„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Atli prófessor telur kynþáttahatur á Íslandi vera sýnilegt: „Hundgömul klisja“

Atli prófessor telur kynþáttahatur á Íslandi vera sýnilegt: „Hundgömul klisja“
Dr. Atli Harð­ar­son sendir kyn­þátta­höt­urum kaldar kveðjur – Mynd: Skjáskot YouTube

Mikil umræða hefur verið und­an­farnar vikur og mán­uði um hæl­is­leit­endur og hefur orð­ræðan í þeirri umræðu þótt grimm. Telja sumir að umræðan eigi meira skylt við kyn­þátta­hatur en eitt­hvað annað. Einn af þeim er pró­fess­or­inn og heim­spek­ing­ur­inn Atli Harð­ar­son en hann greinir frá þessu í færslu á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook.

„Íslenskt kyn­þátta­hatur virð­ist komið út úr skápnum og fleiri og fleiri opin­bera smá­sál­ar­skap sinn á Facebook og víðar,“ skrifar Atli um málið en hann hefur starfað hjá Háskóla Íslands síðan 2014 og sem pró­fessor frá árinu 2021. „Þetta hatur er ef til vill ekki allt sömu gerðar. Sumt af því sem bein­ist gegn flótta­mönnum bendir til að sam­viska margra nái ekki vel að festa svefn. Opinbera línan nú um stundir virð­ist vera að segja við hæl­is­leit­endur: „Við getum því miður ekki tekið við ykkur því hér er allt fullt og vantar hús­næði og aðrar bjargir.“ Þetta er ekki nema svona rétt mátu­lega trú­legt. Helst þarf að bæta ein­hverju við sög­una til að sam­viskan hrökkvi ekki upp með and­fælum.“

„Ein hand­hæg­asta við­bótin sem liggur á lausu er hund­gömul klisja um að fólk sem er öðru vísi á lit­inn sé óþjóð­lýður. Með því að tönnlast á henni er ögn auð­veld­ara að láta nauð­leit­ar­menn synj­andi frá sér fara.“

Þing­konan Brynja Dan Gunn­ars­dóttir tekur í sama streng og Atli og setti það í sam­hengi við rasísk ummæli Helga Helga­sonar, fyrr­ver­andi kenn­ara Mennta­skól­ans að Laug­ar­vatni.

„Ég hvet því allar sveita­stjórnir til að taka þessu alvar­lega; að setja af stað ein­hvers konar aðgerð­ar­á­ætlun sem unnin er með fag­fólki. Að taka af skarið og vera leið­andi. Stað­reyndin er sú að þeir sem eru af erlendu bergi brotnir búa við annan veru­leika. Það þarf að hafa skýrt verk­lag í við­brögðum við ras­isma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins