„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ríkisbankinn kaupir TM tryggingar: „Styrkir rekstur bankans og gerir hann verðmætari“

Ríkisbankinn kaupir TM tryggingar: „Styrkir rekstur bankans og gerir hann verðmætari“
Höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans – Mynd: Landsbankinn

Lands­bank­inn hefur fest kaup á TM Trygg­ingum en greint er frá þessu í til­kynn­ingu bank­ans á heima­síðu hans. Vekur það óneit­an­lega athygli í ljósi þess að íslenska ríkið á rúm 98% í bank­anum. Kaupin er þó háð ýmsum skil­yrðum eins og sam­þykki Seðla­banka Íslands.

Hægt er að lesa alla til­kynn­ing­una hér fyrir neðan:

Lands­bank­inn og Kvika banki hafa kom­ist að sam­komu­lagi um að hefja einka­við­ræður um kaup Lands­bank­ans á TM trygg­ingum hf. („TM“) á grund­velli kauptil­boðs sem bank­inn lagði fram í allt hlutafé félags­ins þann 15. mars sl. Möguleg kaup eru m.a. háð nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­unar og sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands.

Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans, segir:
„Með því að bæta trygg­inga­rekstri við starf­semi bank­ans getum við boðið við­skipta­vinum okkar enn betri og fjöl­breytt­ari þjón­ustu. Kaup á TM er góð fjár­fest­ing sem styrkir rekstur bank­ans og gerir hann verð­mæt­ari til fram­tíðar, enda er TM traust trygg­inga­fé­lag með gott og reynslu­mikið starfs­fólk. Saman erum við með öfl­uga starf­semi um allt land og í góðri stöðu til að sækja fram. Við vitum hvernig á að veita fram­úr­skar­andi fjár­mála­þjón­ustu, eins og sést m.a. á því að við höfum verið efst á banka­mark­aði í Íslensku ánægju­vog­inni fimm ár í röð.“

Helga Björk Eiríks­dóttir, for­maður banka­ráðs Lands­bank­ans, segir:
„Lands­bank­inn starfar á sam­keppn­is­mark­aði og það skiptir veru­legu máli að bank­inn sé áfram verð­mæt eign fyrir hlut­hafa. Í því felst m.a. að meta og sækja tæki­færi á fjár­mála­mark­aði til að við­halda og auka verð­mæti bank­ans. Bankaráð og stjórn­endur hafa um nokk­urt skeið skoðað kosti þess að bæta trygg­ingum við fjöl­breytta þjón­ustu bank­ans, enda fer trygg­inga­starf­semi og rekstur á stórum við­skipta­banka vel saman. Við teljum að með kaupum á TM muni bæði félögin efl­ast og styrkj­ast.“

Upp­lýs­ingar um til­boð og efna­hag
Tilboð bank­ans hljóðar upp á 28,6 millj­arða króna. Sam­komu­lag um einka­við­ræður gildir frá deg­inum í dag til 26. apríl nk. Endanleg greiðsla fyrir félagið er háð kaup­verðs­að­lögun á þeim degi sem bank­inn tekur við rekstri félags­ins.

Um síð­ustu ára­mót voru heild­ar­eignir Lands­bank­ans 1.961 millj­arður króna og eigið fé var 304 millj­arðar króna. Hagnaður bank­ans árið 2023 nam 33,6 millj­örðum króna og sam­kvæmt til­lögu til aðal­fundar mun bank­inn greiða 16,5 millj­arða króna í arð á þessu ári. Ekki er gert ráð fyrir að kaupin hafi áhrif á arð­greiðslu­stefnu bank­ans, sem er að greiða a.m.k. 50% af hagn­aði fyrra árs í arð til hlut­hafa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins