„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lilja Dögg tekur við Almannarómi: „Þetta er meiri háttar hagsmuna- og jafnréttismál“

Lilja Dögg tekur við Almannarómi: „Þetta er meiri háttar hagsmuna- og jafnréttismál“
Lilja Dögg Jóns­dóttir er fram­kvæmda­stjóri Almannaróms

Lilja Dögg Jóns­dóttir er nýr fram­kvæmda­stjóri Almannaróms en þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­inu en hún tekur við af Jóhönnu Vigdísi Guð­munds­dóttur sem hefur verið í þeirri stöðu síðan árið 2018.

„Lilja Dögg hefur að baki víð­tæka reynslu úr heimi tækni og stefnu­mót­unar. Sem sér­fræð­ingur í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu leiddi hún stefnu­mótun á sviði gervi­greindar og fór meðal ann­ars fyrir ritun stefnu Íslands um gervi­greind. Þá tók hún nýverið þátt í mótun mál­tækni­á­ætl­unar 2.0 sem full­trúi í stýri­hópi menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Lilja hefur einnig sinnt fjöl­breyttum verk­efnum á hinu alþjóð­lega sviði. Hún bjó í Banda­ríkj­unum í tæpan ára­tug og gegndi á þeim tíma meðal ann­ars stjórn­enda­stöðum hjá sprota­hraðl­inum Redstar Ventures og hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Burning Glass Technologies. Á Íslandi starf­aði hún nú síð­ast sem fram­kvæmda­stjóri við­skipta­þró­unar hjá íslensk-jap­anska fyr­ir­tæk­inu Takanawa og situr einnig í stjórn Brynju, leigu­fé­lags ÖBÍ,“ segir um Lilju í til­kynn­ing­unni en Lilja lauk MBA prófi frá Harvard árið 2015 eftir að hafa klárað hag­fræði­nám í Háskóla Íslands. Lilja ólst upp í Árbæj­ar­hverfi í Reykja­vík.

Almannarómur er mið­stöð mál­tækni á Íslandi. Almannarómur ber ábyrgð á fram­kvæmd mál­tækni­á­ætl­unar stjórn­valda. Mið­stöðin er óháð sjálfs­eigna­stofnun.

Við fram­kvæmd mál­tækni­á­ætl­unar er ann­ars vegar lögð áhersla á smíði og þróun inn­viða fyrir íslenska mál­tækni og hins vegar á sam­starf við fyr­ir­tæki og stofn­anir sem koma mál­tækni­lausnum í notkun hjá almenn­ingi. Rann­sóknar- og þró­un­ar­hóp­ur­inn SÍM (Samstarf um íslenska mál­tækni) vinnur nú að smíði og þróun inn­viða fyrir íslenska mál­tækni.

„Máltækni er fram­lína tækni­þró­unar á heims­vísu í dag sem birt­ist til dæmis í því hvernig við getum orðið talað við tækn­ina og hún við okkur. Markmið Almannaróms er að tryggja að íslenskan verði ekki skilin eftir í þeirri gríð­ar­hröðu fram­þróun sem nú á sér stað á þessu sviði. Þetta er meiri háttar hags­muna- og jafn­rétt­is­mál fyrir alla Íslend­inga og því mik­ill heiður að vera treyst fyrir þessu mik­il­væga verk­efni,“ sagði Lilja Dögg í til­efni nýja starfs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins