„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vonarglæta hjá Assange: „Skelfilegar pólitískar ofsóknir sem hafa gengið allt of langt“

Vonarglæta hjá Assange: „Skelfilegar pólitískar ofsóknir sem hafa gengið allt of langt“

Kristinn Hrafns­son segir að örlítið von hafi kviknað í gær þegar Joe Biden Banda­ríkja­for­seti sagð­ist vera að íhuga beiðni yfir­valda í Ástralíu um að Banda­ríkin sleppi ákærum á hendur Julian Assange.

RÚV sagði frá því í gær að Joe Biden Banda­ríkja­for­seti sé að íhuga að láta ákærur á hendur Julian Assange, fyrr­ver­andi rit­stjóra Wikileaks, falla niður en ákær­urnar eru átján og eru í tengslum við birt­ingu leynigagna Wikileaks um stríð­rekstur og glæpi Banda­ríkj­anna í Írak og Afganistan.

Í dag eru akkurat fimm ár síðan Julian Assange var færður í örygg­is­fang­elsið Belmarsh í Bret­landi en þar hefur hann mátt dúsa síðan. Mannlíf heyrði í Kristni Hrafns­syni, núver­andi rit­stjóra Wikileaks og vini Assange og spurði hann hvernig þeim félögum lit­ist á orð Joe Biden um að hann væri að íhuga málið. „Sæll. Það vill nú svo til að ég var rétt í þessu að koma út úr Belmarsh fang­els­inu eftir að hafa heim­sótt Julian. Þetta er svo­lítið sér­stakur dagur, það eru nákvæm­lega fimm ár upp á dag síðan Julian var hand­tek­inn og varpað í þessa dýflissu sem Belmarsh fang­elsið er. Það var 11. apríl 2019 sem hann var dreg­inn út úr sendi­ráði Ekvadors af bresku lög­regl­unni.“ Þannig hefst svar Kristinn en svo beinir hann orðum sínum að Joe Biden: „Orð Joe Bidens í gær­kvöldi, þar sem hann seg­ist vera að íhuga þessa beiðni ástr­al­skra yfir­valda um að Julian sé leystur undan þess­ari ákæru og fái að snúa aftur til heima­lands síns, urðu að sjálf­sögðu umtals­efni okkar Julians í morgun. Það er hægt að segja að þarna glitti í ein­hverja von en þessi von­ar­glæta er nátt­úru­lega óskýrð þannig að bæði hann og við sem erum að berj­ast fyrir hans frelsi viljum vita meira hvað hangir á spýt­unni. Og ég reikna með að blaða­menn fylgi þessu fast eftir og krefj­ist skýr­inga á því en hið eina lógíska í þessu er að málið verði hrein­lega fellt niður og Julian geti öðl­ast frelsi. Þetta er mál sem aldrei hefði átt að hefja og er til hábor­innar skammar að það sé búið að fylgja Julian í öll þessi ár.“

Kristinn bendir á að Julian hefur ekki aðeins verið í fimm ár í Belmarsh fang­els­inu heldur hafi hann verið meira og minna ófrjáls ferða sinna síðan 2010, þar af í sjö ár þar sem hann dvaldi í sendi­ráði Ekvador í London.

En hvernig líður Julian eftir allan þennan tíma?

„Líðan hans er að sjálf­sögðu í sam­ræmi við það, maður getur rétt ímyndað sér hvaða áhrif það hefur að vera sviptur frelsi í allan þennan tíma og í kring­um­stæðum þar sem örlög þín eru full­kom­lega óljós og eng­inn endir í sjón­máli. En jú, orð Bidens eru að minnsta kosti ein­hver von­ar­glenna, á því byggj­andi að ætla að það sé að minnsta kosti komið að því stigi að þessu fari að ljúka og kom­inn tími til því þetta er ekk­ert annað en ófagrar og skelfi­legar póli­tískar ofsóknir sem hafa gengið allt of langt.“

Verði Julian Assange fram­seldur til Banda­ríkj­anna gæti hann verið dæmdur í 175 ára fang­elsi og jafn­vel til dauða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölmiðlun

Björn kvartar yfir áhugaleysi RÚV: „Það væri eðlilegra ef Ríkisútvarpið gerði seríu um Samstöðina“
Menning

Björn kvartar yfir áhuga­leysi RÚV: „Það væri eðli­legra ef Rík­is­út­varpið gerði seríu um Sam­stöð­ina“

„Rúvarar voru í Kast­ljós­inu að birta skemmti­legt sjón­varps­við­tal við Dr Football. Aldeilis gaman. En frétta­deild Rúv hefur enn ekki minnst á að nýlegur fjöl­mið­ill í almanna­eigu sé að sigra landið og miðin. Ég er að tala um Sam­stöð­ina.“ Þannig hefst reiði­lestur Björns Þor­láks­sonar, rit­höf­undar og fjöl­miðla­manns Sam­stöðv­ar­innar sem hann birti á Facebook í gær­kvöldi. Þar kvartar hann yfir áhuga­leysi hans...
Björn Þorláksson yfirgefur Flokk fólksins: „Ég biðst afsökunar sem fráfarandi varaþingmaður“
Innlentfjölmiðlun

Björn Þor­láks­son yfir­gefur Flokk fólks­ins: „Ég biðst afsök­unar sem frá­far­andi vara­þing­maður“

Björn Þor­láks­son hefur sagt sig úr Flokki fólks­ins. Blaða­mað­ur­inn, rit­höf­und­ur­inn og fyrrum vara­þing­mað­ur­inn Björn Þor­láks­son hefur tekið þá ákvörðun að velja blaða­mennsku ofar stjórn­mál­unum og því sagt sig úr Flokki fólks­ins. „Blaða­mennskan öðru ofar – Úrsögn úr Flokki fólks­ins Helsta ástríða mín hefur alltaf verið að þjóna almenn­ingi með beittri blaða­mennsku. Enda hef ég fengið tæki­færi til þess í marga...
Bit yfir spurningu fréttakonu RÚV: „Menningarbylting nýfrjálshyggjunnar algjörlega búin að sigra?“
Innlentfjölmiðlun

Bit yfir spurn­ingu frétta­konu RÚV: „Menn­ing­ar­bylt­ing nýfrjáls­hyggj­unnar algjör­lega búin að sigra?“

Atli Þór Fanndal furðar sig á spurn­ingu frétta­konu RÚV, sem hún bar upp í við­tali við for­mann VR. Fyrr­ver­andi fram­kvæmd­ar­stjóri Íslands­deildar Transparency International, skrif­aði Facebook-færslu í gær þar sem hann furðar sig á spurn­ingu frétta­konu RÚV í sjón­varps­fréttum. Frétta­konan tók við­tal við for­mann VR og spurði hvort eðli­legt væri að nota fé VR í að skapa ódýrt hús­næði fyrir launa­fólk....
Mest lesnu Orðrómar ársins 2024 – Villi Vill, Víðir og verulega ósmekklegur brandari
Innlentfjölmiðlun

Mest lesnu Orðrómar árs­ins 2024 – Villi Vill, Víðir og veru­lega ósmekk­legur brand­ari

Orðrómar Mannlífs hafa lengi verið vin­sælir en hér fyrir neðan má sjá lista yfir tíu mest lesnu Orð­rómana árs­ins 2024. 10. Vil­hjálmur æpti á son­inn Vil­hjálmur Hans Vil­hjálms­son Mynd / Facebook. Nokkurt upp­nám varð á þorra­blóti Stjörn­unnar í Garðabæ þegar stjörnu­lög­mað­ur­inn Vil­hjálmur Hans Vil­hjálms­son er sagður hafa misst stjórn á skapi sínu undir uppi­standi Helga Brynjars­sonar, sonar veislu­stjór­ans Brynjars Níels­sonar....
Samstöðin í kröggum: „Erum að leita leiða til að styrkja vefinn“
Innlentfjölmiðlun

Sam­stöðin í kröggum: „Erum að leita leiða til að styrkja vef­inn“

Sam­stöðin leitar nú allra leiða til að styrkja vef­inn sinn. Gunnar Smári Egilsson skrif­aði Facebook-færslu um helg­ina þar sem hann tal­aði um nið­ur­stöð­una í máli þar sem blaða­maður Sam­stöðv­ar­innar, fjöl­miðli Sós­í­alista­flokks­ins, Hjálmar Frið­riks­son, var sýkn­aður vegna ummæla í fréttum tengdum and­láti sex­tugs Pólverja í elds­voða á Funa­höfða í fyrra. Fagnaði Gunnar Smári því að tján­inga­frelsið sé enn varið hér á...
Brotkastið fær óvæntan liðstyrk: „Þessi breyting býður upp á gestagang hjá okkur“
Menning

Brot­kastið fær óvæntan lið­styrk: „Þessi breyt­ing býður upp á gesta­gang hjá okkur“

Brot­kastið hefur nú bætt við sig hlað­varps­þætt­inu Hlut­hafa­spjallið, sem nú verður hluti af áskrift­ar­k­efi Brot­kasts­ins. Sam­komu­lag hefur náðst um að hlað­varps­þátt­ur­inn Hlut­hafa­spjallið verði hluti af áskrift­ar­kerfi Brot­kasts­ins. „Við erum mjög ánægðir með þessa ákvörðun en með þessu verður dreif­ing þátt­ar­ins aukin sam­fara því að við göngum inn áskrifta­kerfi Brot­kasts­ins. Við teljum þetta eðli­legt skref og það gefur okkur færi á...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins