„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Viðurkennir að hafa stungið 87 ára gamlan mann til bana – Gerandinn nýsloppinn úr fangelsi

Viðurkennir að hafa stungið 87 ára gamlan mann til bana – Gerandinn nýsloppinn úr fangelsi
Frá árásinni Mynd: Trausti Hafsteinsson

Maður hefur við­ur­kennt sök í mann­dráps­máli en hann stakk 87 ára gamlan mann sem var á raf­skutlu.

Hinn 45 ára Lee Byer, stakk hinn 87 ára gamla Thomas O´Halloran í háls­ins og bring­una í Grenn­ford í Vestur-Lundunum, í ágúst 2022. Bryer hefur á bak­inu fjöldi dóma en nokkrum dögum fyrir árás­ina hafði hann verið lát­inn laus úr Wormwood Scrubs fang­els­inu. Í dag neit­aði Byer fyrir dómi, að hafa myrt O´Halloran en við­ur­kenndi mann­dráp.

Thomas O´Halloran

Sak­sókn­ar­inn í mál­inu, Gareth Patt­er­son, sam­þykkti játn­ingu Byers á mann­dráp­inu, eftir að heil­brigð­is­skýrslur sýndu fram á að Byer ætti það til að fara í geð­rof, heyrði raddir og þjá­ist af ofsókn­ar­kenndum rang­hug­myndum og geð­klofa. Sagði hann að and­legt ástand útskýrði þessa „ástæðu­lausu árás“.

Afinn O´Halloran var upp­runa­lega frá Co Clare í vest­ur­hluta Írlands og var þekktur í heima­byggð sinni. Hann var sagður hafa verið ástríðu­fullur tón­list­ar­maður og lýst sem „mjög vin­sælum“ í Greenford, þar sem hann spil­aði oft tón­list til að safna pen­ing fyrir góð­gerð­ar­mál. Í einu mynd­skeiði sést hann syngja gam­alt írskt lag aðeins nokkrum vikum áður en hann var stung­inn til bana. Þá sýndu mynd­skeið á sam­fé­lags­miðl­unum, O´Halloran safna pen­ing fyrir Úkraínu með því að spila tón­list fyrir gang­andi veg­far­endur, nokkrum mán­uðum fyrir morðið.

Thomas var vin­sæll „bösk­ari“.

Rétt eftir klukkan 16:00 þann 16. ágúst árið 2022 fékk lög­reglan neyð­ar­sím­tal frá veg­far­anda sem fann O´Halloran á raf­skutlu sinni. Náði O´Halloran að segja veg­far­and­anum að hann hefði verið stung­inn en stungusárin voru vel sjá­an­leg. Innan mín­útna mætti lög­reglan á vett­vang en þá hafði O’Halloran misst með­vit­und. Lög­reglan og sjúkra­liðar tóku við veg­far­endum við lífg­un­ar­til­raunum en var hann úrskurð­aður lát­inn á vett­vangi klukkan 16:54. Krufning leiddi í ljós að hann hefði verið stung­inn marg­sinnis í háls­inn, bring­una og í kvið­inn. Örygg­is­mynda­vél náði mynd­skeiði af árásinni og sýndi að ein­ungis Byer hafi verið á svæð­inu þegar O´Halloran var stung­inn.

Þegar Byer yfir­gaf svæðið var hægt að greina hníf í höndum hans. Hann náð­ist á mynda­töku­vél þar sem hann lagði hnífs­skaft í hol­ræsi á leið­inni heim til mömmu sinnar. Rétt­ar­rann­sókn fann blóð fórn­ar­lambs­ins á hand­fang­inu, þó að hnífs­blaðið hafi aldrei fund­ist. Eftir að eft­ir­lits­mynda­vél­ar­myndir af hinum grun­aða voru birtar í fjöl­miðlum báru starfs­menn refsirétt­ar­kerf­is­ins kennsl á Byer.

Eftir að hafa verið hand­tek­inn í húsi móður sinnar 18. ágúst sagði Byer við lög­regl­una: „Morð, ég var í fang­elsi á þeim tíma.“ Föt sem passa við þau föt sem sjást á eft­ir­lits­mynda­vélum fund­ust við hús­leit á eign­inni auk hnífa­setts með hand­föngum svipað því sem fannst í nið­ur­fall­inu. Lög­reglan sagði einnig að Byer hefði reynt að brenna fötin sem hann var í í garði móður sinnar. Í yfir­heyrslum lög­regl­unnar neit­aði Byer að vera sá sem sæist í eft­ir­lits­mynda­vél­unum og hélt því fram að hann hefði verið í garði móður sinnar eða í listi­garð­inum á þeim tíma.

Byer hefur á bak­inu 15 dóma á bak­inu fyrir 30 brot, frá því að hann var 14 ára. Árið 2011 var hann dæmdur fyrir rán og hlaut þá 12 ára fang­els­is­dóm. Þann 11. ágúst árið 2022 var Byer sleppt úr Wormwood Scrubs-fang­els­inu. O´Halloran lætur eftir sig fjöl­skyldu, þar á meðal systur sína, tvo bræður, frænkur og frændur.

Þegar hann lést sagði Martin Conway öld­unga­deild­ar­þing­maður Fine Gael á Írlandi að O’Halloran hafi heim­sótt landið reglu­lega og að and­lát hans hafi skilið heima­byggð hans í Enni­s­tymon í „djúpu áfalli og sorg“. „Tommy, eins og hann var kall­aður, fór frá Enni­s­tymon til Lundúna fyrir 71 ári síðan en ferð­að­ist heim nærri árlega þar til fyrir um 10 árum,“ sagði hann. Dómarinn í mann­dráps­mál­inu, Mark Lucraft, frestaði dóms­upp­kvaðn­ingu til 10. maí.

The Mirror sagði frá mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Manndráp

Lögreglumaður fundinn sekur um manndráp – Skaut 95 ára langömmu með rafbyssu
HeimurManndráp

Lög­reglu­maður fund­inn sekur um mann­dráp – Skaut 95 ára langömmu með raf­byssu

Lög­reglu­maður sem stuð­aði 95 ára gamla heila­bil­aða langömmu til bana á hjúkr­un­ar­heim­il­inu þar sem hún bjó hefur verið fund­inn sekur um mann­dráp af gáleysi. Kristian White, sem er 34 ára, not­aði vopn sitt, raf­byssu, á Clare Nowland eftir að hún fannst ráf­andi um Yallambee Lodge umönn­un­ar­heim­ilið í bænum Cooma, bæ sem er um 275 km suður af Canberra í Ástralíu,...
Kominn á Vernd innan við ári eftir manndrápsdóm: „Ég hef ekki orðið fyrir neinu ónæði“
InnlentManndráp

Kominn á Vernd innan við ári eftir mann­dráps­dóm: „Ég hef ekki orðið fyrir neinu ónæði“

Ungur karl­maður sem dæmdur var í 12 ára fang­elsi fyrir mann­dráp við Fjarð­ar­kaup í apríl í fyrra er laus úr fang­elsi og afplánar nú á vernd. Ýmislegt þarf að koma til svo fólk þurfi ekki að aflána heilan fang­els­is­dóm að sögn fang­els­is­mála­stjóra. Maðurinn, sem er 19 ára, var dæmdur í fang­elsi í nóv­em­ber í fyrra en frá refs­ingu hans dregst...
Kvendansari kyrktur af kærastanum í kynlífsleik: „Við erum algjörlega niðurbrotin“
HeimurManndráp

Kvend­ans­ari kyrktur af kærast­anum í kyn­lífs­leik: „Við erum algjör­lega nið­ur­brotin“

Atvinnu­dans­ari lést á hrylli­legan hátt þegar hún var kyrkt í miðjum kyn­lífs­at­höfnum. Kærasti hennar tók sitt eigið líf stuttu síðar. Hin 26 ára Georgia May Brooke, frá Ossett í Vestur Jór­vík­ur­skíri lést föstu­dag­inn 4. febr­úar árið 2022. Kærasti hennar, Luke Cannon, fannst lát­inn seinna þann dag en hann hafði þá framið sjálfs­víg. Dán­ar­dóm­stjóri sagði frá nið­ur­stöðu sinni í dag en...
Dagbjört ákærð fyrir manndrápið í Bátavogi
InnlentManndráp

Dagbjört ákærð fyrir mann­drápið í Bátavogi

Dagbjört Rún­ars­dóttir, 42 ára, hefur verið ákærð af hér­aðs­sak­sókn­ara, fyrir mann­drápið í Bátavogi. Arn­þrúður Þór­ar­ins­dóttir, sak­sókn­ari hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, stað­festi að búið sé að ákæra grun­aðan sak­born­ing í Báta­vogs­mál­inu, fyrir mann­dráp. Samkvæmt DV er sú ákærða Dagbjört Rún­ars­dóttir, 42 ára. Ekki verður ákæran birt fjöl­miðlum fyrr en sak­born­ingi hefur verið birt hún. Dagbjört er ásökuð um að hafa banað 58...
Tíu ára fangelsi fyrir manndráp
InnlentManndráp

Tíu ára fang­elsi fyrir mann­dráp

Ungur karl­maður var í dag dæmdur fyrir mann­dráp í Hér­aðs­dómi Reykja­ness og var hann dæmdur í tíu ára fang­elsi en mann­drápið átti sér stað á bíla­stæði Fjarð­ar­kaupa í apríl. Tveir karl­menn fengu tveggja ára dóm og 17 ára stúlka fékk 12 mán­aða skil­orðs­bundin dóm. Samkvæmt heim­ildum Vísis kom upp ósætti milli manns og hóps­ins, sem hlaut dómana, vegna fíkni­efna­neyslu á...
Gæsluvarðhaldi framlengt um tvær vikur
InnlentManndráp

Gæslu­varð­haldi fram­lengt um tvær vikur

Gæslu­varð­haldi yfir konu sem grunuð er um að hafa orðið karl­manni að bana í fjöl­býl­is­húsi við Bátavog, hefur verið fram­lengt um tvær vikur, eða til 18. októ­ber. Samkvæmt til­kynn­ingu frá lög­regl­unni hefur gæslu­varð­haldi yfir konu, 42 ára, verið fram­lengt til 18. októ­ber en það átti að renna út í dag. Konan er grunuð um mann­dráp en sam­býl­is­maður hennar fannst lát­inn...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“