„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ísraelski fréttastjórinn virðist hafa vitað af herferðinni gegn Bashar: „Litlar hamingjustundir“

Ísraelski fréttastjórinn virðist hafa vitað af herferðinni gegn Bashar: „Litlar hamingjustundir“
Bashar Murad. Mynd: RÚV-skjáskot

Frétta­stjóri næt­ur­frétta á KAN, ísra­elska rík­is­út­varp­inu, virð­ist hafa vitað af her­ferð sem Yogev Segal, stjórn­andi Facebook-hóps­ins Israeli-Icelandic conversation og starfs­maður KAN, stóð fyrir og var ætlað að fá Íslend­inga til að kjósa Heru Björk í stað Bashar Murad í Söngvakeppni sjón­varps­ins.

Sjá einnig: Starfs­maður ísra­elska rík­is­út­varps­ins stóð fyrir her­ferð gegn Bashar í Söngvakeppn­inni

Svar Yogev Segal

Yogev Segal sendi Mannlífi skila­boð í kjöl­far fréttar mið­ils­ins um tengls hans við KAN og þá her­ferð sem hann fór í fyrir Söngvakeppni sjón­varps­ins, þar sem hann hvatti með­limi í nýstofn­uðum Facebook-hópi, til að sann­færa tvo til þrjá vini eða ætt­ingja til að kjósa Heru Björk Þór­halls­dóttur í keppn­inni, til að koma í veg fyrir að Palest­ínu­mað­ur­inn Bashar Murad bæri sigur úr býtum.

Í skila­boð­unum við­ur­kennir Segal að hann sé starfs­maður KAN, en gerir lítið úr því starfi. „Já, ég vinn hjá KAN – Rík­is­út­varpi Ísrael. Sem útsend­inga­stjóri, ein­ungis tækni­staða. Þetta er dag­vinna mín og hefur ekk­ert að gera með hóp­inn sem ég stofn­aði.“ Segal heldur áfram og seg­ist fyrst og fremst vera mann­eskja sem elski Ísland. „Þó að ég starfi hjá KAN er ég fyrst og fremst mann­eskja sem elskar Ísland og Íslend­inga, sem hef heim­sótt Ísland margoft og hjálpað öðrum að skipu­leggja ferðir til Íslands. Ég stofn­aði þennan hóp því mér fannst Ísraelar fá ranga mynd af Íslandi og Íslend­ingum. Því flestir Íslend­ingar sem ég þekki eru ynd­is­legir, gest­risið fólk sem kemur fram við mann af virð­ingu, óháð póli­tískum skoð­unum þeirra.“

Þá seg­ist Segal vera mik­ill Eurovision aðdá­andi og að hann hafi hafið her­ferð­ina sem unn­andi Íslands og Eurovision og að þetta hafi ekk­ert komið vinnu sinni við. „Og enn segi ég að þetta er lítið fram­tak í hópi örfárra manna, ég hef leyfi til að segja mína skoðun eins og aðrir – þeir sem kusu Hara er íslenska þjóðin, ekki ég.“

Í skila­boð­unum sak­aði Segal Mannlíf um sam­sær­is­kenn­ingar. „Þið gerðuð þetta aftur. Búið til fyr­ir­sagnir upp úr engu til að bæta í sam­sær­is­kenn­ing­arnar ykkar. Og í þetta skiptið réð­ust þið á mig per­sónu­lega. Þið eruð frétta­mið­ill, eruð þið viss um að það að taka hluti úr sam­hengi og styrkja sam­sær­is­kenn­ingar, sé ykkar vinna?“

Fréttastjóri KAN

Mannlífi barst skjá­skot af færslu rit­stjóra næt­ur­frétta KAN, Mor Levy á sam­fé­lags­miðl­inum X (áður Twitter). Þar fagnar hann því að Bashar Murad hafi lútið í lægra haldi fyrir Heru Björk í Söngvakeppni sjón­varps­ins og virð­ist vita af her­ferð Segals en hann segir eft­ir­far­andi: „Litlar ham­ingju­stundir: Palest­ínski söngv­ar­inn sem reyndi að keppa fyrir hönd Íslands í kom­andi Eurovision söngvakeppn­inni og hélt áfram að bera sakir á Ísrael í kvöld, tap­aði líka algjör­lega – og mun ekki kom­ast í keppn­ina. Í stað hans keppir söng­konan og þetta lag – mögu­lega í kjöl­far ákalls Ísraela til Íslend­inga und­an­farna daga, um að styðja hana.“

Hér fyrir neðan má sjá að Mor Levy er frétta­stjóri næt­ur­frétta KAN, sam­vkæmt X-reikn­ing hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins