„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Verðlaun veitt fyrir ljósmyndir ársins 2023

Verðlaun veitt fyrir ljósmyndir ársins 2023
Frétta­mynd árs­ins: Kristinn Magn­ús­son.

Í dag, 27. apríl, klukkan 15 voru afhent verð­laun í Ljós­mynda­safni Reykja­víkur fyrir myndir árs­ins 2023. Veitt voru verð­laun fyrir frétta­mynd árs­ins og mynd árs­ins.

Eft­ir­far­andi frétta­til­kynn­ing barst fjöl­miðlum frá Blaða­ljós­mynd­ara­fé­lagi Íslands:

Mynd árs­ins 2023 er við fyrstu sýn ein­föld og kyrr­lát. Hún er þó afar tákn­ræn og hlaðin til­finn­ingu. Myndin sýnir Yazan, ungan flótta­mann frá Gaza, þar sem hann skreytir tíma­bundið athvarf sitt hér á landi með jóla­ljósum og fána heima­lands síns. Myndin kallar fram til­finn­ingar á borð við hryggð og sam­kennd og kemur vel til skila stolti hans yfir upp­runa sínum og heim­ili, heim­ili sem nú er glatað. Höfundur myndar árs­ins er Kjartan Þor­björns­son, eða Golli. 

Frétta­mynd árs­ins sýnir hina hlið­ina á einu stærsta frétta­máli árs­ins, jarð­hrær­ing­unum á Reykja­nesi. Myndin er frá sam­veru­stund fyrir Grind­vík­inga í Hall­gríms­kirkju. Við sáum margar stór­kost­legar myndir frá sjálfum eld­unum og eyði­legg­ing­unni sem hrær­ing­arnar höfðu í för með sér, en sig­ur­myndin fangar með eft­ir­minni­legum hætti mann­legu hlið­ina, hvernig sam­fé­lagið varð þétt­ara og fólk sýndi hvert öðru stuðn­ing á erf­iðum tíma. Höfundur frétta­myndar árs­ins er Kristinn Magn­ús­son.

Á ljós­mynda­sýn­ing­una Myndir árs­ins 2023 voru valdar 102 myndir frá 17 blaða­ljós­mynd­urum af óháðri dóm­nefnd úr fjölda inn­sendra mynda. Á sýn­ing­unni eru mynd­irnar í sex flokkum sem eru frétta­myndir, myndir úr dag­legu lífi, íþrótta­myndir, por­trett­myndir, umhverf­is­myndir, og myndaraðir. Í ár veitti dóm­nefndin verð­laun fyrir frétta­mynd árs­ins og eina mynd úr fyrr­nefndum flokkum var valin mynd árs­ins.

Dóm­nefnd­ar­störf fóru fram í byrjun febr­úar en í ár skip­uðu dóm­nefnd­ina Árni Torfason, Hrund Þórs­dóttir, Snorri Gunn­ars­son og Andrea Bruce sem var for­maður dóm­nefndar. Andrea er stríðs­frétta­ljós­mynd­ari frá Banda­ríkj­unum og hefur meðal ann­ars unnið í Írak og Palest­ínu fyrir tíma­rit eins og The New York Times og National Geographic. Hún hefur hlotið fjölda verð­launa fyrir myndir sínar. 

Blaða­ljós­mynd­ara­fé­lag Íslands var stofnað árið 1976 og starfar innan Blaða­manna­fé­lags Íslands. Sýningin Myndir árs­ins hefur verið haldin síðan 1979 og er ein fjöl­sóttasta ljós­mynda­sýn­ingin lands­ins ár hvert. Stjórn Blaða­ljós­mynd­ara­fé­lags Íslands í ár skipa Vilhelm Gunn­ars­son (for­maður), Anton Brink, Eyþór Árnason, Hallur Karlsson, Hulda Margrét Óla­dóttir og Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir. Hægt að nálg­ast bók með öllum myndum sýn­ing­ar­innar í safn­búð Ljós­mynda­safns Reykja­víkur. 

Sýningin verður opin í Ljós­mynda­safni Reykja­víkur til 18. maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ljósmyndir

Heimsþekktar ljósmyndir lifna við með hjálp gervigreindar – MYNDBAND
Menning

Heims­þekktar ljós­myndir lifna við með hjálp gervi­greindar – MYNDBAND

Heims­frægar ljós­myndir lifna við með hjálp gervi­greind­ar­innar. Gervi­greindin er á allra vörum um þessar mundir enda um stór­kost­legar tækni­fram­farir að ræða, þó ekki séu allir á einu máli um ágæti hennar. Gervi­greind­ina er hægt að nota á ótrú­lega fjöl­hæfan hátt, meðal ann­ars til þess að spyrja um hvað sem hug­anum girn­ist, til þess að semja tón­list, skrifa rit­gerðir og hvað...
Svala er falleg í fjólubláu – Bleik hárkolla og hælastígvél
Menning

Svala er fal­leg í fjólu­bláu – Bleik hár­kolla og hæl­a­stíg­vél

Svala Björg­vins er fal­leg í fjólu­bláu. Söngdívan Svala Karítas Björg­vins­dóttir birti skemmti­lega ljós­mynd af sér á Instagram í gær en þar liggur hún með gegn­sætt fjólu­blátt efni yfir sér, klædd í fjólu­blá hæl­a­stíg­vél og með bleika hár­kollu. Þetta ger­ist vart flott­ara! Ljós­mynd­ina tók ljós­mynd­ar­inn Tinna Magg en mynd­ina má sjá hér fyrir neðan:
Mynd dagsins: „Í alvörunni, hversu heitur er kaffibollinn hennar“
Innlentljósmyndir

Mynd dags­ins: „Í alvör­unni, hversu heitur er kaffi­boll­inn hennar“

Aug­lýs­inga- og mark­aðs­fyri­tækið Phen­omenal Group á mynd dags­ins sem það tví­taði í gær. Þar má sjá skemmti­lega mynd af Jóhönnu Vigdísi Hjalta­dóttur frétta­konu á kunn­ug­legum slóðum. Þar er hún stödd í frétta­setti RÚV að flytja fólki fréttir. Um hvað fréttin fjallar er auka­at­riði því líkt og myndin sýnir svo skemmti­lega virð­ist hún vera með svaka­lega heitt kaffi í bolla á...
Öðruvísi tímaritaforsíður á kórónuveirutímum
Heimurljósmyndir

Öðruvísi tíma­rita­for­síður á kór­ónu­veiru­tímum

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur sann­ar­lega sett stórt strik í reikn­ing­inn hvað vinnslu tísku­tíma­rita varðar og nýj­ustu for­síður margra stórra tíma­rita bera þess merki. Góð ráð eru dýr þegar aflýsa þarf flestum for­síðu­mynda­tökum af sótt­varnar­á­stæðum. Anna Wintour, rit­stjóri banda­ríska Vogue, brá til að mynda á það ráð að nota 50 ára gamla ljós­mynd eftir Irving Penn á for­síðu júní/júlí tölu­blaðs­ins. „Ég hef alltaf...
Bifhjólamenn fjölmenntu á samstöðufund og minntust fallinna félaga: Myndir
Innlentljósmyndir

Bif­hjóla­menn fjöl­menntu á sam­stöðu­fund og minnt­ust fall­inna félaga: Myndir

Sam­stöðu­fundur bif­hjóla­manna fór fram í dag fyrir framan Vega­gerð­ina í Borg­ar­túni. Stór hópur fólks, flestir bif­hjóla­menn, mætti þar, sýndi sam­stöðu og minnt­ist fall­inna vina og félaga, sem lét­ust í banaslysi á Vest­ur­lands­vegi á Kjal­ar­nesi á sunnu­dag. Tveir bif­hjóla­menn lét­ust í árekstri bif­hjóls og hús­bíls, og einn bif­hjóla­maður er á spít­ala. Slysið varð á veg­ar­kafla sem varað hafði verið við, og...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins