„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvaði starfsemi 36 mismunandi fyrirtækja

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvaði starfsemi 36 mismunandi fyrirtækja
Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur stöðv­aði starf­semi Hrað­lest­ar­innar að hluta – Mynd: Hradlestin.is

Mikið hefur rætt und­an­farna daga og vikur um störf Heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur en með vinnu sinni spil­aði starfs­fólk þar stórt hlut­verk í lög­reglu­rann­sókn sem leiddi til þess að níu ein­stak­lingar hafa stöðu sak­born­ings stóru mansals­máli og hefur nokkrum veit­inga­stöðum sem sak­born­ing­arnir áttu verið lokað. Þar á meðal er Wok On, sem hefur skapað sér stórt nafn í mat­ar­menn­ingu á Íslandi und­an­farin ára­tug.

Eitt af hlut­verkum Heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur er að heim­sækja hin ýmsu fyr­ir­tæki, þar á meðal veit­inga­staði, til að athuga hvort þau stand­ist allar þær kröfur sem gerðar eru til þeirra frá heil­brigð­is­sjón­ar­miðum. Er fyr­ir­tækjum gefin ein­kunn frá 0 upp í 5 eftir hverja skoðun og fylgir nákvæm skýrsla með þar sem er tekið fram hvað þarf að laga.

Á heima­síðu Heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur er greint frá hlut­verki þess á eft­ir­far­andi hátt:

„Hlutverk Heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur er að fara með holl­ustu­hátta-, mat­væla- og meng­un­ar­varna­eft­ir­lit í borg­inni, stuðla að öfl­ugri umhverf­is­vöktun og fræðslu til almenn­ings í Reykja­vík. Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur gefur meðal ann­ars út starfs­leyfi fyrir starfs­leyf­is­skylda starf­semi.“

Twitter-not­and­inn Birkir hefur tekið saman lista af fyr­ir­tækjum úr gagna­grunni Heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur sem hafa fengið 0 eða 1. Listinn er þó ekki tæm­andi þar sem blaða­maður fann einn stað sem birt­ist ekki á lista Birkis. Ljóst er að Heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur hefur stöðvað að minnsta kosti starf­semi 36 mis­mun­andi fyr­ir­tækja að fullu eða hluta und­an­farin ár.

Staðir sem hafa fengið 0 í ein­kunn (feit­letraðir staðir fengu þá ein­kunn 2023 eða 2024)

Götun og Skart
Mat­sölu­vagn Chinese Flavour
Banh Mi Laug­ar­vegi
Shanghai Laug­ar­vegi
The Hungry Chef Cafe
Depla ehf
Dyer
Gastro Truck – Grandi Mathöll
Mat­sölu­vagn Ísland Trea­sures
Shawarma King

Staðir sem hafa fengið 1 í ein­kunn (feit­letraðir staðir fengu þá ein­kunn 2023 eða 2024)

Hrað­lestin – Granda­garði
Haga­bak­arí ehf
Oriental Super Market
Reykja­vík Röst Bístró
Versl­unin Álf­heimar
Mið­aust­ur­landa­mark­að­ur­inn
Wok-On – Fiski­slóð
Sjáv­ar­perlur – Kola­port­inu
10-11 – Aust­ur­stræti*
The Skyr Factory
Prinsinn
KjötMat Meistari ehf
Svansís
Bál – Vín & Grill
Eðal­bílar ehf
Bændur í bænum
La Havana Club
Reykja­vík Roasters – Freyju­götu
Hlemmur Square
Majó Bakari – Laug­ar­nes­vegi 91**
Kram­búðin – Skóla­vörðu­stíg
Dubliner/Paloma***
Hjá Jóa Fel – Hring­braut
Vietnam Restaur­ant – Lauga­vegur
Orange Project kaffi­hús
Hipstur – Mathöll Höfða

*Í gagna­grunni Heil­brið­is­eft­ir­lits Reykja­víkur er að finna þrjár mis­mun­andi ein­kunnir fyrir 10-11 – Aust­ur­stræti og er nýjasta ein­kunn stað­ar­ins 3.

**Í gagna­grunni Heil­brið­is­eft­ir­lits Reykja­víkur er að finna tvær mis­mun­andi ein­kunnir fyrir Majó Bakari – Laug­ar­nes­vegi 91 og er nýjasta ein­kunn stað­ar­ins 2.

***Í gagna­grunni Heil­brið­is­eft­ir­lits Reykja­víkur er að finna tvær mis­mun­andi ein­kunnir fyrir Dubliner/Paloma og er nýjasta ein­kunn stað­ar­ins 3.

Þá er rétt að taka fram að sumum stöð­unum hefur verið lokað og eru ekki lengur staf­andi. Fyr­ir­tækjum gefst tími til að bæta ráð sitt og í því sam­hengi er hægt að benda á að veit­inga­stað­ur­inn Metro hefur fengið 1 í ein­kunn en núna með 3 í ein­kunn.

Í upp­haf­legri útgáfu af frétt­inni var talað um 19 fyr­ir­tæki en sú tala hefur nú verið upp­færð

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins