­stæðan vilja“

Íslenski nátt­úru­vernd­ar­sjóð­ur­inn, auk NASF, land­eig­endur og íbúar á Vest­fjörðum hafa nú kært útgáfu MAST á rekstr­ar­leyfi handa Arn­ar­laxi fyr sjó­kví­elda á laxi í Ísa­fjarð­ar­djúpi. „Við hjá Íslenska nátt­úru­vernd­ar­sjóðnum höfum ásamt NASF, land­eig­endum og íbúum á Vest­fjörðum kært til úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála útgáfu Mat­væla­stofn­unar (MAST) á rekstr­ar­leyfi handa Arn­ar­laxi fyrir sjó­kvía­eldi á laxi í utan­verðu Ísa­fjarð­ar­djúpi, út af Drangs­vík, Eyjahlíð...
Vill halda þjóðfund um sjókvíaeldi: „Lagasetningin fullkomlega fáranlegt að mínu mati“
Innlentsjókvíaeldi

Vill halda þjóð­fund um sjó­kvía­eldi: „Laga­setn­ingin full­kom­lega fár­an­legt að mínu mati“

Katrín Odds­dóttir stingur upp á þjóð­fund um sjó­kvía­eldi. Katrín Odds­dóttir lög­fræð­ingur, segir Artic Fish vera rústa íslenskri nátt­úru. Lög­fræð­ing­ur­inn og bar­áttu­konan Katrín Odds­dóttir hefur verið einn ötul­asti and­stæð­ingur sjó­kvía­eld­is­frum­varps­ins sem lagt var fram í vor af mat­væla­ráð­herra Vinstri grænna. Og hún hefur ekk­ert gefið eftir í and­stöðu sinni þó að afgreiðsla frum­varps­ins hafi frest­ast fram á haust. Í nýrri Facebook-færslu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins