„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Handrit að Óskarstilnefndri kvikmynd sagt stolið: „Sönnunargögnin eru í raun yfirþyrmandi“

Handrit að Óskarstilnefndri kvikmynd sagt stolið: „Sönnunargögnin eru í raun yfirþyrmandi“

Höfundar The Holdovers, sem til­nefnd er til Ósk­ars­ins sem besta kvik­myndin, er sak­aður um rit­stuld.

Í nótt fer fram Ósk­arsverð­launa­há­tíðin en nú er komið upp helj­ar­innar hneyksli vegna kvik­myndar sem hlotið hefur fimm til­nefn­ingar til Ósk­ars­ins, þar á meðal sem besta myndin og besta hand­ritið.

Simon Steph­en­son, sem þekkt­astur er fyrir skrif sín fyrir kvik­mynd­irnar Luca og Padd­ington 2, hefur stigið fram með grafal­var­legar ásak­anir, sem hann sendi á Hand­rits­höf­unda­sam­band Banda­ríkj­anna (WGA), í tölvu­pósti en Variety birti úr honum.

Simon Steph­en­son

Hand­rits­höf­und­ur­inn heldur því fram í tölvu­póst­inum að leik­stjóri „The Holdovers“, Alex­ander Payne, hafi lík­lega lesið hand­ritið að furðu líkri kvik­mynd sinni „Frisco“ þegar hún komst á svo­kall­aðan „svarta lista“ iðn­að­ar­ins í Hollywood árið 2013 en það eru þau hand­rit sem þykja lofa góðu, en hand­ritið náði hæst þriðja sæti list­ans.

„Sönn­un­ar­gögnin um að hand­rit­inu hafi verið stolið, línu fyrir línu frá „Frisco“, eru í raun yfir­þyrm­andi – hver sá sem horfir á jafn­vel stysta mynd­brotið notar nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust orðið „skammar­legt“,“ skrif­aði Steph­en­son í tölvu­póst­inum sem hann sendi til for­mann WGA, Lesley Mackey, eftir að hafa rætt við hann um lík­indi mynd­anna.

„Frisco“ er drama sem fjallar um pirraðan starfs­mann barna­spít­ala sem neyð­ist til að líta eftir 15 ára nem­anda sínum – svipað og Paul Giamatti, sem leikur leik­skóla­kenn­ara sem eyðir jóla­frí­inu með vand­ræðaung­lingi, leik­inn af Dominic Sessa, og kaffi­stofu­stjóra skól­ans, leikin af Da’Vine Joy Randolph.

Steph­en­son bar nákvæm­lega saman mynd­irnar tvær, atriði fyrir atriði auk mik­il­vægra atriða og sam­ræðna.

Hann heldur því fram að Payne hafi skoðað Frisco-hand­ritið árið 2013 og fengið það aftur seint á árinu 2019, áður en hann leit­aði til  David Hem­ing­son, sem ekki hafði skrifað hand­rit að kvik­mynd áður, um að gera „The Holdovers“. Hem­ing­son er einnig titl­aður sem fram­leið­andi mynd­ar­innar.

Í póst­inum til stjórnar WGA, sem Steph­en­son sendi 25. febr­úar sagði hann: „Ég get sýnt fram á, þannig að það sé hafið yfir allan mögu­legan vafa, að merk­ing­ar­bær heild hand­rits kvik­myndar sem er með WGA-við­ur­kenn­ingar, og á mögu­leika á Ósk­arsverð­laun, hefur verið stolin línu fyrir línu, úr vin­sælu en ófram­leiddu hand­riti mínu. Ég get líka sýnt fram á að leik­stjóri kvik­mynda­irnnar hafi fengið hand­ritið mitt sent tvisvar sinnum, áður en gerð kvik­mynd­ar­innar fór af stað.“

Steph­en­son heldur því fram að aðeins fimm partar The Holdovers, séu ekki stolnir frá Frisco hand­rit­inu, þar á meðal baksaga um ein­hvern sem kemst upp með rit­stuld, kald­hæðn­is­lega.

„Þegar ég tala um „merk­inga­bæra heild“, meina ég bók­staf­lega allt, sagan, per­sónur, upp­bygg­ing, atriði, sam­töl, allt saman. Sumt af þessu er svo brjál­æð­is­lega skammar­legt: Margar af mik­il­væg­ustu senum mynd­ar­innar hafa ekk­ert verið breyttar og eru jafn­vel sýni­lega alveg eins í upp­setn­ing­unni á blað­síð­unni. “

WGA svar­aði Steph­en­son og sagði að þetta sé ekki mál sem snerti sam­tökin en benti honum á lög­fræði­stofu í Los Angeles og sagði Steph­en­son að lög­sókn væri „enn raun­hæf­asti kost­ur­inn í þessum kring­um­stæðum.“

The Holdovers er til­nefnd til fimm Ósk­arsverð­launa, meðal ann­ars fyrir besta upp­runa­lega hand­ritið.

Steph­en­son og Payne neit­uðu að tjá sig við Variety.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hollywood

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“
Menning

Hund­ur­inn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi“

Hollywood-stjarnan Dwayne „The Rock“ Johnson minn­ist hunds­ins síns, sem lést í gær. Ein stærsta Hollywood-stjarnan, á tvenna vegu, Dwayne „The Rock“ Johnson birti í morgun ljúfsárar ljós­myndir af hund­inum hans, Hobbs, sem lést í gær, á Instagram-reikn­ingi sínum. „Hvíl í friði, Hobbs. Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi, en við erum svo þakk­lát fyrir hvern ein­asta eyri af hreinni...
Playboy-stúlkan Ariane Bellamar bráðkvödd
Menning

Playboy-stúlkan Ariane Bellamar bráð­kvödd

Playboy-stúlkan Ariane Bellamar er látin en hún var aðeins 46 ára gömul. Samkvæmt dán­ar­vott­orði sem fjöl­miðlar vest­an­hafs hafa undir höndum fékk fyr­ir­sætan hjarta­á­fall á aðfanga­dag í fyrra. Auk þess að vera fyr­ir­sæta kom hún fram í þátt­unum Beverly Hills Nannies og The Milli­onaire Matchmaker. Þá lék hún einnig lítil hlut­verk í kvik­mynd­unum Suicide Squad og The Hangover Part III. Hún...
Aubrey Plaza kom fram í fyrsta skipti frá andláti eiginmannsins – MYNDSKEIÐ
Menning

Aubrey Plaza kom fram í fyrsta skipti frá and­láti eig­in­manns­ins – MYNDSKEIÐ

Aubrey Plaza kom fyrst fram opin­ber­lega í gær­kvöldi, eftir hörmu­legt and­lát eig­in­manns hennar sem féll fyrir eigin hendi fyrr á þessu ári. Aubrey kynnti tón­list­ar­at­riði Miley Cyrus og Brittany Howard á 50 ára afmæl­is­há­tíð „Saturday Night Live“ á sunnu­dags­kvöldið. Þetta er í fyrsta sinn sem almenn­ingur sér Aubrey síðan eig­in­maður hennar, Jeff Baena lést í byrjun jan­úar. Nokkrum dögum eftir...
Jóhannes Haukur buffaður
Menning

Jóhannes Haukur buff­aður

Íslend­ingar geta séð full­trúa sinn í nýj­ustu Marvel-ofur­hetju­mynd­inni, Captain America: Brave New World en Jóhannes Haukur Jóhann­es­son fer þar með hlut­verk. Jóhannes Haukur leikur þar mála­lið­ann Lawrence Chesney/Copperhead sem starfar náið með Seth Voelker/Sidewinder, sem Giancarlo Esposito túlkar. Um er að ræða fjórður Captain America kvik­mynd­ina frá Marvel en þetta er sú fyrsta þar sem Athony Dwane Mackie leikur kaftein­inn...
Ljósbrot heldur áfram að sigra heiminn – Hefur unnið 14 alþjóðleg kvikmyndaverðlaun
Menning

Ljósbrot heldur áfram að sigra heim­inn – Hefur unnið 14 alþjóð­leg kvik­mynda­verð­laun

Það var mikið um dýrðir og margt um mann­inn við loka­at­höfn alþjóð­legu kvik­mynda­há­tíð­ar­innar í Gauta­borg í gær­kvöldi. Hápunktur athafn­ar­innar var þegar dóm­nefndin til­kynnti að íslenska kvik­myndin, Ljósbrot eftir Rúnar Rún­ars­son, hefði hlotið aðal­verð­launin á kvik­mynda­há­tíð­inni. Verð­launa­féð er eitt af þeim stæðstu í þessum geira, rétt rúm­lega fimm milljón króna. Kvik­mynda­hátíðin í Gauta­borg er helsta kvik­mynda­hátíð Norður­land­anna. Árlega sækja á annað...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza