Steinunn Árnadóttir, organisti og baráttukona birti í fyrradag nýjar ljósmyndir af því sem hún kallar „Hryllingurinn í Höfða“ en á myndunum má sjá illa farið sauðfé frá bænum Höfða í Borgafirði.

Steinunn hefur í gegnum tíðina verið ötul í að benda á slæmt ásigkomulag sauðfés frá bænum Höfða í Þverárhlíð í Borgarfirði. Hefur hún lengi gagnrýnt Matvælaeftirlitið sem og yfirvöld sveitarfélagsins, en hún segir slæma meðferð á fénu fara fram undir „vökulu eftirliti Matvælastofnunarinnar“.

Færslu Steinunnar má lesa hér fyrir neðan:
„Framhaldssagan úr Hryllingnum:
Þegar búið er að klæða vesalingana úr öllum reifunum kemur í ljós hversu slæmt ástand er á holdafari. Það er afleiðing á afleitri umönnun: fóðurleysi og vatnsleysi.Þetta er undir stöðugu, vökulu eftirliti Matvælastofnunarinnar.Almenningur borgar í þetta með skattpeningum sínum, því þessi búskapur fær umtalsverðar upphæðir fyrir gæðastýringu (sjá inn á mælaborði landbúnaðarins á vef
Stjórnarráðið
(ef)Nú fer í hönd sauðburður!!“




















Athugasemdir