„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hera keppir í Eurovision – Lögfræðingur telur að jafnræðissreglan hafi verið brotin

Hera keppir í Eurovision – Lögfræðingur telur að jafnræðissreglan hafi verið brotin
Hera Björk. Mynd / Hallur Karlsson

Hera Björk Þór­halls­dóttir mun keppa fyrir hönd Íslands í Eurovision í Malmö í maí. Þetta segir í til­kynn­ingu frá Rík­is­út­varp­inu sem birt­ist í dag. Lög­fræð­ingur segir að jafn­ræð­is­reglan hafi verið brotin við atkvæða­greiðslu í Söngvakeppni sjón­varps­ins.

RÚV til­kynnti í dag að Hera Björk keppi fyrir hönd Íslands í Eurovion í maí, með lagið Scared of Heights. Segir í til­kynn­ing­unni að ágallar í kosn­inga­app­inu RÚV Stjörnur, sem notað var til að velja sig­ur­vegar auk hefð­bund­inni síma­kosn­inu, hafi komið niður á báðum lög­unum í úrslita­ein­víg­inu. Fyrir mis­tök hafi til­tek­inn mögu­leiki ekki virkað almenni­lega, bæði í fyrra­kosn­ing­unni og í þeirri seinni. „Atkvæðin sem mögu­lega mis­fór­ust vegna þess­arar villu voru enn færri en talið var í fyrstu og alveg ljóst að þetta hafði engin áhrif á loka­nið­ur­stöð­una. Hera Björk er óum­deildur sig­ur­veg­ari Söngvakeppn­innar 2024.“

Facebook-hópur sem kallar sig Réttlæti fyrir stuðn­ings­fólk Bashar safn­aði saman skjá­skotum af frá­sögnum fólks sem lenti í vand­ræðum með að kjósa Bashar í keppn­inni og sendi á Stefán Eiríks­son útvarps­stjóra. Með skjá­mynd­unum sendu þau einnig rök fyrir óháðri rann­sókn á kosn­ing­unni í loka­ein­vígi Söngvakeppn­innar. Segir hóp­ur­inn, sem telur um 1200 manns, að van­kantar hafi verið á öllum þremur kosn­inga­leið­unum á úrslita­kvöld­inu: Í síma­kosn­ing­unni, í app­inu og sms. Til að mynda hafi komið upp á síma­skjá fólks sem sló inn númer Bashar, að mögu­lega væri um svika­númer að ræða. Vill hóp­ur­inn meina að það hafi valdið því að margir hafi veigrað sér frá því að hringja í núm­erið.

Þá benti hóp­ur­inn útvarps­stjóra einnig á að lög­fræð­ingur sem skoð­aði málið telji að jafn­ræð­is­reglan hafi verið brotin við fram­kvæmd kosn­ing­anna.

Hér má sjá bréf sem útvarps­stjóri og stjórn RÚV fékk frá hóp­inum:

Til útvarps­stjóra og stjórnar RÚV

Rök­stuðn­ingur fyrir óháðri rann­sókn á kosn­ingu í loka­ein­vígi Söngvakeppn­innar  2.3. sl. 

Tekið saman af hópi sem krefst rétt­lætis fyrir stuðn­ings­menn Bashars Murad. 

Um leið og farið er fram á óháða rann­sókn krefj­umst við þess að RÚV stað­festi ekki þát­töku Heru í  Eurovision fyrr en að nið­ur­staða slíkrar rann­sóknar liggur fyrir.  

Strax þann 3.3. sl. lagði Einar Stef­áns­son einn laga­höf­unda Wild West, fram kröfu um að óháð rann­sókn yrði  fram­kvæmd á kosn­ingu í ein­vígi Söngvakeppn­inar. Rökin voru fjöldi skjá­skota sem honum hafði borist sem sýndu að kosn­ingin hafði ekki gengið hnökra­laust fyrir sig.  

Fyrir liggur að RÚV hefur aðeins við­ur­kennt van­kanta á atkvæða­greiðslu þegar kemur að SMS atkvæðum  greiddum í gegnum RÚV stjörnur appið, sem RÚV til­tekur að séu ekki nógu mikið frá­vik til að hafa áhrif á nið­ur­stöðu kosn­ing­ar­innar (innan við 2% heild­ar­at­kvæða) Að okkar mati er það ekki hafið yfir vafa þar sem ein­ungis mun­aði 3,368 atkvæðum á á á milli Bashar Murad  og Heru þegar atkvæði ein­víg­is­ins höfðu verið talin. 

Við und­ir­rituð krefj­umst svara við öðrum frá­vikum sem sýnt hefur verið fram á með skjá­skotum en RÚV hefur ekki veitt full­nægj­andi svör við og fram til þessa hunsað kröfur laga­höf­undar og okkar um sjálf­stæða  og óháða rann­sókn á mál­inu. Með rök­stuðn­ingi þessum leggjum við til skjá­skot af upp­lif­unum kjós­enda sem  við höfum safnað saman að eigin frum­kvæði. 

Hægt var að greiða atkvæði eftir þremur leiðum: 

  1. Síma­kosn­ing 
  2. App­kosn­ing – sem var tví­þætt 
  3. SMS í gegnum app. 

Á öllum þessum leiðum höfum fundið van­kanta og eigum skjá­skot sem sína það. Við teljum afgreiðslu  útvarps­stjóra því ekki stand­ast.  

Síma­kosn­ing 

Víð­tæk­asta vanda­málið í heild­ar­kosn­ing­unni var að kosn­inga­númer Bashars fékk ruslflöggun í símum fjölda  not­enda eins og fjöldi  skjá­skota sýna. Kjós­endur hans urðu varir um sig á meðan á kosn­ingu stóð útaf þess­ari flöggun sumir brugðu  á það ráð að prófa að kjósa annað númer ein­fald­lega til að kanna hvort sama gerð­ist í því til­viki. Við höfum  engin dæmi þess að slíkt hafi gerst með núm­erið fyrir Heru. Þá erum við einnig með skjá­skot sem sýna fram  á að fólk hætti að hringja í kosn­inga­númer Bashars útaf þess­ari til­kynn­ingu. 

Fyrir liggur að ein­hverjir ein­stak­lingar hafa sent útvarps­stjóra ábend­ingu vegna þessa og fengið svör á þá leið  að: 

  1. Atkvæðin hjá þeim sem hringdu hafi þó skilað sér 
  2. Að um still­ing­ar­at­riði í síma kjós­enda sé að ræða sem RÚV getur ekki borið ábyrgð á.

Þessi svör teljum við ófull­nægj­andi og viljum benda á að það er óum­flýj­an­legt að svona merk­ing á núm­eri hefur letj­andi áhrif á það að fólk haldi áfram að hringja. Það hlýtur líka að telj­ast alvar­legt  að vanda­málið virð­ist aðeins hafa átt við um kosn­inga­númer Bashars, þ.a.l heldur svar 1 ekki vatni þar sem fleiri atkvæði hefðu án efa skilað sér ef þessi flöggun hefði ekki átt sér stað. Svar 2 um still­ing­ar­at­riði í símum  kjós­enda teljum við ein­fald­lega rangt.  

Síma­númer fá flöggun undir nokkrum kring­um­stæðum: 

  1. Þegar fjöldi not­enda til­kynnir númer hand­virkt sem spam.  
  2. Þegar síma­númer hringir fjölda sím­tala (úthring­ingar) sem standa stutt yfir á stuttum tíma.
  1. Þegar númer er ekki skráð sem prem­ium númer af þjón­ustu­veit­anda. 

Ekkert af þessum þremur liðum er eitt­hvað sem kjós­endur geta haft áhrif á með still­ingum í síma sínum.  Það hefði hins vegar verið hægt fyrir RÚV að fylgj­ast betur með því að ekki væri verið með her­ferð gegn einu  núm­eri umfram annað. Það hefði RÚV getað gert með virku eft­ir­liti með kosn­ing­unni og fylgst þannig með  réttri skrán­ingu núm­era. RÚV hefði þannig getað komið því á fram­færi að hunsa til­kynn­ingar um rusl­númer í  útsend­ing­unni ef virkt eft­ir­lit hefði verið í gangi. 

SMS kosn­ing í gegnum app 

RÚV hefur við­ur­kennt að mis­tök hafi verið á þessum lið en telur þau ekki nægj­an­leg til að hafa áhrif á nið­ur­stöðu. Við teljum að nánair útskýr­ingar þurfi á þessum vanköntum til að treystsa að gagn­sæi sé við­haft. Gera þarf grein fyrir því hvernig kom­ist er að nið­ur­stöðu um hve mörg atkvæði þetta hafði áhrif á og hvernig reiknað hefur verið út hámarks­á­hrifin af þeim atkvæðum sem ekki skil­uðu sér. Í þeim efnum minnum við á  að á hversu litlu mun­aði á heild­ar­fjölda atkvæða milli flytj­enda og fyrir liggur að atkvæði frá Bashar fóru til  Heru en ekki er vitað til þess að atkvæði Heru hafi farið með sama hætti yfir á Bashar. 

App kosn­ing 

Við höfum fengið skjá­skot af þrenns konar vanda­málum með app kosn­ingu: 

  1. Að atkvæði hafi verið end­ur­greidd.  
  2. Að aðilar hafi getað kosið oftar en 20x í hvorum hluta og rukk­aðir fyrir öll atkvæðin.  c. Að reynt hafi verið að kjósa í gegnum app en ekk­ert atkvæði farið í gegn.  

Þetta sýnir að stórir van­kantar eru á for­rit­inu sem liggur að baki miklum hluta heild­ar­at­kvæða í kosn­ing­unni í  ein­víg­inu. Það er því engan vegin hafið yfir vafa að þessir van­kantar hafi ekki haft áhrif á kosn­ing­una.  

Með­fylgj­andi eru skjá­skot sem safnað hefur verið saman á FB hópi sem safn­ast hefur saman undir heit­inu Réttlæti fyrir stuðn­ings­menn Bashars. Með rök­stuðn­ingi þessum viljum við ítreka kröf­una um sjálf­stæða og óháða rann­sókn. Afrit af rök­stuðn­ingi þessum verður sent Útvarps­ráði og fjöl­miðlum.

Hér fyrir neðan má svo sjá brot af þeim skjá­skotum sem hóp­ur­inn sendi með áskor­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins