„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Starfsmenn Ríkiskaupa í áfalli: „Sjötíu ára stofnun keyrð í þrot á fjórum árum“

Starfsmenn Ríkiskaupa í áfalli: „Sjötíu ára stofnun keyrð í þrot á fjórum árum“

Starfs­maður Rík­is­kaupa segir að stjórn­endur stofn­un­ar­innar treysti ekki und­ir­mönnum sínum.

Sagt var frá því á dög­unum að fjár­mála­ráð­herra hygg­ist leggja niður Rík­is­kaup og færa verk­efni stofn­un­ar­innar inn í Fjár­sýslu rík­is­ins. Samkvæmt starfs­manni stofn­un­ar­innar er starfs­fólk í áfalli og að margir vilji ekki færa sig yfir í Fjár­sýsl­una. „Sjötíu ára stofnun keyrð í þrot á fjórum árum,“ segir starfs­mað­ur­inn, sem ekki vill láta nafn síns getið, í skrif­legu svari til Mannlífs. Og heldur áfram. „Starfs­fólk er að sjálf­sögðu í sjokki og óvissu með fram­tíð sína. Þess vegna tala margir um að þau vilji ekki færa sig yfir. Það er alveg ljóst að sumir munu ekki gera það, kannski helst að  þeir sem elstir eru og treysta sér síst til að skipta um starfs­vett­vang á síð­ustu árum starfsæf­innar (en margir þeirra eru nú þegar farnir í hreins­unum und­an­farin ár) sem munu færa sig yfir. Flestir munu a.m.k. skoða sig um og athuga með önnur starfstæki­færi. Þá mun enn frek­ari þekk­ing á opin­berum inn­kaupum hverfa á brott frá stofn­un­inni en flestum hefur þótt nóg um í tíð núver­andi stjórn­enda.“

Segir starfs­mað­ur­inn að skila­boðin sem send eru með því að leggja Rík­is­kaup niður, séu þau að starfs­fólk­inu sé ekki treystandi. „Skila­boðin eru svo­lítið í þeim anda að við, starfs­fólkið, séum ekki nógu góð til að sinna verk­efnum um opin­ber inn­kaup. Samt hefur þessi stofnun sinnt þeim verk­efnum í yfir 70 ár sem er ein­stakt þegar horft er til landa Evrópu. Þetta er ein elsta stofnun sinnar teg­undar í alþjóð­legu sam­hengi og hefur sinnt sínum verk­efnum með ágætum. En þegar nýjir og nýút­skrif­aðir stjórn­endur tóku við tók það þá innan við fjögur ár að sann­færa ráð­herra um að stofn­unin stæði ekki undir nafni og það þyrfti að leggja hana niður. Starfs­fólk réði ekki við verk­efnin. Þetta er auð­vitað van­traust stjórn­enda á okkur og eig­in­lega engin leið til að sjá þetta öðru­vísi.“

Þá er starfs­mað­ur­inn allt annað en ánægður með stjórn­enda síð­ustu ár. „Nýjir stjórn­endur lögðu ofurá­herslu á breyt­ingar, oft bara breyt­ing­ana vegna. Það var eins og þau vildu sanna sig í starfi, sama hvað það kost­aði. Kjarna­starf­semi stofn­un­ar­innar var látin sitja á hak­anum og allt kapp lagt á að finna hjólið upp að nýju. Mikið af þeim opin­berum aðilum sem ekki er skylt, heldur hafa til þess val að leita til Rík­is­kaupa (aðrar stofn­anir en A hluta stofn­anir) og sveita­fé­lög hafa gef­ist upp á þjón­ustu okkar. Þess vegna hefur heldur betur dregið úr slag­krafti heild­ar­innar og ávinn­ingi af hag­ræði í inn­kaupum hins opin­bera. Allt kapp hefur verið á væg­ast sagt óskýra fram­tíð­ar­sýn opin­berra inn­kaupa sem engin endir virð­ist vera á.“

Enn­fremur segir starfs­mað­ur­inn að stofn­unin hafi verið rekin með tapi undir nýjum stjórn­endum. „Stofn­unin sem hefur verið rekin af sjálfsaflafé og skilað rekstr­ar­af­gangi er að hluta komin á fjár­lög og skilar samt tapi ár eftir ár undir nýjum stjórn­endum. Þetta ætti að vera skila­boð um lélega stjórnun stjórn­enda en skila­boðin sem við fáum er  að við séum ekki starfi okkar vaxin. Við starfs­fólkið erum ekki starfi okkar vaxin en stjórn­endur er frá­bærir.“

Að lokum segir starfs­mað­ur­inn að stjórn­endum Rík­is­kaupa sé hampað „þó allir sem vilji sjái að sökin er alfarið þeirra.“

„At the end of the day upp­lifum við starfs­menn okkur sem ófull­nægj­andi starfs­menn og það sé betra að ráðu­neytið grípi inn í og bjargi því sem hægt er. Stjórn­endum er hins vegar hampað þó allir sem vilji sjái að sökin er alfarið þeirra. Stofn­unin hefur skilað rekstri hins opin­bera ótví­ræðum ávinn­ingi í yfir 70 ár en nýjir óreyndir stjórn­endur sigldu öllu í stand á innan við fjórum árum.“

Mannlíf sendi spurn­ingar á Söru Lind Guð­bergs­dóttur, tíma­bund­inn for­stjóra Rík­is­kaupa, hvort hún sé sátt við að nú eigi að leggja stofn­un­ina niður og hvernig starfs­fólk taki þessu. Sara Lind, sem hingað til hefur verið mjög til fyr­ir­myndar í svörum sínum til Mannlífs, hefur ekki svarað spurn­ing­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins