„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Fjarstæðukennt að halda því fram að Krónan hafi fórnað hagsmunum viðskiptavina sinna“

„Fjarstæðukennt að halda því fram að Krónan hafi fórnað hagsmunum viðskiptavina sinna“
Guðrún Aðal­steins­dóttir Myndin er sam­sett/kronan.is

„Krónan áréttar að í nóv­em­ber á síð­asta ári var samn­ingi við Wok On sagt upp með samn­ings­bundnum upp­sagn­ar­fresti. Var þetta gert í kjöl­far fregna af mat­vælala­gernum í Sóltúni. Á þessum tíma­punkti lá ekki fyrir það sem komið hefur fram í fjöl­miðlum síð­ustu daga um rekstur þess­ara staða; rök­studdur grunur um man­sal og annað glæp­sam­legt athæfi. Þegar það lá fyrir var stöð­unum lokað, samn­ingi rift og merk­ingar teknar niður,“ ritar Guðrún Aðal­steins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Krón­unnar, í grein á vísi.is. 

Ástæðan sem liggur að baki skrifa fram­kvæmda­stjór­ans eru ummæli Ólafs Hauks­sonar, almanna­teng­ils og hlut­hafa í Festi, móð­ur­fé­lagi Krón­unnar. Vill Ólafur meina að þrátt fyrir að for­svars­menn Krón­unnar hafi vitað  um teng­ingu Wok On og mat­vælala­gers­ins að Sóltúni hafi versl­un­ar­kveðjan haldið áfram að selja við­skipta­vinum sínum mat frá fyr­ir­tæk­inu.

Guðrún upp­lýsir að Wok On hafi verið rekið af sjálf­stæðum rekstr­ar­að­ilum og á eigin starfs­leyfi. Þess auki hafi komið yfir­lýs­ing frá rekstr­ar­að­ila að eig­andi lag­ers­ins að Sóltúni kæmi ekki að rekstri Wok On stað­anna, heldur væru birgjar þeirra við­ur­kenndir aðilar.

„Það sama var gert á fundum með Krónunni, þar sem stjórn­endur Krón­unnar voru full­viss­aðir um að engin mat­væli frá umræddum mat­vælala­ger hefðu komið inn á stað Wok On í Krónunni. Að auki stað­festu þáver­andi for­svars­menn Wok On að stað­ur­inn upp­fyllti öll skil­yrði um heil­næmi og með­ferð mat­væla en það kemur skýrt fram í samn­ingum Krón­unnar að heil­brigð­is­reglu­gerðum skuli fylgt í hví­vetna af hálfu rekstr­ar­að­ila. Krónan treysti því að starfs­leyfi Wok On yrði aft­ur­kallað ef starf­semin upp­fyllti ekki skil­yrði Heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins. Einnig er vert að taka fram að Krónan hefur ítrekað fengið hæstu ein­kunn frá Heil­brigð­is­eft­ir­lit­inu og alltaf haft það að mark­miði að við­halda hæstu stöðlum í þeim efnum.“

Gripið hefur verið til þeirra samn­ings­bundnu laga­legu úrræða af hendi Krón­unnar, með vel­ferð við­skipta­vina að leið­ar­ljósi útskýrir Guðrún og bætir við:

„Það er því fjar­stæðu­kennt að halda því fram að Krónan hafi fórnað hags­munum við­skipta­vina sinna til að forða Krónunni frá hugs­an­legri skaða­bóta­skyldu.“

Að end­ingu skrifar Guðrún:

„Við sjáum það núna í ljósi þessa hörmu­lega máls að Krónan þarf að gera ítar­legri kröfur á þá sem reka sjálf­stæð veit­inga­rými innan versl­ana varð­andi upp­lýs­inga­gjöf úr nið­ur­stöðum Heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins. Krónan mun gera þessar nið­ur­stöður sýni­legar við­skipta­vinum stað­anna þannig að öllum verði ljóst áður en þeir versla á við­kom­andi stöðum hvaða ein­kunn þeir fá frá Heil­brigð­is­eft­ir­lit­inu. Krónan fagnar auknu gagn­sæi og hvetur aðrar mat­vöru­versl­anir, mat­hallir og veit­inga­staði til að gera slíkt hið sama.

Hags­munir við­skipta­vina Krón­unnar hafa verið og verða ávallt í fyr­ir­rúmi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins