„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Listakona biðlar til yfirvalda: „Fatlaðir eiga að geta lifað með reisn eins og aðrir”

Listakona biðlar til yfirvalda: „Fatlaðir eiga að geta lifað með reisn eins og aðrir”
Lína Rut Wilberg Mynd: Aðsend

Lína Rut Wilberg lista­kona er að gera upp hús sem hún keypti í Frakk­landi í fyrra og ætlar hún að bjóða einni íslenskri fjöl­skyldu á ári fría gist­ingu í tvær vikur. Lína ræddi við Mannlíf um þetta verk­efni sitt, um skóla án aðgrein­ingar, mál­efni fatl­aðra og fleira.

Endurgerir hús í Frakklandi

„Ég keypti hús í Suður Frakk­landi á síð­asta ári en húsið er illa farið og hvorki með vatn né raf­magn,“ sagði Lína Rut í sam­tali við Mannlíf. Og hélt áfram: „Var að leita að ákveðnum sjarma og skil­yrði númer eitt var að hafa hátt til lofts en svona eignir geta farið fljótt. Ég missti af nokkrum, þannig að ég vildi ekki sleppa þess­ari eign þrátt fyrir að hún væri mjög illa farin. Ég vil hvort eð er gera þetta að mínu og mér finnst rosa­lega gaman að taka hús í gegn.“

Lína Rut fyrir framan húsið í Frakk­landi.

Lína Rut segir aðstæð­urnar vera nokkuð strembnar. „Aðstæður eru frekar erf­iðar, þetta er eins og að vera í úti­legu. Ég fer í sturtu undir krana í kirkju­garð­inum og sæki þar vatn, fer með marga brúsa í hjól­börum og fylli á, svo er almenn­ings­kló­sett í bænum, en húsið er í miðj­unni í litlum bæ uppi á lít­illi hæð. Ég lifi eins og hálf­gerður sígauni þarna og fíla það í botn. Það sem er erf­ið­ast við þetta er það sem við­kemur mat. Það fer of mik­ill tími í að fara út í búð og versla í mat­inn, því næsta lág­vöru­verslun er um 20 mín­útur í burtu. Matur geym­ist ekk­ert í hit­anum og svo er heil­mikið bras að vaska upp, þarf að hita vatn á gasi, setja í bala og þvo. Það fyllist allt af flugum eða pöddum ef eitt­hvað er ekki nógu vel þrifið, fellur á gólfið eða bara gleym­ist.“

Lína Rut í hús­inu

Segir hún nú leggja áherslu á að ná sér í raf­magn. „Núna legg ég áherslu á að redda raf­magni svo ég geti verið með ísskáp. Það er ekki mýta að Frakkar eru með fullt af flækju­stigi varð­andi ýmis­legt, en svo­leiðis er það bara og ég læt það ekk­ert fara í taug­arnar á mér, vil ekki hafa neitt stress því þetta á ein­ungis að auka lífs­gæði mín og vera gaman.“

Lista­manna­lífið.

Lína ætlar sér að leigja einni íslenskri fjöl­skyldu húsið á ári, ókeypis: „Þegar allt er til­búið mun ég leigja húsið og eða her­bergi hluta af ári og einnig ætla ég að bjóða einni íslenskri fjöl­skyldu með fatlað barn eða börn til mín frítt í tvær vikur á ári. Það verður mitt litla fram­lag til að reyna að láta gott af mér leiða. Þetta er algjört ævin­týri og ég mæli svo 100 pró­sent með að fólk kaupi sér frekar hús í Frakk­landi heldur en sum­ar­bú­stað á Íslandi. Fast­eigna­gjöld eru mjög lág þarna eða sirka 90 pró­sent lægri heldur en af íbúð­ar­hús­næði á Íslandi.“ Segist Lína Rut vera reiðu­búin til þess að aðstoða þá sem hafa áhuga en hægt er að finna hana á Facebook eða Instagram.

Blindu Krílin

Sjálf á Lína Rut tvo fatl­aða drengi svo mál­efni fatl­aðra eru henni mjög hug­leikin. Und­an­farin ár hefur hún búið til skúlp­t­úra sem hún kallar Blind Kríli en hún útskýrði til­urð þeirra: „Ástæðan fyrir því að ég er að gera Blind Kríli er sú að sonur minn, Már Gunn­ars­son, er blindur og hann sá ekki mál­verkin mín, þannig að ég byrj­aði að gera skúlp­t­úra svo hann gæti „séð“ lista­verkin, með hönd­unum, einnig lang­aði mig til að styðja við Blindra­fé­lagið, en þar á skrif­stof­unni er hægt að kaupa Krílin. Er núna að taka í gegn rými á Hverf­is­götu sem verður sýn­ing­ar­rými fyrir aða­l­ega Krílin. Allt rýmið er bleikt því bleikur er litur sam­úðar, sem er tákn­rænt fyrir það sem ég er að gera. Þetta er allt unnið með hjart­anu og mig langar einnig að aðstoða blinda sem á þurfa að halda víðar í heim­inum. Már er núna kom­inn í tón­list­ar­skóla í Manchester og lætur ekk­ert stöðva sig og er einnig á leið­inni til Parísar í ágúst á Ólymp­íu­leika fatl­aðra.“

Blind kríli.

Málefni fatlaðra á Íslandi

„For­eldrar fatl­aðra barna á Íslandi eru að slig­ast undan álagi og nýlega hafa birst sögur þess eðlis að manni líður eins og það séu nán­ast mið­aldir á Íslandi, verð gjör­sam­lega miður mín við að svo mikið sem hugsa út í þetta,“ segir Lína Rut og heldur áfram: „Fólk er alls konar og ekki öllum gefið að hafa styrk, úthald og eða fjár­muni til að standa undir því álagi sem fylgir því að eiga fatlað barn, það eitt og sér að eiga fatlað barn er gríð­ar­legt álag. Við þurfum því að grípa þessar fjöl­skyldur strax. Í Noregi er „team“ látið vita sam­dæg­urs ef barn fæð­ist sem grunur leikur á að sé fatlað. Það þarf líta á þessa ein­stak­linga sem auð­lind sem auðgar okkar sam­fé­lag, ekki ein­hverjar tölur á blaði. Og núna á að loka Múla­lundi, það þykir of dýrt, en ég spyr, var í alvör­unni ekki hægt að finna aðra leið? Og hvað, hvað tekur við fyrir fólkið sem þar starf­aði? Er haf­inn und­ir­bún­ingur til að grípa þessa starfs­menn? Er ein­ungis verið að horfa á tölur á blaði hér? Samfélag snýst um meira en það, hvað um mann­lega reisn og ham­ingju þess­ara ein­stak­linga? Vinnann göfgar, líka fatl­aða. Í Lúx­em­borg er fyr­ir­tækjum skylt að ráða x pró­sent af fötl­uðum ein­stak­lingum, svo lengi sem þeir þykja jafn­hæfir öðrum umsækj­endum. Eru þing­menn búnir að ræða aðgerðir í þessa átt? Og, það eru ekki allir færir um að vinna á frjálsum mark­aði, er eitt­hvað verið að ræða það? Eða eiga þessir ein­stak­lingar bara að fara heim til sín núna og koðna niður? Hvað kostar að sinna þessu fólki á dag­inn heima hjá sér, var það tekið inn í heildar dæmið? Er svona mikið álag á þing­mönnum okkar að þeir hafa ekki tíma til að sinna vinn­unni sinni almenni­lega? Hvað er það ann­ars, því það er eitt­hvað mikið að? Dæmi. Þegar blindur sonur minn var 6 ára, var búið að loka deild í Ármúla­skóla þar sem blindum var kennt að lesa. Skóli án aðgrein­ingar var settur á lagg­irnar, gott og vel, en viti menn, það var einn blindra­kenn­ari á land­inu sem gat ekki bætt á sig verk­efnum og því var Már settur í geymslu á bóka­safn­inu lung­ann af deg­inum, það bara vissi eng­inn hvað átti að gera við barnið. Hvurs­lags vinnu­brögð eru þetta eig­in­lega? Þetta er svo sorg­legt, því það er svo margt gott við að búa hér á okkar fal­lega landi. En við erum ljósárum á eftir öðrum Norð­ur­lönd­unum í þessum efnum. Síð­ast­liðin 24 ár eða frá því að ég eign­að­ist mitt fyrsta fatl­aða barn, hef ég oft spurt mig: „Af hverju er ekki hægt að setj­ast niður, taka X marga mán­uði í þetta, fara yfir ástandið frá A-Ö og bara laga þetta?“. Annað eins hefur nú verið gert. Þetta er ekki mjög flókið, bara senda nokkra ein­stak­linga út til að sjá hvernig aðrar þjóðir fara að þessu, eða bara skella sér á google. Við þurfum ekk­ert að finna upp hjólið og það þarf enga fucking nefnd sem er mörg ár að störfum.“

Þá segir hún að fólk þurfi að upp­lifa hlut­ina á eigin skinni til að átta sig á þeim. „Það er með þetta í líf­inu eins og flest, við þurfum að upp­lifa hlut­ina á eigin skinni til þess að skilja þá til fulls, getur verið að þing­menn skilji ekki alvar­leika máls­ins, en af hverju geta samt aðrar þjóðir sem við viljum bera okkur saman við haft þetta í lagi? Er ekki að segja að allt sé full­komið ann­ars staðar en við erum bara á ein­hverju allt öðru leveli. Og, plís, fæ bara velgju þegar sumir segja, „Við erum svo fámenn þjóð“. Það hefur ekk­ert með það að gera, heldur spurnig um for­gangs­röðun og áhuga. Viljum við ekki öll verða gripin ef eitt­hvað kemur upp á?  Fatlaðir eru ekki ein­ungis þeir sem fæð­ast með fötlun, við getum öll veikst eða lent í slysi og þurft á aðstoð að halda. Fatlaðir eiga að geta lifað með reisn eins og aðrir. Getum við í raun sagt að við séum gott sam­fé­lag á meðan við grípum ekki þá sem þess þurfa? Hvernig sam­fé­lagi vilum við eig­in­lega búa í?“

Lína Rut segir að listin hafi bjargað henni frá því að verða öryrki. „Margir for­eldrar sem eiga fötluð börn á Íslandi missa heils­una af álagi, ég er ein af þeim. Ég fékk mjög alvar­legt álags mígreni, er samt heppin því ég hef að mestu náð mér. Ég var líka mjög ákveðin í því að ná heilsu aftur, en stundum dugir ákveðni ekki til því heilsan er bara gjör­sam­lega farin og fólk jafn­vel búið að þróa með sér álags­sjúk­dóma. Ef ég væri ekki lista­maður þá væri ég fyrir löngu komin á örorku­bætur, það er að segja ef það hefði þá náðst í gegn. Þannig að ef þetta snýst um fjár­magn, þá erum við án efa að skjóta okkur í fót­inn því það hlýtur að vera marg­falt dýr­ara fyrir ríkið ef for­eldrar missa heils­una. Svo má ekki gleyma hvaða áhrif þetta hefur á syst­kyni til dæmis? Álag á for­eldra hefur að sjálf­sögðu áhrif á alla fjöl­skyld­una. Það er ekki vafi í mínum huga að það er verið að búa til öryrkja fram­tíð­ar­innar í massa­vís, enda skilst mér að þeim fjölgi örar hér á landi en hjá öðrum þjóðum, og allir voða hissa, gæti þetta verið ein af skýr­ing­unum?

Þá skýtur Lína Rut á Sjúkra­trygg­ingar Íslands í sam­tal­inu: „Ef þetta snýst ekki um aur­inn, þá er eitt­hvað alvar­legt að í kerf­inu. Sjúkra­trygg­ingar Íslands gátu til dæmis ekki sam­þykkt að hún Sunna Valdís, fötluð 18 ára stúlka, með afar sjald­gjæfan tauga­sjúk­dóm, fengi sér­út­búið hjól vegna þess að hún hjólaði ekki sjálf, halló? Hún er fötluð og getur ekki hjólað, manni fall­ast bara hendur. Nú er ég ekki að segja að fólk sem vinnur þarna sé slæmt fólk, það hlýtur að vilja allt fyrir alla gera en vinnur eftir reglu­verki sem ein­hver bjó til og það er nú einmitt feg­urðin í þessu, reglu­verk er bara mann­anna verk og því er hægt að breyta. For­eldrar þess­arar stúlku fóru í mál og það tók fimm ár fyrir fjöl­skyld­una að fá í gegn það sem þau áttu rétt á allan tím­ann. Og hvað kosta þessi mála­ferli ríkið? Pottþétt miklu miklu meira heldur en þetta eina hjól.“

Samkvæmt Línu Rut er mun betur haldið utan um fatl­aða og fjöl­skyldur ann­ars staðar um Norð­ur­lönd, eins og hún kom að fyrr í við­tal­inu. „Nú þekki ég vel til í Noregi, ef það fæð­ist fatlað barn þá er teymi sem umvefur fjöl­skyld­una og allt gert til þess að auð­velda þeim verk­efnið sem er framundan. Ef ein­hver til dæmis veik­ist og þarf á hjóla­stól að halda, er fjöl­skyldan boðuð á fund á spít­al­anum. Þar bíður þeirra teymi, þrír sér­fræð­ingar, hver á sínu sviði og einn frá félags­þjón­ust­unni sem sér um allt sem við­kemur fjár­málum og allir tala saman. Síðan kemur teymið heim og það er farið yfir allt frá A-Ö. Hvað þarf þessi ein­stak­lingur til að geta lifað sínu lífi með reisn? Og ef við­kom­andi á fjöl­skyldu er öllu til kostað svo að hver og einn geti komið lífi sínu sem fyrst í sitt fyrra horf og passað upp á að aðrir fjöl­skyldu­með­limir missi ekki heils­una af álagi. Hér á landi þegar fatlað barn fæð­ist, er nán­ast eins og það sé fyrsta barnið á land­inu sem fæð­ist með fötlun. Maður er eins og útspýtt hunds­skinn fálm­andi í allar áttir í mörg ár, eða eins og í okkar til­felli, tugi ára, til að átta sig á öllu saman. Nú er ég ekki að segja að allt sé ómögu­legt varð­andi þennan mála­flokk á Íslandi, en það er alveg ljóst að það er of mikið í ólagi. Og við töpum öll.“

Skóli án aðgreiningar

Lína Rut hefur einnig sterkar skoð­anir á því sem kall­ast „Skóli án aðgrein­ingar“.

„Skóli án aðgrein­ingar. Falleg hug­sjón sem virkar ekki fyrir alla, ekki ein­ungis vegna þess að hún er fjársvelt heldur gengur hug­mynda­fræðin ekki upp. Þessi hug­sjón er í besta falli ein­föld sjálfs­blekk­ing og eða veru­leikafirr­ing því allir ættu að vita að börn þurfa sam­fé­lag þar sem þau eru meðal jafn­ingja og upp­lifa sig ekki minni máttar. Við þurfum öll að finna til okkar, finn­ast við gera gagn og við þurfum öll sam­fé­lag þar sem við finnum mátt okkar og megin og eign­umst jafn­vel vini á jafn­ingja­grund­velli. Ég spyr, er það ekki aðgrein­ing þegar barn er tekið út úr bekk í almenna skóla­kerf­inu, oft í viku jafn­vel dag­lega, farið með inn í lítið her­bergi þar sem það situr jafn­vel eitt og lærir með kenn­ara og nota bene, oft­ast kenn­ara sem hefur enga sér­hæf­ingu í mál­efnum fatl­aðra? Ég spyr, er það ekki aðgrein­ing þegar inni­hald bókar er rifið út, annað náms­efni sett inn svo ein­ungis bóka­kápan stendur eftir svo hin börn í bekknum átti sig ekki á að eitt barn getur ekki fylgt sama náms­efni og heildin?“

Lína Rut seg­ist vilja vinna gegn aðgrein­ingu en að þetta sé ekki leiðin. „Ég vil að sjálf­sögðu vinna gegn aðgrein­ingu en við getum ekki fórnað lífi x fjölda barna eins og nú er verið að gera fyrir mál­stað­inn. Dæmin sem ég nefni hér fyrir ofan eru sönn og brjóta börn að sjálf­sögðu niður. Það verður því að vera val um skjól eins og í Kletta­skóla ef almenna skóla­kerfið gengur ekki fyrir barnið. En 2008 var börnum með væga þroska­hömlun mein­aður aðgangur að Kletta­skóla. Margir for­eldrar þess­ara barna hafa stigið fram og kvartað yfir ástand­inu en það er ekki hlustað. Þessi börn skulu ganga í almennan skóla, no matter what.“

Að sögn Línu Rutar sagð­ist Reykja­vík­ur­borg vera að fara eftir vilja for­eldra með því að loka Kletta­skóla fyrir þessum hópi. „Borgin sagð­ist vera að fara eftir vilja for­eldra þegar þau lok­uðu Kletta­skóla fyrir hópi þroska­haml­aðra barna, sem er sér­stakt. Hversu marga for­eldra tal­aði borgin við? Alla vega ekki mig og enga sem ég þekki. Einnig segir borgin að þetta sé það sem aðrar þjóðir séu að gera. Ég bjó í Lúx­em­borg í sex ár eftir að ég neydd­ist til að flytja úr landi með fjöl­skyld­una, svo dreng­ur­inn minn fengi að læra að lesa blindra­letur. Ég kynnti mér aðstæður í Lúx­em­borg og í kring en flest lönd bjóða upp á val, það er að segja sér­skóla fyrir þá sem þess óska. Ég spyr, eru sumir þing­menn svona illa upp­lýstir? Börn eiga ekki að bland­ast inn í póli­tík, en það er nú samt að ger­ast í þessu til­felli, börnum er fórnað fyrir mál­stað­inn og ekk­ert hlustað á umkvart­anir for­eldra. Norðmenn fóru sömu leið og við gerum nú, en þeir átt­uðu sig fljót­lega á að stefnan hentar ekki öllum og snéru af leið. Danir reyndu þetta en nokkrir þing­menn þar hafa við­ur­kennt að reynslan væri ekki eins góð og þeir bjugg­ust við. Er til of mik­ils ætl­ast að okkar þing­menn geti lært af öðrum þjóðum?“

Gerði allt vitlaust með ulli

En Lína Rut seg­ist ekki hafa gaman af því að „kvarta svona aftur og aftur fyrir alþjóð“ og að henni líðði eins og hún sé að verða „ein­hver leið­indar tuð­ari“ og hún segir að fólk hafi jafn­vel haldið því fram við hana að hún sé að þessu til að aug­lýsa sig sem lista­mann.

„Við fólk sem hugsar svona vil ég segja að ég er frekar að skemma fyrir mér því í hvert skipti sem ég stíg fram að ybba gogg þá missi ég kúnna og eða fylgi á inter­net­inu. Það þarf alveg ein­staka mann­gerð til að fólk líti fram hjá röfl­inu í mér þegar kemur að vali á lista­verki. Vegna þessa reyni ég að ræða póli­tík sem minnst opin­ber­lega, en þegar kemur að börn­unum mínum og fötl­uðum almennt, þá þegi ég ekki og mun aldrei gera.

Fyrir nokkru lenti Lína í furðu­legu máli þegar hún birti sak­lausa Facebook-færslu þar sem hún grín­að­ist vegna mask­ara sem lak niður and­lit hennar í rign­ingu. Færslan hljóð­aði eft­ir­far­andi: „Stundum er gott að vera lista­maður, við komumst upp með alls­konar. Short story, hélt að nýji maskar­inn væri vatns­heldur, svona var ég útlít­andi að dand­al­ast út um allan bæ. Getur ein­hver toppað þetta?“

Lína ullar

Segist Lína ekki hafa verið að gráta heldur hafi rign­ingin valdið þessu og að henni hafi brugðið í brún við að sjá sig í spegl­inum þegar heim var komið og ákvað að spauga aðeins. „Mér finnst þetta bara fyndið og geri óspart grín af sjálfri mér þannig að auð­vitað var must að deila þess­ari gleði með Facebook-vinum mínum. Ég tók nokkrar sjálfur og til að fá smá fjöl­breytni í þetta þá ull­aði ég í mynda­vél­ina. Verð að við­ur­kenna að kyn­líf var mér síst í huga þegar ég tók þá mynd og birti. En myndin fór fyrir brjóstið á nokkrum ein­stak­lingum sem sáu sig knúna til að senda mér pri­vate skila­boð og vönd­uðu mér ekki kveðj­urnar. Fór að hugsa eftir á, „Guð minn góður, erum við ekki komin lengra en þetta, gerði Me Too hreyf­ingin ekki meira gagn?“ En jú, veit að hún gerði heil­mikið gagn en þetta kom mér veru­lega á óvart, kona ullar og allt verður vit­laust,“ sagði Lína Rut og hló.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fatlaðir

Þuríður fór á fimmta Evrópuþings fatlaðs fólks: „Frjáls för er réttur, ekki óeðlileg krafa“
Innlent

Þuríður fór á fimmta Evr­ópu­þings fatl­aðs fólks: „Frjáls för er réttur, ekki óeðli­leg krafa“

Fimmta Evr­ópu­þing fatl­aðs fólks var haldið í vik­unni en 600 full­trúar fatl­aðs fólks frá öllum aðild­ar­ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins mættu til Brussel. Þar voru rétt­indi fatl­aðra innan Evr­ópu­sam­bands­ins rædd. Eft­ir­far­andi texta er að finna um fund­inn á vef Öryrkja­banda­lagi Íslands: 600 full­trúar fatl­aðs fólks frá öllum aðild­ar­ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins mætt­ust í sal Evr­ópu­þings­ins í Brussel í vik­unni á fimmta Evr­ópu­þingi fatl­aðs fólks til...
Fólk

„Þarna klippt­ist líf mitt í sundur á sek­úndu­broti“

Hún er þekkt sem for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands og brennur fyrir bar­áttu­málum öryrkja. Eftir að hafa lam­ast í hestaslysi fyrir rúmum 13 árum og tók við nýr kafli með ótelj­andi áskor­unum. Ekkert varð eins og áður. Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir er í við­tali í nýj­ustu Vikunni. „Slysið sem breytti lífi mínu varð á sól­ríkum vinnu­degi í lok apríl árið 2007, en þá...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins