„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fimm ógeðsleg skilaboð biðu Davíðs eftir dómgæsluna:„Skot klukkan var sein fokking mongolitið þitt“

Fimm ógeðsleg skilaboð biðu Davíðs eftir dómgæsluna:„Skot klukkan var sein fokking mongolitið þitt“
Davíð Tómas Tómasson eða Dabbi T eins og hann hefur kallað sig á rapp­sen­unni. Mynd: Facebook

Körfuknatt­leiks­dóm­ar­inn Davíð Tómas Tómasson fékk óhugn­an­leg skila­boð eftir að hafa dæmt odda­leik Njarð­víkur og Þórs í 8. liða úrlitum karla í gær.

Davíð Tómas Tómasson, körfu­hnatt­leiks­dóm­ari og rapp­ari, skrif­aði færslu í dag þar sem hann segir frá mjög leið­in­legum skila­boðum sem hann fékk send á sig í gær­kvöldi. Davíð hafði þá dæmt odda­leik Njarð­víkur og Þórs í 8. liða úrslitum karla í körfuknatt­leik en leik­ur­inn var mjög jafn og fór í fram­leng­ingu en heimaliðið vann eftir flautukörfu.

„Í gær dæmdi ég odda­leik Njarð­víkur og Þórs í 8.liða úrslitum karla. Leik­ur­inn var jafn og spenn­andi nán­ast allan tím­ann og gríð­ar­lega vel leik­inn. Hann fer í fram­leng­ingu og heimaliðið vinnur eftir að skora flautukörfu nálægt miðj­unni. Lygi­legur endir á frá­bærum leik!“ Þannig hefst færsla Davíðs og heldur svo áfram:

„Í algjöru spennu­falli komum við dóm­ar­arnir niður í klefa eftir leik og fyrsta sem við gerum er að taka utan um hvorn annan. Aðallega vegna þess að deila svona reynslu er ómet­an­legt en ekki síður vegna þess að við komumst, að okkar mati, mjög vel frá verk­efn­inu. Gamanið kárn­aði hins vegar fljótt þegar ég opna sím­ann minn. Þessi skila­boð voru ein af fimm sem biðu mín eftir leik i gær, öll á svip­aða vegu.“

Segir Davíð í færsl­unni að á 17 ára ferli sínum sem dóm­ari hafi hann fengið ótelj­andi skila­boð af sama meiði og þau sem hann fékk í gær. Segist hann hafa farið yfir dóm­gæsl­una fram á nótt og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að leik­ur­inn hafi verið „gríð­ar­lega vel dæmdur“ eins og hann orðar það:

„Ég hef dæmt í 17 ár, ótal marga mik­il­væga leiki og skila­boðin af þessu tagi hafa verið ótelj­andi. Á öllum miðlum, öll árin og á öllum tímum sól­ar­hrings­ins. Áður en að ég faldi síma­núm­erið mitt á ja.is og hér á Facebook var ég líka að fá sím­hring­ingar á nótt­unni.Það eru fáir eins gagn­rýnir á eigin frammi­stöðu og ég, enda er það eina leiðin til að ná raun­veru­legum árangri. Eftir leik í gær var það okkar til­finn­ing að hann hafi verið gríð­ar­leg vel dæmdur, það var síðan stað­fest eftir að hafa horft á hann aftur þegar heim var komið og rýnt í alla ákvarð­ana­töku langt fram á nótt. Því að það er vinnan sem maður setur inn í þetta, ekki bara að mæta 5 mín­útur fyrir leik og gera bara eitt­hvað. Þràtt fyrir hversu vel það gekk bíða mín fimm skila­boð.. Fimm! Þið getið ímyndað ykkur hvernig póst­hólfið er þegar það gengur ekki eins vel á vell­inum.“

Í loka­orðum sínum talar Davíð um kyn­slóða­skipti í körfu­bolta­dóm­gæslu á Íslandi:

„Nú eru kyn­slóða­skipti í íslenskri körfu­bolta dóm­gæslu. Margir af okkar leið­andi mönnum eru nú þegar hættir eða eru á síð­ustu metr­unum. Það gengur erifð­lega að fá inn nýja menn og eng­inn skilur afhverju það er ..Úrslita­keppnin eru jólin í íslensku körfu­bolta­lífi. En þó að það sé mikið í húfi og til­finn­ingar í hámarki þurfum við samt öll að gera betur en þetta!“

Með færsl­unni lét hann fylgja eft­ir­far­andi skjá­skot af einum skil­að­boð­unum:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

körfubolti

Dwight Howard segist hafa verið neyddur til að eyða tvíti um Palestínu: „Ég synti á móti straumnum“
Heimur

Dwight Howard seg­ist hafa verið neyddur til að eyða tvíti um Palest­ínu: „Ég synti á móti straumnum“

Fyrrum NBA stjarnan Dwight Howard segir að honum hafi verið gert að eyða tíst­inu „Free Palestine“ árið 2014. Fram­kvæmda­stjóri Körfuknatt­leiks­sam­bands­ins (e. NBA) hringdi innan tíu mín­útna og skip­aði íþrótta­mann­inum að fjar­lægja færsl­una, segir Howard við hlað­varps­stjórn­anda og bætti við: „Ég var að synda á móti straumnum“. Fyrrum NBA stjarnan Dwight Howard sagði í hlað­varpi­við­tali á þriðju­dag að eftir að hafa...
Allt að gerast í körfunni í Keflavík
Innlentkörfubolti

Allt að ger­ast í körf­unni í Keflavík

Lið Kefla­víkur í körfu­bolt­anum samdi á dög­unum við sex upp­alda leik­menn sína; félagið á bæði lið í Bónus-deild­inni sem og fyrstu deild kvenna. Þetta kom fyrst fram á vef­síð­unni karfan.is. Leik­menn­irnir sem Keflavík samdi við eru eft­ir­far­andi: Agnes María Svans­dóttir, Anna Lára Vign­is­dóttir, Ásdís Elva Jóns­dóttir, Bríet Sif Hin­riks­dóttir, Eva Kristín Karls­dóttir og Hanna Gróa Hall­dórs­dóttir. Samn­ing­arnir eru frá einu...
Lögreglan rannsakar gróft brot í körfuboltaleik: „Maður sá greinilega stærð skósins á andliti hans“
Heimurkörfubolti

Lög­reglan rann­sakar gróft brot í körfu­bolta­leik: „Maður sá greini­lega stærð skó­s­ins á and­liti hans“

Lögregla í Kali­forn­íu­ríki rann­sakar nú gróft brot sem átti sér stað í körfu­bolta­leik ung­linga í bænum Alameda en þar stapp­aði 13 ára körfu­bolta­maður á höfði and­stæð­ings síns í miðjum leik um síð­ustu helgi. Atvikið gerð­ist í viður­eign lið­anna Payton’s Place og Tumakbo United sem fram fór í háskól­anum í Alameda í Kali­forníu á sunnu­dag­inn, þegar leik­menn­irnir börð­ust um bolt­ann. Í...
Sævar Sævarsson: „Aldrei orðið vitni af því í oddaleik að annað liðið er nánast dæmt úr leik“
Innlentkörfubolti

Sævar Sæv­ars­son: „Aldrei orðið vitni af því í odda­leik að annað liðið er nán­ast dæmt úr leik“

Sævar Sæv­ars­son, körfu­bolta­sér­fræð­ingur úr þætt­inum vin­sæla á Stöð 2 – Körfu­bolta­kvöld – var afar ósáttur við dóm­gæsl­una í odda­leik Vals og Grinda­víkur sem fram fór í gær­kvöld og end­aði með sigri Vals­manna. Sævar Sæv­ars­son. Sævar, sem er lög­fræð­ingur að mennt og þekktur fyrir góða yfir­sýn, skemmti­lega vinkla og þræl­góðan húmor í áður­nefndum þætti. Hann lét þetta flakka í gær­kvöld: „Hef...
Ekkert bann hjá DeAndre Kane – Þarf að punga út 50 þúsund krónum
Innlentkörfubolti

Ekkert bann hjá DeAndre Kane – Þarf að punga út 50 þús­und krónum

DeAndre Kane, leik­maður Grinda­víkur og einn sá besti á land­inu, verður með sínum mönnum í kvöld þegar liðið mætir Keflavík í öðrum leik und­an­úr­slita Subway deildar karla. Það er Karfan sem greindi fyrst frá. DeAndre Kane var rek­inn af velli í fyrsta leik lið­anna; þurfti aga- og úrskurða­nefnd því að taka málið fyrir. Samkvæmt til­kynn­ingu mun leik­mað­ur­inn fá áminn­ingu fyrir...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins