„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ill meðferð erlends kvikmyndatökuliðs á hestum stöðvuð: „Það blæðir ekki undan ofnæmi!!“

Ill meðferð erlends kvikmyndatökuliðs á hestum stöðvuð: „Það blæðir ekki undan ofnæmi!!“
Úr mynd­skeið­inu

Hesta­sam­fé­lagið logar vegna slæmrar með­ferðar á hestum sem spænskir kvik­mynda­töku­menn leigðu á Íslandi.

Samkvæmt Stein­unni Árna­dóttur, org­el­leik­ara, hesta­konu og bar­áttu­konu stöðv­aði eft­ir­lits­maður Mat­væla­stofn­unar með­ferð á hestum sem leigðir voru af spænskum kvik­mynda­gerð­ar­mönnum hér á landi, um leið og mynd­skeið sem sýndi með­ferð­ina. Steinunn vakti athygli á mál­inu á Facebook í gær og sýndi mynd­band þar sem sjá má tvo menn ríða hestum, sem virð­ast dauð­skelk­aðir.

Steinunn sagði í færsl­unni að beisli­bún­aður hest­anna sé „mjög grun­sam­legur.“ Í færsl­unni segir meðal ann­ars: „Hestar sem voru lán­aðir í mynda­töku­verk­efni eru nú „tuktaðir til“ af Spán­verjum. Beisl­is­bún­aður er ekki sam­kvæmt okkar reglum, slatti af keðjum og krókum og eitt­hvað blæðir eftir með­ferð­ina.“ Segir hún að dýra­læknir hafi skoðað blæð­andi sár eftir keðjur á hest­unum og sagt það vera ofnæmi. „Það blæðir ekki undan ofnæmi!!“ skrif­aði Steinunn.

Í sam­tali við Mannlíf lýsir Steinunn hvað sjá má á mynd­skeið­inu. „Þetta virð­ast vera þægur hestur sem verið sé að trylla. Allar hreyf­ingar knapans eru hálf hrotta­legar og hann er með eitt­hvað í hend­inni sem hann lemur hest­inn með. Það sést ekki hvað þetta er en svo virð­ist sem hest­ur­inn meiði sig, þannig eru við­brögðin. Og þetta með beisli­bún­að­inn, þetta er eitt­hvað sem við erum alls ekki með hér á Íslandi, það eru keðjur og krókar þarna niður undir sem eru hrein­lega ekki leyfðir. Og annað, þetta virð­ist vera alveg hund­þægur hestur, hann ber öll merki þess. Og þá fer maður að hugsa, hvernig er tekið á þeim sem ekki eru eins stilltir og þessi? Sam­fé­lagið logar alveg, fólk er alveg ævareitt.“

Mannlíf ræddi einnig við Ingunni Reyn­is­dóttur dýra­lækni, sem séð hafði mynd­bandið en hún sagði það sýna mis­þyrm­ingu. „Þarna er verið að mis­þyrma hross­inu. Það er alveg út í Hróa hött að koma svona fram við hross.“

Guðni Hall­dórs­son, for­maður Lands­sam­bands hesta­manna er sá sem til­kynnti málið til Mat­væla­stofn­unar en hann skrif­aði eft­ir­far­andi færslu á Facebook í gær:

„Í hádeg­inu í dag fékk ég sím­tal þar sem mér var sagt frá meintri illri með­ferð á hestum í kvik­mynda­verk­efni.

Ég fór beint í það að kynna mér málið og hringdi í fjölda fólks î þeim til­gangi.Í fram­hald­inu sendi ég til­kynn­ingu til MAST um málið og krafð­ist taf­ar­lausra aðgerða, sem orðið var við.Um þrjú leitið fékk ég þetta mynd­band sent.Um kaffi­leitið skilst mér að búið hafi verið að stoppa starf­sem­ina og rétt síðar fékk ég upp­lýs­ingar um að allir í hinu erlenda kvik­mynda­tökuliði sem tengd­ust mál­inu hafi verið reknir og muni hverfa af landi brott.

Svona lagað má aldrei líð­ast og vona ég svo inni­lega að það fólk sem svona fer með skepnur verði dregið til ábyrgðar og fái ekki að halda áfram iðju sinni í öðrum löndum. En það er víst ekki í mínum höndum. Aðal atriðið í dag var að stoppa þessa illu með­ferð strax.“

Hér fyrir neðan má sjá mynd­skeiðið:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Dýraníð

Hundasnyrtir handtekinn fyrir dýraníð – MYNDBAND
HeimurDýraníð

Hunda­snyrtir hand­tek­inn fyrir dýra­níð – MYNDBAND

Hunda­snyrtir í Flórída í Banda­ríkj­unum hefur verið hand­tek­inn fyrir að sparka ítrekað í hund. Hunda­snyrtir­inn Richel Yumar-Gonzalez hefur verið hand­tek­inn fyrir dýra­níð en hann sést á mynd­bandi sparka ítrekað í lít­inn hvítan hund sem heitir Coco. Samkvæmt lög­regl­unni í Miami, þar sem hann var hand­tek­inn, hefur Yumar-Gonzalez játað verkn­að­inn og hefur verið rek­inn úr starfi sínu sem hunda­snyrtir. Yumar-Gonzalez sagði...
InnlentDýraníð

Spænsku hesta­níð­ing­arnir í þætti Baltasars ekki reknir frá Ing­ólfs­hvoli

Spænsku hesta­þjálf­ar­arnir sem fengnir voru til að þjálfa hesta fyrir sjón­varps­þætt­ina King and Conqueror sem Baltasar Kormákur fram­leiðir, voru áður reknir frá öðrum bóndabæ fyrir illa með­ferð á hross­unum. Sjá einnig: Ill með­ferð erlends kvik­mynda­tökuliðs á hestum stöðvuð: „Það blæðir ekki undan ofnæmi!!“ Mannlíf fjall­aði fyrst fjöl­miðla um mynd­skeið sem sýndi grimmi­lega með­ferð spænskra hesta­þjálf­ara við þjálfun á íslenskum hrossum...
Köttur svæfður eftir að brot úr byssukúlu fannst í honum: „Elsku fallegi strákurinn okkar“
InnlentDýraníð

Köttur svæfður eftir að brot úr byssu­kúlu fannst í honum: „Elsku fal­legi strák­ur­inn okkar“

„Því miður er ekki alltaf góður endir á málum sem við förum í og langar mér að segja frá einni nýlegri sorg­ar­sögu. En það er sagan hans Garðars.“ Þannig hefst færsla sem með­limur í sjálf­boða­sam­tök­unum Villi­kettir Reykja­ness og nágrenni, birti í Facebook-hópnum Katta­vaktin. Sagan byrj­aði þannig að sjálf­boða­sam­tökin fengu ábend­ingu um haltan kött í júní 2023 en í byrjun júlí...
Ólína um blóðmerahald: „Það er skömm fyrir okkur Íslendinga að láta þetta viðgangast“
InnlentDýraníð

Ólína um blóð­mera­hald: „Það er skömm fyrir okkur Íslend­inga að láta þetta við­gang­ast“

„Þvílíkur hryll­ingur sem þetta blóð­mera­hald er. Já ég var að horfa á umfjöllun Kveiks um málið, og þá afhjúpun yfir­hylm­inga og dýra­níðs sem þar kom fram. Það er skömm fyrir okkur Íslend­inga að láta þetta við­gang­ast.“ Þannig hefst færsla Ólínu Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttur en hún, líkt og margir lands­menn, horfði á þátt Kveiks á RÚV í gær­kvöldi þar sem fjallað var...
Hestur drepinn með riffli fyrir austan: „Ég skora á viðkomandi að gefa sig fram“
InnlentDýraníð

Hestur drep­inn með riffli fyrir austan: „Ég skora á við­kom­andi að gefa sig fram“

Hestur fannst dauður á landi bónda í Múla­þingi um helg­ina. Hafði hann verið skot­inn með riffli. Bóndinn sagði frá því á íbúða­síðu Fljóts­dals­hér­aðs, að hann sé með girð­ingar á landi sínu sem eru í útlánum fyrir hesta­eig­endur. Um helg­ina kom í ljós að hross vant­aði í hóp­inn og kallað var þá til dýra­læknir sem og lög­regla. Hrossið fannst dautt en...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins