Kvikmyndaframleiðandinn Guðbjörg Sigurðardóttir hefur nú selt íbúð er hún átti við Reykjastræti 5 í sjálfri höfuðborginni; hér er um að ræða 148,7 fm íbúð sem er í blokk er byggð var árið 2019.Borgaði Guðbjörg 207.000.000 krónur fyrir íbúðina þegar hún keypti hana árið 2022.Guðbjörg hefur nú selt íbúðina á 230.000.000 krónur eins og fram kemur á
Smartlandi.

En Guðbjörg þurfti aðra íbúð; keypti við Austurhöfn: Þar eru þrjú svefnherbergi og þrjú baðherbergi.Herbergin skiptast í tvær stofur með baðherbergi inn af; þriðja baðherbergið er gestasnyrting.Er stofan opin í gegnum íbúðina miðja; með eldhúsi og borðstofu í hinum endanum.Tvær svalir eru í sitt hvorum endanum í íbúðinni; aðrar svalirnar úr stofunni snúa út í sér garð fyrir íbúa; hinar svalirnar eru út frá eldhúsi með útsýni að Hörpu og einnig að Hallgrímskirkju.


























Athugasemdir