„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Frambjóðandi Röskvu reyndist ókjörgengur: „Mis­tök hafa átt sér stað“

Frambjóðandi Röskvu reyndist ókjörgengur: „Mis­tök hafa átt sér stað“

Uppnám er í stúd­enta­ráðs­kosn­ingum Háskóla Íslands en komið hefur í ljós að fram­bjóð­andi Röskvu til Háskóla­ráðs er ekki kjör­gengur.

Fram­bjóð­and­inn er Rakel Anna Boulter en hún er sitj­andi for­seti stúd­enta­ráðs. Arent Orri J. Claessen, for­maður Vöku, stað­festi í sam­tali við mbl.is að Vaka hafi sent kjör­stjórn erindi um að Rakel Anna væri ekki kjör­geng.

Mikael Berg Stein­gríms­son, for­maður kjör­stjórnar stað­festi svo við mbl.is að erindi hefði borist þeim. „Kjör­stjórn hef­ur borist er­indi frá ann­arri fylk­ing­unni,“ seg­ir Mika­el og bæt­ti við að kjör­stjórn sé með málið til skoð­unar.

Komið hefur í ljós að Rakel er ekki skráð til náms í Háskóla Íslands á yfir­stand­andi skóla­ári en aðeins þeir sem hafa verið skráðir til náms á skóla­ár­inu eru kjör­gengir.

Fram kemur í frétt mbl.is að í minn­is­blaði sem Vaka sendi kjör­stjórn, komi fram að á fram­boði til háskóla­ráðs skuli vera fram­boðs­listar sem sam­an­standa af fjórum fram­bjóð­endum. Heldur Vaka því fram að í ljósi þess að einn fram­bjóð­andi er ókjör­gengur, hljóti allur fram­boðs­listi Röskvu að vera ókjör­gengur. Ástæðan sé sú að ein­ungis þrír fram­bjóð­endur eru til fram­boðs, ekki fjórir eins og kveðið er á um í sam­þykktum.

„Auk­in­held­ur, hljóta áhrif­in að vera þau að list­inn sem slík­ur telj­ist ókjör­geng­ur, þar sem hann upp­fyll­ir ekki skil­yrði sam­þykkt­anna til kjör­geng­is, jafn­vel þó þrír fram­bjóð­end­ur njóti kjör­geng­is, enda er þá ekki um fram­boðs­lista með fjór­um fram­bjóð­end­um að ræða, sbr. áður­nefnd­um c.-liðar 31. gr. sam­þykkt­anna,“ seg­ir í minn­is­blaði Vöku sem mbl.is hef­ur und­ir hönd­um.

Mbl.is barst til­kynn­ing frá Rösku þar sem talað er um að mis­tök hafi átt sér stað.

„Um til­nefn­ing­ar SHÍ til há­skóla­ráðs HÍ gilda ákvæði IX. kafla laga SHÍ, sem aðgengi­leg eru á heima­síðu ráðs­ins. Þar kem­ur fram, í b-lið 31. gr., að kjör­gengi til há­skóla­ráðs hafi all­ir sem skráðir hafa verið til náms við Há­skóla Íslands á yf­ir­stand­andi skóla­ári. Rakel Anna Boulter hef­ur ekki verið skráður nem­andi við Há­skóla Íslands síðan á vor­önn 2023 og er því ekki kjör­geng til þess­ara kosn­inga. Mis­tök hafa átt sér stað þar sem þessi brest­ur kjör­geng­is var eng­um ljós fyrr en á öðrum degi kosn­inga, 21. mars 2024,“ seg­ir meðal ann­ars í til­kynn­ingu frá Röskvu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins