„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sérsveitin réðst til atlögu á Vernd: „Það er ýmislegt í gangi“

Sérsveitin réðst til atlögu á Vernd: „Það er ýmislegt í gangi“
Vernd er í Laug­ar­dalnum.

Sérsveit rík­is­lög­reglu­stjóra réðst rétt fyrir klukkan 14:00 í dag inn á áfanga­heim­ilið Vernd í Laug­ar­dalnum. Vitni segja að einn maður hafi verið leiddur út í hand­járnum. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs er mað­ur­inn ungur að aldri og er hann grun­aður um lík­ams­árás. Alls voru tveir lög­reglu­bílar og einn ómerktur bíll sér­sveit­ar­innar á staðnum sam­kvæmt vitnum.

„Það er ýmis­legt í gangi,“ svör­uðu lög­reglu­menn þegar þeir voru spurðir af nágrönnum Verndar hvað hafði gerst þegar aðgerð­inni var lokið.

Starf­semi Verndar er ætlað að hjálpa föngum að kom­ast aftur í sam­fé­lagið og er vera þeirra á áfanga­heim­il­inu háð ýmsum skil­yrðum svo sem vinnu og/eða námi. Þá er öll neysla vímu­efna bönnuð á meðan vist stendur yfir og strangar reglur um úti­vist.

Skiptir ekki máli hvar fólk býr

„Ég held að lög­reglan hafi bara viljað ná tali af manni sem býr þar, það var ekk­ert annað í gangi,“ sagði Þráinn Bj. Farest­veit, fram­kvæmda­stjóri Verndar, í sam­tali við Mannlíf um málið.

„Ekki grænan. Ég hef engar hug­myndir um svo­leiðis,“ sagði Þráinn um hvort hann vissi af hverju sér­sveitin hafi hand­tekið mann­inn. „Það er auð­vitað bara eins og út í sam­fé­lag­inu að við­brögð við alls­konar málum eru oft þannig að það sé hægt að lesa meira en minna úr því sem í raun­inni að ger­ast. En það er eðli­legt að ef menn eru grun­aðir um eitt­hvað, hvar sem þeir búa, að mál séu auð­vitað skoðuð með þeim augum sem litið er á þau. Svo verða menn að svara fyrir það ef það er rétt eða rangt sem borið er upp á þá. Ég veit ekki hvað í slíkum til­vikum er oft eitt­hvað sem liggur fyrir, eða jafn vel ekk­ert þannig að maður veit ekki hvað er í þessu máli frekar heldur en öðrum. En lög­reglan vildi greini­lega ná tali af ein­stak­lingi sem býr á Vernd og málið er ekk­ert snún­ara, eða meira upp á sig, en það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins