„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Læknirinn sem naut þess að kvelja fólk til dauða

Læknirinn sem naut þess að kvelja fólk til dauða

Þó Neill Cream hafi verið mennt­aður læknir hafði hann lít­inn áhuga á að bjarga manns­lífum. Hann afl­aði fjár með því að fram­kvæma ólög­legar fóst­ur­eyð­ingar. Hann var veikur fyrir vænd­is­konum og margar þeirra sem hann setti sig í sam­band við sáu ekki framar nýjan dag. Hann not­aði strik­nín til ódæð­is­verk­anna og naut til­hugs­un­ar­innar um þær kvalir sem fórn­ar­lömb hans upp­lifðu fyrir dauð­ann.

Neill Cream fædd­ist í Glasgow í Skotlandi 1850, en for­eldrar hans fluttu til Kanada þegar hann var ungur að árum og þau höfðu ráð á að koma honum til náms. Náms­fer­ill Creams hófst í Kanada og hann lauk síðan lækna­námi í London á Englandi og í Edinborg í Skotlandi, árið 1878.

Áður en lengra er haldið er vert að minn­ast á Floru Brooks. Flora þessi og Cream stungu saman nefjum árið 1876, þegar Cream stund­aði lækna­nám í Quebec í Kanada.

Flora Brooks varð barns­haf­andi og Cream lof­aði að kvæn­ast henni, en áður en til þess kom reyndi hann að eyða fóstr­inu. Það gekk ekki sem skyldi og Flora veikt­ist alvar­lega í kjöl­farið.

Cream hugð­ist þá stinga af til Montreal, en faðir Floru hafði hendur í hári hans áður og neyddi hann til að kvæn­ast Floru. Daginn eftir gift­ing­una hélt Cream til Englands til frekara náms í lækn­is­fræði. Brooks-fjöl­skyldan sá hvorki tangur né tetur af Cream þaðan í frá.

Af Floru er það að segja að hún dó úr berklum árið 1877.

Opnaði lækningastofu án leyfis

Árið 1876, eftir að hafa stungið af frá Kanada, útskrif­að­ist Neill Cream sem læknir frá virtum skóla í London og sótti, sem fyrr segir, síðan frek­ari menntun í skurð­lækn­ingum í lækna­skóla í Edinborg árið 1878.

Cream flutti síðar til Banda­ríkj­anna og stund­aði lækn­ingar um stutt skeið í Des Moines í Iowa. Þaðan fór hann síðan til Ontario í Kanada. Þar hófst Cream handa á röngum enda og opn­aði lækn­inga­stofu án þess að verða sér út um leyfi til þess fyrst. Hann var ákærður fyrir vikið að ját­aði sig sekan. Þetta varð þó ekki til þess að draga úr starf­sem­inni hjá honum því fjöldi fólks kom til hans í von um bót sinna meina.

Svo virð­ist sem tími Creams í Ontario hafi verið tíð­inda­lít­ill … ef frá er tal­inn dauði Catharine Hutchinson Gardner, barns­haf­andi konu sem fannst látin á kamri fyrir aftan lækn­inga­stofu Creams. Banamein hennar var of stór skammtur af klór­ó­formi.

Cream hafði að sögn neitað að hjálpa Catharine með fóst­ur­eyð­ingu, en hvatt hana til að saka þekktan kaup­sýslu­mann um fað­ernið.

Cream full­yrti að Catharine hefði hótað að fremja sjálfs­morð þegar hann neit­aði henni um fóst­ur­eyð­ingu og að hún hefði skrifað bréf þar sem hún nafn­greindi barns­föð­ur­inn. Fjöl­skylda Catharine vís­aði full­yrð­ingu Creams til föð­ur­hús­anna og í ljós kom að und­ir­skrift og rit­hönd á umræddu bréfi átti ekk­ert skylt við rit­hönd Catharine. Þrátt fyrir vís­bend­ingar um aðild Creams að dauða kon­unnar var ekk­ert aðhafst og málið var aldrei leyst.

Fóstureyðingar og fjárkúganir

Morð­fer­ill Creams hófst vestan Atl­ants­hafs­ins, en hann hafði flutt til Chicago og komið á lagg­irnar lækna­stofu, ekki langt frá rauða hverf­inu þar sem vænd­is­kon­urnar héldu til. Á stofu sinni bauð hann upp á fóst­ur­eyð­ingar, en þær voru ólög­leg en arð­bær starf­semi. Í apríl 1880 Cream sætti lög­reglu­rann­sókn vegna dauða konu að nafni Mary Anne Faulkner sem kom til hans í fóst­ur­eyð­ingu, en ekk­ert var gert vegna skorts á sönn­un­ar­gögnum. Í des­em­ber sama ár lést önnur kona, frú Stack, eftir að hafa leitað lækn­inga hjá Cream. Cream reyndi þá að kúga fé út úr lyf­sal­anum sem hafði skrifað upp á lyfið sem frú Stack hafði fengið.

Í júlí 1881 dó maður að nafni Daniel Stott af strik­nín-eitrun. Cream hafði útvegað Stott strik­nínið og sagt það geta haft áhrif á floga­veiki sem Stott glímdi við. Aftur reyndi Cream að kúga fé út úr lyf­sal­anum. Í kjöl­farið var Cream hand­tek­inn ásamt eig­in­konu Stotts, Juliu Abbey, sem þegar þar var komið sögu var orðin ást­kona Creams. Julia Abbey, sem hafði fengið eitrið hjá Cream, ákvað að semja við ákæru­valdið og skildi Cream eftir í súp­unni. Hann var dæmdur til lífs­tíð­ar­fang­elsis en var sleppt eftir tíu ára afplánun. Sagan segir að Cream hafi fengið náðun eftir að bróðir hans tal­aði máli hans og að umtals­vert fé hafi skipt um hendur í þeim samn­inga­um­leit­unum.

Fé sem Cream hafði erft eftir föður sinn, sem lést 1887, gerði honum kleift að flytj­ast til Englands. Hann kom til Liverpool í byrjun októ­ber árið 1891 og leið hans lá til London, þar sem hann tók á leigu hús­næði við Lambeth Palace-veg, en á þeim tíma var Lambeth-hverfið und­ir­lagt af fátækt, smá­glæpum og vændi.

Aðdáun á Kobba kuta

Það er kald­hæðn­is­legt að Cream framdi sín verstu ódæði eftir að hafa verið sleppt úr lífs­tíð­ar­fang­elsi fyrir morð.

Cream leit­aði fórn­ar­lamba á sömu slóðum og Kobbi kuti eða Jack the Ripper eins og hann var nefndur í Bret­landi, en þá voru um þrjú ár liðin frá því að Jack the Ripper hafði látið að sér kveða. Lítt upp­lýst stræti Lambeth í Lundúnum voru kjörin til að finna fórn­ar­lömb sem svalað gætu kvala­losta Creams, hann var því kunn­ugur frá náms­árum sínum. Einn kunn­ingja Creams lýsti honum sem „úrkynj­uðum manni með sóða­legar þrár og starfs­að­ferðir“. Cream Neill hafði fylgst með ferli Kobba kuta og naut þess að ganga um á þeim slóðum þar sem Kobbi kuti hafði framið ódæði sín. Cream var einnig veikur fyrir vænd­is­konum og gum­aði oft og tíðum af því að hafa verið með tveimur í einu, eða heim­sótt þrjár á einu og sama kvöld­inu. En hann var veikur fyrir ýmsu öðru og hann gaf vænd­is­kon­unum gjarna pillu eftir að hafa legið með þeim. Sagði hann að pillan myndi laga and­lits­bletti. Pillan var að sjálf­sögðu strik­nín og Cream ylj­aði sér við til­hugs­un­ina um þær óhugn­an­legu kvalir sem stúlk­urnar upp­lifðu áður en þær gáfu upp önd­ina.

Ein sú fyrsta sem vitað er um hét Ellen Donworth, 19 ára. Hún hafði fengið bréf frá Cream, reyndar tvö, og féllst á að hitta hann 13. októ­ber, árið 1891. Hann bauð henni vín úr flösku, en eitt­hvað hefur verið gör­ótt við þann drykk því Ellen varð heift­ar­lega veik um nótt­ina og and­að­ist að lokum. Nið­ur­staða krufn­ingar sýndi strik­nín-eitrun.

Áður en Ellen skildi við tókst henni að lýsa mann­inum sem hafði gefið henni vín. Sá hefði verið til­eygður með gull­spanga­gler­augu og silki­hatt á höfði. Einnig hefði mað­ur­inn verið með viða­mikið yfir­var­ar­skegg.

Undarleg bréf

Nokkrum dögum síðar, 20. októ­ber, fylgd­ust tvær vænd­is­konur, Elizabeth Masters og Elizabeth May, með Cream, út um glugg­ann á vist­ar­verum sínum, þar sem hann gekk í átt til þeirra og töldu þær sig eiga við­skipti vís. En áður en hann komst alla leið fékk hann til­boð frá annarri næt­ur­drottn­ingu, Mathildu Clover, og fór með henni til híbýla hennar í Lambeth-stræti. Tveimur tímum síðar lést Mathilda með miklum kvölum, en þegar hún fannst nær dauða en lífi, tókst henni þó að stynja upp að maður að nafni Fred hefði gefið henni eitr­aðar pillur. Læknir hennar, sem einnig ann­að­ist hana vegna áfeng­is­sýki, setti í skýrslu sína að hún hefði dáið af eðli­legum orsökum.

Neill Cream fylgdi þessum morðum sínum eftir með for­vitni­legum orð­send­ingum. Undir fölskum nöfnum sendi hann dóms­mála­ráð­herr­anum, Charles Russell lávarði, og William Broad­bent, virtum tauga­sér­fræð­ingi og lækni, bréf þar sem hann sak­aði þá báða um morðið á Mathildu. Cream krafð­ist 2.500 punda af Broad­bent, ann­ars yrði hann afhjúp­aður. Broad­bent var með hreina sam­visku og fór með bréfið til lög­regl­unnar, en fjár­kúg­ar­inn gerði ekki frekar vart við sig. Cream skrif­aði einnig til rétt­ar­lækn­is­ins sem hafði haft Ellen Donsworth á sinni könnu og sagð­ist hafa upp­lýs­ingar sem hann vildi selja fyrir 300.000 pund. Undir bréfið skrif­aði hann G. O‘Brian leynilög­reglu­maður, en lög­reglan setti bréfið í bjána­möppu sína sem geymdi ýmsar lítt trú­verðug bréf og upp­lýs­ingar sem töld­ust bull. Hvað vakti fyrir Cream með þessum bréfa­skriftum varð aldrei ljóst, en lík­lega vildi hann ein­göngu stríða þeim sem elt­ust við hann.

Reynir að varpa sök á annan

Cream Neill sigldi til Kanada 1892, en sneri fljót­lega aftur til Lundúna og fyrr en varði ráf­aði hann um Lambeth-stræti í leit að fórn­ar­lömbum.

Ein vænd­is­kona, Louise Harvey, slapp með skrekk­inn. Cream lét hana fá tvær pillur og sagði henni að gleypa þær í snar­hasti. Louise fyllt­ist grun­semdum og þótt­ist gleypa pill­urnar, en kastaði þeim í raun í Tempsána.

Í apríl sæng­aði hann hjá tveimur vænd­is­konum, Emmu Shrivell og Alice March, í einu. Um klukkan tvö um nótt­ina yfir­gaf hann stúlk­urnar, en hafði áður gefið þeim þrjár pillur hvorri. Dauðdagi stúlkn­anna um nótt­ina var hroða­lega kvala­fullur.

Meðan á rann­sókn­inni stóð fór hrollur um borg­ar­búa, sem voru þess full­vissir að Jack the Ripper hefði ekki sagt sitt síð­asta orð. En í ljós kom að bana­mein stúlkn­anna var strik­nín-eitrun. Venju sam­kvæmt gat Cream ómögu­lega á sér setið. Hann skrif­aði bréf til læknis að nafni Harper og sak­aði son hans, sem var lækna­nemi, um verkn­að­inn. Krafðist Cream 1.500 sterl­ingspunda fyrir að halda vit­neskj­unni fyrir sig. Harper fór með bréfið til lög­regl­unnar. Lög­reglan hafði undir höndum bréf frá Cream sjálfum, sem átti að hafa verið sent til Emmu og Alice, þar sem þær voru var­aðar við Harper lækni og sagt að Harper hefði myrt Mathildu Clover og Lou Harvey, sem Cream greini­lega hélt að hefði lát­ist eftir að hafa gleypt pill­urnar sem hann gaf henni. Rit­höndin var sú sama og Cream var ákærður fyrir til­raun til fjár­kúg­unar.

Cream handtekinn

Í milli­tíð­inni hafði lík Mathildu Clover verið grafið upp, og þá komu í ljós mis­tök lækn­is­ins. Mathilda hafði dáið vegna strik­nín-eitr­unar. Cream hafði orðið ber að alvar­legum mis­tökum; aðeins morð­ingi Mathildu hefði getað vitað að hún hefði verið myrt. Cream hafði sakað annan um ódæðið í bréfi sem lög­reglan hafði undir höndum, og þannig varpað sök á sjálfan sig. Elizabeth Masters og nafna hennar May voru báðar reiðu­búnar að bera vitni um að hafa séð Neill Cream í félags­skap Mathildu skömmu fyrir dauða hennar. Lög­reglan taldi sig vera með pott­þétt mál í hönd­unum, en einni spurn­ingu var þó ósvarað: Hver var þessi Lou Harvey? Cream var hand­tek­inn 3. júní 1892 og ákærður fyrir morð. Seinna kom í ljós að Lou Harvey var senni­lega Louise Harvey, sú eina sem hafði sloppið lif­andi frá Cream.

Neill Cream gat ekki við­haft miklar varnir vegna þeirra saka sem á hann voru bornar. Þær voru studdar af fram­burði Elizabeth Masters, Elizabeth May og Louise Harvey. Apó­tek­ari stað­festi að Cream hefði keypt af honum græn­meti sem strik­nín var unnið úr og til að full­komna allt saman fann lög­reglan flöskur sem inni­héldu strik­nín í híbýlum Creams. Það tók kvið­dóm­inn aðeins tólf mín­útur að kom­ast að nið­ur­stöðu og þann 21. októ­ber, 1892, var Cream sak­felldur fyrir að myrða Mathildu Clover, Ellen Donworth, Alice Marsh og Emmu Shrivell auk til­raunar til að myrða Louise Harvey og til­rauna til fjár­kúg­unar. Þar sem Cream Neill stóð við gálgann þann 15. nóv­em­ber, 1892, gerði hann, að sögn böð­uls­ins, und­ar­lega játn­ingu. Cream full­yrti að hann væri Kobbi kuti, Jack the Ripper. Hvað vakti fyrir honum er ekki vitað, en hins vegar er ljóst að Cream gat með engu móti verið sá frægi morð­ingi því þegar ógn­ar­tíð hans stóð hvað hæst, 1888, hafði Cream óhrekj­an­lega fjar­vist­ar­sönnun; hann var í grjót­inu í Chicago.

Óstaðfest fullyrðing

Böð­ull­inn sem sá um heng­ingu Creams, James Bill­ington, full­yrti að Cream hefði sagt: „Ég er Jack the …“, en ekki náð að klára setn­ing­una. Bill­ington aug­lýsti þetta sem sönnun þess að hann og eng­inn annar hefði afrekað að taka af lífi þann alræmda raðmorð­ingja Jack the Ripper.

Þessi full­yrð­ing var aldrei sönnuð og eng­inn sem var við­staddur aftök­una gat stað­fest að Cream hefði sagt nokkuð þessu líkt. Auk þess sem Cream var í fang­elsi þegar Jack the Ripper framdi ódæði sín.

Einn „Ripper-fræð­ingur“, Donald Bell, varp­aði þeirri kenn­ingu fram að Cream hefði á sínum tíma mútað emb­ætt­is­mönnum í Chicago og því losnað fyrr úr fang­elsi þar en opin­ber­lega var talið. Lög­mað­ur­inn sir Edward Marshall-Hall, sam­tíma­maður Creams, velti þeim mögu­leika upp að tví­fari Creams hefði í raun afplánað dóm­inn sem hann fékk í Banda­ríkj­unum.

Ekkert hefur komið fram sem styður þessar kenn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hlaðvörp

Sakamálið – 26. þáttur: Líkið var hlutað í „meðfærilega bita“
Menning

Saka­málið – 26. þáttur: Líkið var hlutað í „með­færi­lega bita“

Hvarf Trishu Autry árið 2000 var mikil ráð­gáta. Í ell­efu mán­uði biðu for­eldrar hennar á milli vonar og ótta. Óttinn átti rétt á sér vonin ekki. Þegar lík­ams­leifar Trishu fund­ust báru þær þess merki að hún hefði verið bútuð niður í „með­færi­lega bita“. Síðustu stundir Trishu í jarð­líf­inu urðu að lokum nokkuð ljósar og böndin bár­ust að manni sem var...
Sakamálið – 25. þáttur: Morðkvendið sem fór að dorga
Menning

Saka­málið – 25. þáttur: Morð­kvendið sem fór að dorga

Óhætt er að segja að Darlene Gentry hafi verið í djúpum skít þegar hringur lög­regl­unnar var far­inn að þrengj­ast um hana vegna dauða eig­in­manns hennar, Keith, sem að hennar sögn hafði verið skot­inn af inn­brots­þjófi. Lögreglu þótti margt loðið og ótrú­legt í frá­sögn Darlene, en skorti þó bein­harðar sann­anir. Eitt var það sem sár­lega skorti við rann­sókn máls­ins, en það...
Sakamálið – 23. þáttur: Tuttugu ára prísund hefðarkonunnar
Menning

Saka­málið – 23. þáttur: Tuttugu ára prís­und hefð­ar­kon­unnar

Lafði Elizabeth Cathcart taldi sig hafa fundið ást­ina þegar hún kynnt­ist írskum karl­manni, Hugh Maguire að nafni. Elizabeth keypti handa honum ofursta­tign og nán­ast bjarg­aði honum úr ræs­inu. Þau gengu síðar í hjóna­band, en Hugh reynd­ist hins vegar vera úlfur í sauð­ar­gæru og líf Elizabeth varð að hel­víti. En það gekk erf­ið­lega fyrir Hugh að brjóta eig­in­konu sína til hlýðni...
Sakamálið – 23. þáttur: Skapbráði verkamaðurinn í Bournemouth
Menning

Saka­málið – 23. þáttur: Skap­bráði verka­mað­ur­inn í Bournemouth

Samuel Elkins braut blað í sögu Bournemouth á Englandi. Reiði vegna brott­rekstrar olli því að hann ban­aði yfir­manni sínum. Lög­reglan átti erfitt með að trúa játn­ingu Elkins, enda höfðu smá­glæpir verið það eina sem hún hafði þurft að glíma við í kjör­dæm­inu. Við heyrum nú sög­una um skap­bráða verka­mann­inn Samuel Elkins … Hægt er að hlusta á allt hlað­varpið hér
Sakamálið – 22. þáttur: Skötuhjúin ósvífnu, Bonnie og Clyde
Menning

Saka­málið – 22. þáttur: Skötu­hjúin ósvífnu, Bonnie og Clyde

Sá ævin­týra­ljómi sem lék um Bonnie og Clyde í upp­hafi sam­eig­in­legrar sögu þeirra máð­ist skjótt. Róm­an­tíkin sem almenn­ingur í Banda­ríkjum kreppu­ár­anna tengdi við þau föln­aði og eftir stóðu for­hertir morð­ingjar. Það sem hófst sem ævin­týri ungs ást­fang­ins pars breytt­ist í flótta undan vörðum lag­anna og í kjöl­farið hrúg­uð­ust líkin upp. Hlustaðu á allt hlað­varpið hér.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza