„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Páll tvíeflist við sakfellinguna: „Meiðyrðamál eru mjög skrítin lögfræði“

Páll tvíeflist við sakfellinguna: „Meiðyrðamál eru mjög skrítin lögfræði“
Páll Vil­hjálms­son er afar umdeildur blogg­ari

Fram­halds­skóla­kenn­ar­inn og Mogga­blogg­ar­inn Páll Vil­hjálms­son var sak­felldur í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag fyrir æru­meið­ingar um Aðal­stein Kjart­ans­son, blaða­mann Heim­ild­ar­innar. Kveðst Páll ætla að áfrýja mál­inu.

Samkvæmt frétt Vísis var Páll dæmdur til að greiða Aðal­steini 450.000 krónur í miska­bætur, auk 1,4 milljón króna í máls­kostnað. Þá er honum gert að fjar­lægja þau ummæli sem ómerkt eru af blogg­síðu sinni innan 15 daga frá dóms­upp­sögu. Geri hann það ekki fái hann dag­sekt upp á 30.000 krónur á dag þar til ummælin hafa verið fjar­lægð. Einnig er honum gert að birta dóm­inn á Mogga­bloggi sínu.

„Já, ég var dæmdur fyrir átta ummæli,“ segir Páll í sam­tali við Vísi en það eru öll ummælin sem Aðal­steinn kvart­aði undan í mál­inu..

En Páll er hvergi bang­inn þó hann við­ur­kenni að þetta sé stór biti fyrir mann á kenn­ara­launum eins og Vísir orðar það.

„Jú, þetta er það. En, nei, ég ætla að áfrýja þessu. Þetta er þögg­un­ar­mál­sókn af hálfu vara­for­manns Blaða­manna­fé­lags­ins og ástæða til að óska honum til ham­ingju með að þagga niður eðli­lega umræðu,“ segir Páll. Þá segir hann að félagar Aðal­steins af Heim­ild­inni, þeir Þórður Snær Júl­í­us­son og Arnar Þór Ing­ólfs­son hafa áður sótt í vasa hans.

„Það er ágætt að ein­hvers staðar eru djúpir vasar en að blaða­menn stundi svona þögg­un­ar­mál­sókn er umhug­un­ar­efni. En í fyrra mál­inu, sem þeir Þórður Snær og Arnar Þór unnu í hér­aðs­dómi, því var áfrýjað og verður tekið fyrir í byrjun maí, eða næsta mán­uði,“ sagði Páll í sam­tali við Vísi.

Aðspurður hvort dóm­ur­inn muni ekki „slá á putta“ Páls segir hann svo ekki vera, þvert á móti.

„Nei, tví­efla þá, hugsa ég,“ segir Páll og bætir við: „Ólíkt ýmsum öðrum hef ég stundað heið­ar­legt starf um ævina, lagt fyrir sparifé, þannig að ég tel mig hafa efni á þessu og svo fékk ég góðan stuðn­ing les­enda Til­fallandi athuga­semda þegar ég var dæmdur í máli Þórðar Snæs og Arnars, þannig að ég er ekki með bogið eða brotið bak.“

Páll seg­ist viss um að hann sé að fara með rétt mál en að hann vilji ekki gagn­rýna dóm­ar­ann þar sem hann hafi sjálf­sagt dæmt eftir ríkj­andi lögum í land­inu.

„Ég held að það hafi verið í þínum miðli en þar var greint frá því að mann­eskja hafi verið sýknuð fyrir að hafa kallað ein­hverja aðra mann­eskju nauð­gara að ósekju, af því að sú sem hafði þau frammi gerði það í góðri trú. Meið­yrða­mál eru mjög skrítin lög­fræði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins