„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þorpin eru að verða að verbúðum: „Mun fleiri karlmenn en konur hér fyrir vestan“

Þorpin eru að verða að verbúðum: „Mun fleiri karlmenn en konur hér fyrir vestan“
Jón Kaldal

„Flestir af þessum erlenda starfs­fólki hér áður var kven­fólk, og hlut­falls­lega voru konur þá mun færri en karlar, og margar af þessum konum sem komu vestur til að vinna í fiski fundu mann fyrir vestan og eign­uð­ust börn og fjöl­skyldu fyrir vestan. Núna er þetta allt annað við fisk­eldið, þar er vinnu­aflið sem kemur mest karl­menn og það eru þegar mun fleiri karl­menn en konur hér fyrir vestan,“ sagði ónefndur Vest­firð­ingur á Facebooksíðu hjá Íslenska nátt­úru­vernd­ar­sjóðs­ins.

Jón Kaldal félagi í Íslenska nátt­úru­vernd­ar­sjóðnum kastar ljósi á slæma byggða­stefnu og vitnar í nýbirta skýrslu Hag­stof­unnar um íbúa­þróun á svæðum þar þar sem sjó­kví­eldi á laxi er við­haft. Rýnir hann þá helst í sunn­an­verða Vest­firði þar sem fjöl­skyldur og börn eru á und­an­haldi sem íbúar og karlar orðnir hlut­falls­lega mikið fleiri en konur. Pistill Jóns birt­ist hjá Við­skipta­blað­inu.

„Skýrsla Hag­fræði­stofn­unar er skýr. Þau kjör sem bjóð­ast við störf við sjó­kvía­eldi á freista lands­manna ekki nóg til þess að þeir flytji þangað sem það er stundað. Þjóðin hefur fyrir löngu áttað sig á því að sjó­kvía­eldi er meng­andi iðn­aður sem skaðar villta laxa­stofna með erfða­blöndun og fer hræði­lega með eld­is­dýrin sín.

Stuðn­ingur við iðn­að­inn hefur hingað til helst byggst á meintu mik­il­vægi hans fyrir brot­hættar byggðir. Í skýrslu Hag­fræði­stofn­unnar er grein­ing á lyk­il­þáttum á því meinta mik­il­vægi,“ ritar Jón Kaldal.

Hús­næð­is­verð hefur hækkað á svæð­inu sem og ann­ars staðar á land­inu. Jafn­framt bendi fækkun Íslend­inga til þess að þeir hafi selt fast­eignir sínar og farið.

„Það var fyr­ir­fram gefin stærð að ný störf koma sér auð­vitað vel þar sem atvinnu­leysi hefur verið hátt. Hitt var ekki þekkt hversu mikið sam­setn­ing íbúa hefur breyst.
Störf í þessum skað­lega iðn­aði hafa ekki snúið við brott­flutn­ingi íslenskra rík­is­borg­ara. Að auka sjó­kvía­eldi enn meira mun ekki gera það heldur. Íslenskir rík­is­borg­arar hafa selt hús­næði sitt og farið. Fjöl­skyldum hefur fækkað en ein­hleypum körlum fjölgað. Vinnu­aflið hefur verið sótt annað. Þorpin eru að verða að ver­búðum. Þetta er ekki góð þróun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins