„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gísli rólegur númer 258 á biðlistanum eftir geimferðinni: „Ég fer með íslenska fánann með mér“

Gísli rólegur númer 258 á biðlistanum eftir geimferðinni: „Ég fer með íslenska fánann með mér“
Gísli Gíslason við geim­ferj­una. Mynd úr einka­safni.

„Það er ekk­ert mál að bíða eftir Branson,“ segir Gísli Gíslason athafna­maður sem árið 2010, fyrir 14 árum, keypti sér far­miða út í geim með Virgin Galatic, fyr­ir­tæki millj­arða­mær­ings­ins og ævin­týra­manns­ins Richards Branson. Miði Gísla er númer 258.

Biðin ógur­lega eftir geim­ferð­inni hefur vakið mikla athygli erlendis. Gísli, sem er skráður geim­fari í síma­skrá, segir í sam­tali við Mannlíf að hann reikni með að kom­ast út í geim eftir 2-3 ár. Nú er reiknað með að fyrstu menn á biðlist­anum fari út í geim í sumar. Upp­haf­lega var áætlað að ferðin með Íslend­ing­inn út í geim yrði farin árið um sex til átta árum síðar. Sú áætlun breytt­ist hins vegar þegar sá hræði­legi atburður átti sér stað að til­raunaflaug með tvo flug­menn sprakk skömmu eftir flug­tak í nóv­em­ber 2014.

Fjöl­skylda og vinir Gísla fóru þá að spyrja hann reglu­lega hvort hann væri ekki hættur við að fara út í geim, sem á end­anum leiddi til þess að Gísli fékk vin sinn, Fjölni Geir Bragason, til að flúra vöru­merki Virgin Galactic á vinstri fram­hand­legg­inn. Næst þegar þessar spurn­ingar komu bretti Gísli upp erminni.

Geim­far­inn og húð­flúr­ar­inn.

Miðinn kost­aði á sínum tíma 200 þús­und doll­ara. Nú er verð­mið­inn tal­inn vera um milljón doll­arar eða rúm­lega 140 millj­ónir íslenskra króna. Gísli segir að þrátt fyrir þessa löngu bið eftir að kom­ast út í geim, þá séu fáir miða­eig­endur að kvarta. Richard Branson kunni sitt fag og sé nokkuð góður í að sjá til þess að engum leið­ist.

Gísli Gíslason og Richard Branson.

Hann kunni að halda partí, sem eru orðin ófá, með þeim sem eru á list­anum yfir þá sem bíða þess að kom­ast út í geim. Gísli er ekki í vafa um að geim­ferðin sé handan við hornið. Aðeins einn Íslend­ingur, Bjarni Tryggva­son, hefur áður farið út í geim. Hann var með kanadíska fán­ann með sér.

„Ég fer með íslenska fán­ann með mér,“ segir Gísli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins