„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sema lætur ekki „pólitískar ofsóknir“ trufla baráttu sína: „Takk fyrir stuðninginn!“

Sema lætur ekki „pólitískar ofsóknir“ trufla baráttu sína: „Takk fyrir stuðninginn!“
Sema Erla Serdar

Sema Erla Serdaroglu segir að rík­is­stjórn Íslands hafi skilið eftir fjölda Palest­ínu­fólks á Gaza en að sjálf­boða­liðar á vegum Solaris sé að vinna þrek­virki við að bjarga því fólki og koma til Íslands.

„Þessa dag­ana eru sjálf­boða­liðar á vegum Solaris í Kaíró að vinna þrek­virki við að taka á móti fjölda Palest­ínu­fólks sem er að flýja þjóð­ar­morð á Gaza. Um er að ræða ein­stak­linga, mest konur og börn, sem öll eru með dval­ar­leyfi á Íslandi, en voru skilin eftir á Gaza af íslenskum stjörn­völdum!“ Þannig hefst færsla sem Sema Erla skrif­aði í gær­kvöldi á Facebook. Og hún hélt áfram:

„Fyrir mán­uði síðan kom hópur af Palest­ínu­fólki með dval­ar­leyfi á Íslandi frá Gaza til lands­ins í fylgd íslenskra stjórn­valda. Sama dag til­kynnti utan­rík­is­ráðu­neytið að sendi­nefnd rík­is­ins á svæð­inu hefði lokið störfum. Síðan þá hefur palest­ínskum dval­ar­leyf­is­höfum fjölgað og ráð­herrar í rík­is­stjórn Íslands forð­ast að svara spurn­ingum um hvort sækja eigi fólkið.“

Sema Erla segir í færsl­unni að lands­söfn­un­ar­innar fyrir Palest­ínu hafi sjálf­boða­liðum tek­ist að koma um 50 dval­ar­leyf­is­höfum á útgöngu­lista á landa­mærum Palest­ínu og Egypta­lands að und­an­förnu.

„Þökk sé öllum þeim þús­undum ein­stak­linga sem studdu lands­söfnun fyrir Palest­ínu hefur sjál­boða­liðum tek­ist að koma þeim dval­ar­leyf­is­höfum sem við vitum um og skildir voru eftir, um 50 ein­stak­lingum, á útgöngu­lista á landa­mærum Palest­ínu og Egypta­lands síð­ustu vikur! Um er að ræða ein­stak­linga sem eru með nákvæm­lega sömu rétt­indi til dvalar á Íslandi og þau sem sótt voru af stjórn­völdum. Hluti af hópnum er þegar kom­inn til Íslands! Fleiri úr þeim hópi bíða þess nú í að koma til Íslands frá Kaíró og von er á enn fleirum út af Gaza á næstu dögum!“

Því næst skýtur Sema Erla föstum skotum á rík­is­stjórn­ina sem hún segir að hafi „neyðst“ til að bregð­ast við ástand­inu.

„Þar sem engin við­vera íslenskra stjórn­valda er á svæð­inu vinna sjálf­boða­liðar dag og nótt við að taka á móti fólki, koma því undir lækn­is­hendur og út á flug­völl.Þessir ein­stak­lingar bæt­ast við þá rúm­lega 100 palest­ínsku ein­stak­linga sem íslenskir sjálf­boða­liðar höfðu þegar aðstoðað við að koma undan þjóð­ern­is­hreins­unum á Gaza þegar íslensk stjórn­völd neydd­ust til þess að bregð­ast við, amk í smá stund.Íslenskir sjálf­boða­liðar hafa nú verið í Kaíró í tvo mán­uði í launa­lausri vinnu fyrir utan­rík­is­þjón­ustu Íslands við að koma fólki undan þjóð­ar­morði. Því íslensk stjórn­völd sátu aðgerða­laus hjá og þrjár konur tóku af skarið og ýttu af stað mögn­uðum bolta!“

Og Sema hélt áfram:

„Vegna sam­taka­máttar Íslend­inga munu meira en 150 palest­ínskir ein­stak­lingar sam­ein­ast fjöl­skyldum sínum á Íslandi, fjarri ítrek­uðum fjöldamorðum og árásum síon­ista. Vegna stuðn­ings íslensks almenn­ings á fjöldi palest­ínskra barna fram­tíð­ina fyrir sér!“

Að lokum kallar hún kæru Einars S. Hálf­dán­ar­sonar á hendur henni og Maríu Lilju Kemp vegna meints mút­urs sem hann telur þær hafi beitt svo bjarga mætti lífi palest­ínskra fjöl­skylda frá Rafah, „póli­tískar ofsóknir“ sem skipt.

„Þetta er það eina sem skiptir máli og um þetta eiga fréttir allra fjöl­miðla á Íslandi að snú­ast.

Póli­tískar ofsóknir og algjör­lega til­hæfu­lausar kærur manna eins og Einars S. Hálf­dán­ar­sonar skipta engu máli í stóru mynd­inni. Þær eru hins vegar fyrst og fremst merki um til­raun manna með sterk tengsl við valda­kerfið til að eyði­leggja orð­spor fólks, hafa af því lífs­við­ur­værið og valda því skaða, allt í þeim til­gangi að stöðva bar­átt­una fyrir mann­rétt­indum.Við leyfum því ekki að hafa áhrif á okkar störf og höldum mann­rétt­inda­bar­átt­unni ótrauð áfram.Takk fyrir stuðn­ing­inn!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins