„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lóa virðir ákvörðun Gísla Marteins: „13 þúsund palestínsk börn hafa verið myrt“

Lóa virðir ákvörðun Gísla Marteins: „13 þúsund palestínsk börn hafa verið myrt“
Gísli Marteinn. Mynd: RÚV skjáskot

Lista­mað­ur­inn Lóa Hlín Hjálmtýs­dóttir ritar áhuga­verð grein um menn­ing­ar­lega snið­göngu og hvernig hægt er að beita henni til að hafa áhrif á ýmsa hluti í sam­fé­lag­inu og setur hún það í sam­hengi við Eurovision-keppn­ina en þátt­taka Ísrael hefur verið harð­lega gagn­rýnd á Íslandi. Þá hafa margir Íslend­ingar greint frá því að þeir vilji að Ísland snið­gangi keppn­ina í ljósi þess að Ísrael fær að taka þátt þrátt fyrir að hafa drepið rúm­lega 34 þús­und Palest­ínu­búa.

„Nú hefur sjón­varps­mað­ur­inn Gísli Marteinn Bald­urs­son til­kynnt þá virð­ing­ar­verðu ákvörðun sína, að taka ekki að sér að lýsa Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva þetta árið,“ skrifar Lóa í grein­inni sem birt­ist fyrst á Vísi. „Gísli þykir almennt bæði fær og fróður lýsandi, enda hefur hann lýst keppn­inni með hléum frá árinu 2003, og óslitið frá árinu 2016. Ástæðan sem Gísli gefur upp fyrir ákvörðun sinni er sú að honum ofbýður bæði fram­ganga Ísraels á Gaza og skortur á við­brögðum Söngvakeppni Evr­ópskra sjón­varps­stöðva við henni. Hvort sem það hafi verið með­vitað eða ekki þá fellur ákvörðun Gísla undir menn­ing­ar­lega snið­göngu. Gísli bæt­ist því í vax­andi hóp fólks sem tekur afstöðu gegn árásum Ísra­els­hers á íbúa Gaza og kýs að beita þeirri frið­sam­legu aðferð sem snið­ganga er.“

„Menn­ing­ar­leg snið­ganga er hluti af aðferðum BDS (BoycottDivestSanction) hreyf­ing­ar­innar, sem var stofnuð af palest­ínskum sam­tökum árið 2005. Hreyf­ingin leit­ast við að hafa áhrif á ísra­elsk stjórn­völd með alþjóð­legri snið­göngu, fjár­losun og við­skipta­þving­unum. Sá hluti snið­göng­unnar sem snýr að menn­ingu reynir meðal ann­ars að koma í veg fyrir að ísra­elsk stjórn­völd noti menn­ing­ar­við­burði á borð við Söngvakeppn­ina til að hvít­þvo, og í til­felli Eurovision bæði hvít- og bleik­þvo, ímynd sína á alþjóða­vett­vangi.“

Í til­kynn­ing­unni, sem Gísli Marteinn sendi frá sér á sam­skipta­miðl­inum Instagram tekur hann einnig fram að fyrir honum snú­ist Söngvakeppnin um stemn­ingu og gleði en hann finni fyrir hvor­ugu í keppn­inni í ár. Sá hluti yfir­lýs­ing­ar­innar er afar skilj­an­legur því hvernig er hægt að finna gleði og stemn­ingu þegar 13.000 palest­ínsk börn hafa verið myrt af Ísra­els­her á hálfu ári?“

Lóa skrifar að það sé ofar hennar skiln­ingi að það sé hægt að rétt­læta þátt­töku Íslands í Eurovision, sér­stak­lega í ljósi þess að Rússum var vikið úr keppni eftir inn­rás þeirra í Úkraínu og allir hafi verið sam­mála þeirra ákvörðun.

„Þegar stuðn­ing við Palest­ínu ber hins vegar á góma þá verður málið skyndi­lega svo flókið að meira að segja yfir­lýsta frið­ar­borgin Reykja­vík getur ekki flaggað palest­ínska fán­anum – og RÚV neitar að taka afstöðu. Það er því kær­komið þegar fólk eins og Gísli stendur upp og segir stopp, og því ber að fagna. Með yfir­lýs­ingu sinni býr hann til skjól fyrir næstu mann­eskju og auð­veldar henni að taka afstöðu og þannig, koll af kolli, verður til umhverfi þar sem fólk getur tekið lýst yfir afstöðu með mann­rétt­indum og gegn þjóð­ar­morði. Að lokum langar mig að beina orðum mínum til þeirra sem eru í mögu­lega í þeirri aðstöðu að fylla í skarð Gísla og lýsa keppn­inni í ár: Hvernig mynd­irðu rétt­læta þá ákvörðun ef mann­eskja frá Gaza myndi spyrja þig út í hana?“ skrifar Lóa svo að lokum um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins