„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Grindvíkingur skýtur fast á ríkisstjórnina: „Innheimta á þessum skatti ekkert annað en viðbjóðsleg“

Grindvíkingur skýtur fast á ríkisstjórnina: „Innheimta á þessum skatti ekkert annað en viðbjóðsleg“
Grinda­vík fyrir eld­gosi og jarð­skjálfta

Björn Birg­is­son segir íslenska ríkið rétta Grind­vík­ingum hjálp­ar­hönd en sparka svo í þá liggj­andi.

Sam­fé­lags­rýn­ir­inn frá Grinda­vík, Björn Birg­is­son skrif­aði í dag Facebook-færslu þar sem hann skýtur föstum skotum á rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. „Að rétta hjálp­andi hönd og sparka svo í þann sem liggur.Það er það sem ríkið er að gera gagn­vart Grind­vík­ingum.

95% gjald fyrir hús­eignir er í flestum til­vikum undir mark­aðsvirði eins og það var orðið fyrir ham­far­irnar 10. nóv­em­ber 2023. En upp­kaupin eru bjarg­hringur fyrir marga.Það er gott að geta hjálpað fólki og öll hjálp er vel þegin og fyrir hana ber að þakka.“ Þannig hefst færslan og heldur svo áfram: „Síðan hefur það fólk farið í tíma­bundna leigu, mest á suð­vest­ur­horni lands­ins á meðan hugað hefur verið að kaupum á hús­næði.Ríkið kom fyrst inn með 75% leigu­styrk, en hækk­aði hann svo í 90% og gildir sú ákvörðun út ágúst­mánuð að óbreyttu. Það er gott að geta hjálpað fólki og öll hjálp er vel þegin og fyrir hana ber að þakka.“

Björn segir svo að fast­eigna­verðið hafi hækkað svo mikið vegna auk­innar eft­ir­spurnar, að Grind­vík­ingar eigi nán­ast enga mögu­leika á að fá sam­bæri­legar eignir fyrir pen­ing­inn frá rík­inu. „Fast­eigna­verð hefur snar­hækkað vegna auk­innar eft­ir­spurnar og Grind­vík­ingar eiga því nán­ast enga mögu­leika á að fá sam­bæri­legar eignir fyrir upp­kaupa pen­ing­inn frá rík­inu.

Þá kemur aukin skuld­setn­ing til sög­unnar, okur­lán, því annað er ekki í boði og svo er gripið til spari­fjár þar sem það er til.Endalaus kostn­aður fylgir hinni von­lausu stöðu sem svo margir eru óvænt komnir í.“Því næst segir Björn að brátt komi svo að því að kaup­sam­ingar verði gerðir og að „hin hjálp­andi hönd“ komi aftur til sög­unnar en ekki til að hjálpa, heldur þvert á móti. „Svo kemur að því að kaup­samn­ingar eru gerðir og Grind­vík­ingar sjá í hill­ingum að vera að eign­ast nýtt heim­ili eftir tæp­lega hálfs árs hrakn­inga og jafn­vel að hafa flutt búferlum marg­sinnis á þeim tíma. Þá kemur hin hjálp­andi hönd til sög­unnar að nýju. En ekki til að hjálpa. Aldeilis ekki! Þvert á móti. Ríkið heimtar að flótta­fólkið greiði 0,8% af fast­eigna­mati eign­anna í stimp­il­gjald ef það vilji verða lög­legir eig­endur að nýju híbýl­unum!“

En hvað þýðir það sam­kvæmt Birni?

„480 þús­und af eign sem metin er á 60 millj­ónir.

520 þús­und af eign sem metin er á 65 millj­ónir.560 þús­und af eign sem metin er á 70 millj­ónir.Þetta eru engir smá­aurar fyrir venju­legt launa­fólk.Hvað varð um hina hjálp­andi hönd?“Næstu orð Björns eru nokkuð hörð: „Inn­heimta á þessum skatti – fyrir fárán­lega litla vinnu – er ekk­ert annað en við­bjóðs­leg eftir allt sem á undan er gengið. Varla þarf Þórkatla að borga stimp­il­gjöld vegna upp­kaupanna! Það eigum við Grind­vík­ingar ekki að gera heldur.“

Þá segir Björn þetta vera „blauta tusku“ framan í Grind­vík­inga. „Ef ein­hver vit­glóra og töggur eru í okkar kjörnu full­trúum og í rík­is­stjórn­inni þá verða Grind­vík­ingar und­an­þegnir þessu stimp­il­gjaldi, enda er það ekk­ert annað en blaut tuska framan í fólk sem ekk­ert hefur til saka unnið, þvert á móti verið gjöf­ulir og góðir þegnar þessa lands. Endilega deilið þess­ari færslu og fylgist grannt með við­brögðum þing­manna og ann­ara vald­hafa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins