„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lögreglumaður fann unnustu sína meðal hinna látnu eftir hnífaárásina í Sydney

Lögreglumaður fann unnustu sína meðal hinna látnu eftir hnífaárásina í Sydney
Dawn og Ashley Mynd: Trausti Hafsteinsson

Lög­reglu­maður sem mætti á vett­vang eftir ban­vænu hnífa­árás­ina í Westfield-versl­un­ar­mið­stöð­inn í Sidney, Ástralíu, upp­götv­aði sér til skelf­ingar að unnusta hans var meðal sex fórn­ar­lambanna sem létu lífið í árásinni.

Ashley Wildey komst að því að æsku­ástin hans, hin 25 ára Dawn Singleton, hafi orðið fyrir hnífa­árás Joel Cauchi, sem gekk ber­sersks­gang á laug­ar­dag­inn í Westfield-versl­un­ar­mið­stöð­inni, þegar hann mætti á vett­vang eftir að lög­reglan hafði verið kölluð til. Singleton lést af sárum sínum.

„Ashley var kom­inn til Westfield þegar yfir­menn átt­uðu sig á því að unnusta hans var meðal fórn­ar­lambanna,“ sagði heim­ild­ar­maður Mirror í gær­kvöldi. Dawn, dóttir ríks aug­lýs­inga­mó­gúls, var lýst sem „ótrú­lega frá­bærri“.

Vinnu­veit­andi hennar, Fashion House White Fox Boutique, sagði: „Hún var ljúf, góð­hjörtuð mann­eskja sem átti allt sitt líf framundan. Hún var ótrú­lega frá­bær. Við erum öll gjör­sam­lega miður okkar. Við sendum sam­úð­ar­kveðjur til unnusta hennar, Singleton fjöl­skyld­unnar og vina hennar.“

Dawn hafði þegar keypt brúð­ar­kjól­inn sinn og hafði sent frá sér brúð­kaups­boðskort. Hún var ein af þremur dætrum og átta börnum þekkts ástr­alsks frum­kvöð­uls að nafni John Singleton, 82 ára.

Ashley var nýbú­inn að klára vakt sína þegar honum var sendur með sam­starfs­mönnum sínum í Westfield-versl­un­ar­mið­stöð­ina í Bondi Junction í Sydney klukkan 15:30 að stað­ar­tíma. Cauchi, fer­tugur, hafði þá farið í æðiskasti um versl­un­ar­mið­stöð­ina með hníf og myrt fimm konur og karl­kyns örygg­is­vörð. Fjöl­miðlar í Ástralíu hafa sagt frá því að Cauchi hafi beint árásum sínum sér­stak­lega að kven­mönnum.

Árásina hóf hann með því að stinga þriggja mán­aða stúlku og hélt áfram árásum sínum þar til lög­reglu­konan Amy Scott skaut hann til bana er hann hljóp í átt að henni.

Móðir barns­ins, Osteópat­inn Dr. Ashlee Good, henti dóttur sinni, Harriet, til veg­far­enda til að bjarga henni, rétt áður en hún var síðan stungin. Lækn­ir­inn lést á sjúkra­húsi klukku­stundum síðar. Harriet er sögð vera að jafna sig á sjúkra­húsi.

Fjöl­skylda Dr. Good sagði í yfir­lýs­ingu: „Í dag þjá­umst við vegna hins hræði­lega missis á Ashlee, fal­legrar móður, dóttur, systur, félaga, vin­konu, alls­herjar fram­úr­skar­andi mann­eskju og svo margt fleira. Við kunnum að meta kveðjur ástr­alsks almenn­ings sem hefur lýst yfir ást til Ashlee og litlu stúlkunnar okkar. Við getum greint frá því að eftir klukku­tíma skurð­að­gerð í gær gengur barn­inu okkar vel. Við erum svo þakk­lát fyrir umönnun sér­fræð­inga og læknateym­is­ins á Sydney Children’s Hospital. Fyrir menn­ina tvo sem héldu á og önn­uð­ust barnið okkar þegar Ashlee gat það ekki – geta orð ekki tjáð þakk­læti okkar.“

Hin fimm sem Cauchi myrti, lét­ust á vett­vangi. Þau voru hin 55 ára lista­kona Pikria Darchia, upp­haf­lega frá Tbilisi í Georgíu, hinn 47 ára arki­tekt frá Sydney, Jade Young, örygg­is­vörð­ur­inn Faraz Tahir, fæddur í Pakistan en hafði flutt til Ástralíu fyrir ári síðan og var á fyrstu vakt sinni í Westfield-versl­un­ar­mið­stöð­inni og hin 27 ára Yixuan Chen frá Kína. Hún er sögð hafa komið til Ástralíu til að læra hag­fræði við háskól­ann í Sydney. Auk hinna látnu slös­uð­ust einnig átta konur og tveir karl­menn en þau voru flutt á sjúkra­hús. Sum þeirra eru sögð vera í lífs­hættu.

Örygg­is­vörð­ur­inn Faraz Tahir

Örygg­is­vörð­ur­inn Faraz Tahir hefur verið hylltur sem hetja eftir að hafa verið stung­inn til bana í árásinni. Samkvæmt áströlskum fjöl­miðlum var hann á fer­tugs­aldri. Samfélag Pakistana í Ástralíu sendu frá sér yfir­lýstgu þar sem stóð: „Við skulum sýna sam­stöðu og bjóða þeim stuðn­ing og bænir sem syrgja eftir þennan hræði­lega missi.“

Fréttin er unnin upp úr frétt Mirror.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjöldamorð

Þóra segir menn eins og Andersson og Breivik vera faraldra á Vesturlöndum: „Meðalið er banvænt“
Innlentfjöldamorð

Þóra segir menn eins og And­ers­son og Breivik vera far­aldra á Vest­ur­löndum: „Meðalið er ban­vænt“

„Þegar ótt­inn við útlend­inga er orð­inn svo megn í Svíþjóð að stór hluti þjóð­ar­innar styður hægri-öfga­menn í Sví­þjóð­ar­demókrötum, ryðst hvítur ein­mana úlfur, út úr ósköp venju­legri blokkar­í­búð, inn í skóla fyrir full­orð­ins­fræðslu, vopn­aður hálf­sjálf­virkum riffli og fleiri skot­vopnum og fremur versta fjöldamorð í sögu Sví­þjóðar.“ Þannig hefst Facebook-færsla Þóru Krist­ínar Ásgeirs­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa hjá Íslenskri erfða­grein­ingu og fyrr­ver­andi frétta­konu á RÚV....
Skotmaðurinn í Örebro var 35 ára og tekjulaus – Hafði skotveiðileyfi fyrir veiðirifflinum
Heimur

Skot­mað­ur­inn í Örebro var 35 ára og tekju­laus – Hafði skot­veiði­leyfi fyrir veiði­riffl­inum

Maðurinn sem skaut 10 til bana og síðan sjálfan sig í Campus Ris­bergska-skól­anum í Örebro í gær var 35 ára gam­all og hafði engin tengsl við gengi. Samkvæmt SVT var morð­ing­inn sem mætti í Campus Ris­bergska-skól­ann, sem er skóli fyrir full­orðna í Örebro, 35 ára gam­all og tekju­laus, með enga teng­ingu við glæpa­gengi. Hann mætti í skól­ann vopn­aður veiði­riffli sem...
Grunaði fjöldamorðinginn í Maine fannst látinn
Heimurfjöldamorð

Grunaði fjöldamorð­ing­inn í Maine fannst lát­inn

Fjöldamorð­ing­inn fannst lát­inn. Grunaður fjöldamorð­ingi Robert Card fannst lát­inn í gær­kvöldi kl. 19:45 að stað­ar­tíma. Hann fannst útjaðri bæj­ar­ins Lisabon í Maine. Hann er grun­aður um að hafa myrt 18 manns í skotárás í Maine í Banda­ríkj­unum fyrir þremur dögum. Heim­ild­ar­menn fjöl­miðla í Banda­ríkj­unum segja að Card hafi tekið eigin líf og notað til þess byssu en þó hefur það...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“